Skessuhorn - 07.11.2018, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 20182
hópnum segir að afköst Heim-
is hafi verið mikil þótt árin yrðu
ekki mörg. „Eftir Heimi Klem-
enzson liggur ótrúlega mikið af
tónlistarefni, útgefið og óútgefið,
að ógleymdum þeim ótal tónlist-
arviðburðum sem hann átti þátt í
eða stóð fyrir. Píanó og orgel voru
hans aðal hljóðfæri en hann samdi
einnig mikið af tónlist. Hæfileik-
ar Heimis lágu víðar en þegar kom
að tónlistartengdum verkefnum
þá var sá tími sem í þau fór aldrei
talinn eftir. Hlutverk Minningar-
sjóðs Heimis Klemenzsonar verð-
ur að standa við bakið á ungu og
efnilegu tónlistarfólki í Borgar-
firði og heiðra á þann hátt minn-
ingu hans.“
Fyrstu tónleikarnir
framundan
Fyrsta verkefni minningarsjóðsins
verður að standa fyrir fjáröflunar-
tónleikum sem verða í Reykholts-
kirkju í Borgarfirði föstudaginn 16.
nóvember klukkan 20:30. Fjöldi
tónlistarfólks leggur fram krafta
sína á tónleikunum og gefur vinnu
sína. Það eru: Karlakórinn Söng-
bræður, Soffía Björg, Emma Ey-
þórsdóttir, Agnes Björgvinsdóttir,
Heiðmar og Jakob, Borgarfjarðar-
dætur, Halli Reynis, Eyrún Mar-
grét og Tinna, Viðar og Barbara,
Ásta Marý, Uppsveitin og Jónína
Erna. Sjá nánar í auglýsingu.
mm
Næsta sunnudag, 11. nóvember, er
feðradagurinn. Það vill svo til að sama
dag er dagur einhleypra. Lesendur
Skessuhorns eru því hvattir til að gera
vel við alla feður, ekki síst einstæða
feður.
Næsta fimmtudag verður austan 8-15
m/s og víða rigning, en úrkomulítið á
Norðurlandi. Um kvöldið styttir upp
um landið vestanvert. Hiti 3 til 8 stig.
Á föstudag eru líkur á suðaustan 8-15
og dálítilli rigningu, einkum suðaustan
til á landinu, en þurrt norðan- og vest-
anlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. Á
laugardag er útlit fyrir austlæga átt og
rigningu, en yfirleitt þurrt um landið
norðan- og vestanvert. Hiti 2 til 7 stig.
Á sunnudag lítur út fyrir að verði rign-
ing eða slydda með köflum, en úrkomu-
lítið suðvestanlands. Hiti 1 til 6 stig. Á
mánudaginn er útlit fyrir áframhaldandi
slyddu eða snjókomu norðan til á land-
inu, en þurrt og bjart veður sunnan-
lands. Hiti í kringum frostmark.
„Veistu lengra en nef þitt nær?“ var
spurningin sem lesendum Skessuhorns
gafst færi á að svara á vefnum í síðustu
viku. Flestir eru vissir um sína visku og
svöruðu „Já, mun lengra,“ eða 37%. 23%
svöruðu „Já, aðeins“ en 12% svöruðu
„Nei, er með svo stórt nef.“ 10% svar-
enda sögðust aðeins vita langleiðina,
og 10% svöruðu „Nei, en er samt með
það ofan í öllu“. 8% svarenda sögð-
ust ekki vera með nef og voru því ráð-
þrota hvernig þeir ættu að svara spurn-
ingunni.
Í næstu viku er spurt: Þarftu að hafa
fyrir að „komast í kjólinn fyrir jólin?“
Albert Svavarsson framkvæmdastjóri
Ísfisks ehf. er Vestlendingur vikunnar.
Hann hefur nú flutt fyrirtækið sitt frá
Kópavogi og startaði í liðinn viku fimm-
tíu manna vinnustað á Akranesi í fyrrum
húsakynnum HB Granda.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Nokkur óhöpp
vegna hálku
VESTURLAND: Umferð-
aróhöpp voru nokkuð áber-
andi í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi í vikunni sem
leið. Einkum var mánudag-
ur annasamur. Voru lögreglu-
þjónar alloft kallaðir út vegna
umferðaróhappa sem rekja má
til hálku og leiðinlegrar færð-
ar. Ökumaður missti stjórn á
bifreið sinni í hálku þar sem
hann ók um Snæfellsnesveg
með þeim afleiðingum að bíll-
inn hafnaði utan vegar. Eng-
ann sakaði en bíllinn er mik-
ið skemmdur eða ónýtur og
þurfti að flytja burt á kranabíl.
Tvö óhöpp urðu á Akranesi,
annars vegar árekstur á gatna-
mótum Ketilsflatar og Þjóð-
brautar, þar sem bíll rann út
á gatnamótin í veg fyrir ann-
an bíl. Þá varð einnig árekstur
sem rekja má til hálku á Esju-
braut. Aftanákeyrsla varð við
Kúludalsá í Hvalfirði á mánu-
dag, en lítil sem engin meiðsl
urðu á fólki. Öll þessi óhöpp
má rekja til hálku. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu er lang-
algengasta orsök hálkuslysa
í umferðinni sú að fólk er á
vanbúnum bílum og/eða ekur
ekki eftir aðstæðum. Einn
ökumaður var tekinn við ölv-
unarakstur í umdæmi LVL
í liðinni viku og þá stöðvaði
lögregla annan sem hafði ekki
ökuréttindi.
-kgk
Bjuggust til
leitar
DALIR: Á sjöunda tíman-
um síðastliðið sunnudags-
kvöld voru björgunarsveit-
ir við Húnaflóa og af Vestur-
landi ræstar í útkall til leitar að
manni í Dölum. Um klukku-
stund síðar hafði maðurinn
komið í leitirnar heill á húfi og
var útkallið því afturkallað.
-mm
Kvenfélag Hvít-
ársíðu nírætt
BORGARBYGGÐ: Kven-
félagskonur í Kvenfélagi Hvít-
ársíðu bjóða til kvöldvöku í
Brúarási á föstudagskvöld kl.
20:30, í tilefni af 90 ára af-
mæli félagsins. Rifjað verður
upp starf kvenfélagsins í gegn-
um tíðina og boðið upp á kaffi.
Aðgangur að kvöldvökunni er
ókeypis en söfnunarbaukur
verður á staðnum. Auk þess
verður haldið bögglauppboð.
Gestir eru hvattir til að taka
skotsilfrið með sér þar sem
ekki verður tekið við greiðslu-
kortum. Allur ágóði sem safn-
ast í baukinn og af uppboðinu
mun renna óskiptur til dvalar-
og hjúkrunarheimilisins Brák-
arhlíðar.
-kgk
Stofnaður hefur verið Minning-
arsjóður til minningar um Heimi
Klemenzson tónlistarmann frá
Dýrastöðum í Norðurárdal og
á döfinni eru fyrstu tónleikarn-
ir sem sjóðurinn stendur fyrir.
Það eru vinir, ættingjar og sam-
verkamenn Heimis sem vilja með
stofnun sjóðsins halda minningu
hans á lofti og sérstaklega elju
hans og fagmennsku á tónlistar-
sviðinu. Ráðgert er að sjóðurinn
verði sjálfseignarstofnun. Í undir-
búningshópnum eru Viðar Guð-
mundsson, Eiður Ólason, Jónína
Erna Arnardóttir, Jakob G Sig-
urðsson og Jómundur Rúnar Ingi-
bjartsson.
Í tilkynningu frá undirbúnings-
Stofna Minningarsjóð
Heimis Klemenzsonar
Sumarið 2014 gaf Heimir Klemenzson út sína fyrstu sólóplötu. Hún bar nafnið
Kalt. Ljósm. úr safni Skessuhorns/mm.
Föstudaginn 2. nóvember var síð-
asti opnunardagur Arionbanka í
Grundarfirði. Fjölmargir lögðu
leið sína í útibúið og kvöddu starfs-
fólkið en gestum var boðið upp á
súkkulaðiköku. Það voru þau Guð-
rún Margrét Hjaltadóttir, Eyjólf-
ur V Gunnarsson og Gissur Arn-
arsson sem voru á vaktinni þenn-
an síðasta opnunardag. Framvegis
þurfa viðskiptavinir sem eiga erindi
í bankann að aka inn í Stykkishólm
til að sækja þjónustu.
tfk
Síðasti opnunardagur
Arionbanka í Grundarfirði
Friðbjörn Ásbjörnsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Fisk Seafood hef-
ur tekið við sem framkvæmdastjóri
félagsins. Í tilkynningu frá Þórólfi
Gíslasyni stjórnarformanni fyrir-
tækisins er Friðbirni óskað velfarn-
aðar í nýju starfi. Jafnframt er frá-
farandi framkvæmdastjóra, Jóni E
Friðrikssyni, þakkað vel unnin störf,
en hann hefur látið af störfum sem
framkvæmdastjóri FISK Seafood
ehf. Jón starfaði hjá félaginu í 22 ár
og; „stýrði kröftugri uppbyggingu
þess og daglegum rekstri af mikilli
elju. Stjórn fyrirtækisins þakkar Jóni
farsælt og gott starf,“ segir í tilkynn-
ingunni. mm
Friðbjörn tekur við fram-
kvæmdastjórn Fisk Seafood
Friðbjörn Ásbjörnsson.