Heimsmynd - 01.12.1990, Blaðsíða 68
Islensk ættarsaga
/
/
Manor House kastalinn
í Torquay í Englandi sem Magnús, sonarsonur Ríkeyjar og
Sæmundar, á og rekur sem hótel.
orið 1933 voru bláfátæk hjón með stóran barnahóp
flutt fátækraflutningi frá ísafirði á heimasveit manns-
ins, Árneshrepp í Strandasýslu. Pessi flutningur olli
nokkrum geðshræringum á Isafirði því að fátækra-
flutningar voru þá að syngja sitt síðasta og þóttu ljótur blettur
á þjóðfélaginu. Hjónin, sem flutt voru með þessum hætti,
hétu Sæmundur Guðmundsson og Ríkey Eiríksdóttir. Þau
sættu sig illa við aðfarirnar, forðuðu sér við fyrsta tækifæri úr
Árneshreppi og nú var ferðinni heitið til Siglufjarðar þar sem
þau eygðu von um betra líf. Fátæktarsaga þessarar fjölskyldu
var síður en svo merki um dugleysi hennar. Þetta var ósköp
venjulegt fólk, sem reyndi að bjarga sér eftir öllum tiltækum
leiðum, en varð leiksoppar erfiðra aðstæðna og veikinda. Það
hefur líka sannast á afkomendum Sæmundar og Ríkeyjar að
eftir GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
sjálfsbjargarviðleitnin er í góðu lagi hjá þessu fólki og margt af
því harðduglegt. Einn sonarsonur þeirra, Magnús Steinþórs-
son, er nú kastalaeigandi á Bretlandi, þar sem hann rekur hót-
el, og hyggur á stórræði víða um Evrópu. Margt hefur því
breyst á einum mannsaldri. Það má segja með nokkrum hætti
að vegferð þessarar fjölskyldu hafi legið úr örbirgð í allsnægt-
ir, frá lágreistu koti í kastala. Hér verður sögð að nokkru saga
Sæmundar og Ríkeyjar og afkomenda þeirra:
SÆMUNDUR OG RÍKEY
Sœmundur Guðmundsson (1899-1959) var fæddur í Nausta-
vík í Árneshreppi en foreldrar hans voru bóndahjón á Strönd-
um, lengst af í Byrgisvík. Ríkey Eiríksdóttir (1899-1966) var
hins vegar Djúpmanneskja í húð og hár, fædd á Sandeyri í
Snæfjallahreppi, en foreldrar hennar voru á ýmsum stöðum
við Djúp, síðast í Súðavík.
Þau Sæmundur og Ríkey kynntust innan við tvítugt og rugl-
68 HEIMSMYND