Heimsmynd - 01.12.1990, Side 36
SKARTGRIPIR: Gull sem glóir
Eyrnalokkarnir skulu að fyrirskipan tískukonunga vera fyrirferðarmiklir og síðir
þetta árið. Armböndin mikil og þykk, jmist alsett steinum, gyllt eða silfruð. Skart-
gripir í anda Coco Chanel verða áfram vinsœlir og perlufestar í öllum stœrðum og
gerðum munu halda velli.
Eyrun eru í brennidepli þessa stundina. Síðir og miklir
eyrnalokkar eru það sem koma skal. Upphaf þessa
mikla æðis má rekja til bandarísku leikkonunnar
Michelle Pfeiffer en í myndinni The Fabulous Baker
Boys var hún ávallt með eyrnalokka sem náðu niður á
axlir. Konurnar í Hollywood voru ekki seinar að til-
einka sér þessa nýjung og þaðan rúllaði boltinn áfram.
íslendingar, sem gjarnan hreykja sér af því að fylgjast
öðrum þjóðum betur með tískunýjungum, hafa að sjálf-
sögðu ekki látið sitt eftir liggja. Nú er algengt að sjá ís-
lenskar
konur nota
stóra og
mikla
eyrnalokka
hvort sem
er að
kvöldi eða
degi til.
Síðir
eyrnalokk-
ar fara þó
ekki öllum
jafnvel.
Best fara
þeir kon-
um með
langan
háls. Þá er
nauðsyn-
legt að
huga að
hálsmál-
inu. Rúll-
ukragi eða mjög flegin hálsmál fara best þegar slíkir
eyrnalokkar eru bornir. Lokkar sem liggja við eyrun
ættu hins vegar allar konur að geta notað. Þessir lokkar
sem einnig sjást mikið minna mjög á skart-
gripi Coco Chanel en eru þó út-
færðir á ýmsan máta.
Þegar slíkir lokkar eru
notaðir er æskilegt að
hárið sé stutt eða tek-
ið frá andlitinu, ýmist
í tagl eða hnút í
hnakkanum.
Perlufestar, einfaldar og síðar
eða margfaldar og styttri, eru
mjög vinsælar þessa dagana
og eru notaðar við einfalda
toppa og boli innan undir
jakka. Grófar hálskeðjur í
anda Chanel eru einnig
farnar að sjást í auknum
mæli og oft eru armbönd í
stíl notuð við. Um arm-
bönd má almennt segja að
þau séu gróf og áberandi,
sett perlum eða litríkum
_ steinum.
%
Armbönd eru áberandi, gjarnan sett perlum eða
litríkum steinum.
Síðir eyrnalokkar eru það sem koma skal.
Greina má aðra meginbreytingu er varðar tísku í skartgrip-
um. Gylltir skartgripir sjást nú æ oftar og eru teknir að
skyggja á þá silfruðu sem til skamms tíma voru nær alls ráð-
andi. Þessar breytingar fylgja í kjölfar breyttrar fatatísku. Ní-
undi áratugurinn var áratugur svarts, en á þeim tíunda leikur
brúnt hins vegar að-
alhlutverkið. Gylltir
skartgripir fara vel
við jarðliti og því má
búast við að enn
meira taki að kveða
að gylltu hér eftir en
hingað til. □
36 HEIMSMYND