Heimsmynd - 01.04.1993, Page 100
og myntusi
Hugmynd eitt
Forréttur
Smjörsteikt hörpuskel með ígulkerssósu
Aðalréttur
Ofnsteiktur lambahryggur með
Chartreuse-sósu
Eftirréttur
Gljáð jarðarber með sabayon-sósu og
Grand Mamier
Smjörsteikt hörpuskel meö
ígulkerssósu
40 stk. hörpuskel
80 g ígulker
50 g saxaður laukur
10 cl hvítvín
25 cl rjómi
salt og pipar
100 g smjör
Sósa
Látið laukinn svitna í potti með 10
grömmum af smjörinu. Hellið víninu yfir
og látið sjóða niður. Þykkið með smjörinu
sem eftir er. Bætið því næst rjómanum út í
og látið sjóða.
Þá er ígulkerið sett í pottinn og látið
sjóða með öllu saman í tvær mínútur. Sigtið
og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Hörpuskel
Veltið skelinni upp úr hveiti og steikið í
smjöri í tvær mínútur. Kryddið með salti og
pipar. Hellið sósunni á diska og skreytið
(sjá mynd) með dilli og steinselju.
Ofnsteiktur lambahryggur
800 g lambahryggur
1 stk. gulrót (smótt skorin)
1 stk. laukur (saxaður)
10 g heill svartur pipar
1 stk. lórviðarlauf
1 /2 tsk. timian
2,5 dl rauðvín
3 dl kjötsoð
2 dl Chartreuse-likjör
80 g smjör
3 stk. einiber
Lamb:
Hreinsið fitu af rifjunum og höggvið
hryggjarsúluna úr. Skerið kross í fituna á
kjötinu og brúnið á pönnu. Saltið og piprið.
Setjið síðan hrygginn í ofn í átta til tólf
mínútur við 180-200 gráðu hita.
Grænmeti eftir smekk hvers og eins.
Sósa
Látið gulrótina og laukinn svitna í
smjöri. Bætið svarta piparnum, lárviðar-
laufinu, timian og einiberjunum út í. Hellið
þá rauðvíninu og helmingi líkjörsins út í og
látið sjóða niður um tvo þriðju. Þá er kjöt-
soðinu bætt út í og látið sjóða niður um
helming. Setjið þá afganginn af líkjörnum
út í sósuna; þykkið með smjörinu, saltið og
piprið. Að lokum sigtið sósuna
Gljáö jarðarber með sabayon-
sósu og Grand Marnier
3 stk. eggjarauður
1/2 dl Grand Marnier
1 /2 dl vatn
60 g sykur
80 g smjör, bróðið
flórsykur
Sósa
Fáið ykkur lítinn pott eða litla jámskál.
Setjið rauðurnar í og svo vatnið og því næst
líkjörinn og sykurinn. Þeytið yfir vægum
hita þar til þið farið að greina förin eftir
pískinn í sósunni. Gæta verður þess vand-
lega að ofhita ekki sósuna. Hellið þá
bræddu smjörinu hægt út í og hrærið
stanslaust í á meðan. Takið sósuna síðan til
hliðar.
Skerið jarðarberin í tvennt, raðið þeim
ofan í súpuskál og hellið sósunni yfir. Stráið
síðan flórsykri yfir og setjið inn í grill.
Bakið þar til eftirrétturinn er fallega brúnn.
Hugmynd tvö
Forréttur
Villisvepparjómi á tómatbeði
Aðalréttur
Kryddbakaður lambavöðvi með myntu
og myntusósu
EftÍrréttur
Lakkrísbaka með karamellusósu
Villisvepparjómi á tómatbeði
350 g kóngasveppir
4 dl kjúklingasoó
3 1/2 matarlímsblöð
HEIMS 100 MYND