Litli Bergþór - maí 2019, Blaðsíða 5
Litli-Bergþór 5
hana af. Eyrún Agnardóttir hætti störfum sem
aðstoðarmatráður í mötuneytinu í Aratungu, en
hún stefnir á að feta námsbrautina. Í hennar starf
var ráðin Silvia Popescu.
Eyrúnu er þakkað fyrir sín störf í mötuneytinu.
Sigurjón Pétur Guðmundsson lét af störfum í
Íþróttamiðstöðinni í Reykholti eftir rúman áratug í
starfi. Hann hefur verið mjög farsæll og vel liðinn
starfsmaður og það er mikil eftirsjá í starfskröftum
hans. Við starfi hans tók Skúli Sæland.
Og síðast en ekki síst og að öðrum ólöstuðum
var Ottó Eyfjörð Jónsson mikill hvalreki fyrir
okkur og mikil gæfa að hafa notið starfskrafta
hans þó það hefði verið draumur að hafa hann
lengur. Hann starfar nú við umsjón fasteigna hjá
orlofssjóði BHM. Við hans starfi tekur Björn
Einarsson.
Um leið og við óskum þessum frábæru
starfsmönnum velfarnaðar á nýjum starfsvett-
vangi, bjóðum við nýja starfsmenn velkomna til
starfa.
Framundan
Í haust samþykkti sveitarstjórn metnaðarfulla
fjárhagsáætlun fyrir árið 2019. Þó bygging leik-
skólans taki mest til sín, má nefna að farið verður í
miklar og fjárfrekar viðhaldsframkvæmdir. Til að
mynda verður skipt um hluta af þaki grunnskólans
í Reykholti og á sameiginlegri byggingu áhalda-,
björgunarsveitar- og slökkvistöðvarinnar.
Þessi upptalning er aðeins hluti af því sem
ráðist verður í ásamt því að haldið verður áfram
með gatnagerð og fráveitu þar sem frá var horfið.
Bláskógaveita.
Það sem er helst framundan hjá Bláskógaveitu
er innleiðing fjarálestrarmæla. Segja má að
hér sé um ákveðna byltingu að ræða í álestri
hitaveitunnar, þar sem þessir nýju mælar gefa
tækifæri á mun tíðari álestrum og meiri nákvæmni.
Þá þarf ekki að fara inn í lagnarými húsa til að
lesa af heldur er nóg að keyra um hverfið með
sérstökum fjarálestrarbúnaði.
Byrjað er að setja þessa mæla upp í Laugarási
og stefnt er að því að klára að setja þá upp í
haust. Endilega takið vel á móti Benna og hans
starfsfólki þegar hann mætir með nýju mælana.
Unnið er að því að innmæla allar lagnir kaldavatns-
og hitaveitunnar og hefur Guðmundur Böðvarsson
verið ráðinn til að halda utan um það.
Sumarið verður síðan meðal annars nýtt í að
sinna viðhaldi.
Bjarni D. Daníelsson,
sviðsstjóri.
Létu af störfum. f.v. Eyrún, Pétur og Ottó.
Samningur við Frumherja um fjarálestrarmæla undirritaður.
F.v.: Kristín Erla Einarsdóttir, Hallgrímur S. Hallgrímsson, Bjarni
Daníelsson, Orri Hlöðversson, Helgi Kjartansson og Valtýr Valtýsson.
Bilun í heitavatnslögn í Laugarási.