Litli Bergþór - maí 2019, Blaðsíða 39
Litli-Bergþór 39
Svo kemur að því að segja hverra manna maður
er og eitthvað um fjölskylduhagi.
Ég er kvæntur Guðrúnu Helgu Bjarnadóttur,
leik skóla kennara, sem er starfsmaður Blátt
áfram og Barnaheilla á Íslandi, en auk þess leið-
sögumaður. Flestar lengri ferðir hennar eru á
vegum Íslenskra fjallaleiðsögumanna og National
Geo graphic og þar höfum við stundum starfað
sam an í fararstjórn. Við höfum bæði haft mjög
gam an að því að sýna landið okkar og segja frá
sögu Íslands, jarðfræði, menningu og mannlífi, en
ekki síst að kynnast því góða fólki sem kemur í
heimsókn og er oft uppnumið af landi og þjóð.
Guðrún Helga er af Seltjarnarnesinu og er dóttir
Bjarna B. Ásgeirssonar, sem er dáinn, og Elínar
G. Guðmundsdóttur.
Ég á tvær dætur af fyrra hjónabandi, Ólöfu og
Kristínu Rut, og þrjá syni með Guðrúnu Helgu, þá
Bjarna Benedikt, Sigurð Stefán og Björn Ásgeir.
Ólöf býr í Reykjavík með manni sínum Pétri
Vilhjálmssyni og þremur börnum þeirra, Kristín
Rut býr í Lundi í Svíþjóð með manni sínum
Fredrik Sjö og tveimur börnum þeirra, og Bjarni
Benedikt býr í Osló með unnustu sinni Juliu
Viherlahti og dóttur þeirra. Sigurður Stefán býr í
Reykjavík og Björn Ásgeir er heima.
Sjálfur er ég fæddur í Stórholti 39 í Reykjavík
og ólst upp í Kópavogi. Foreldrar mínir eru Björn
Sigurðsson, fv. lögregluvarðstjóri í Reykjavík,
og Kristín Bøgeskov, djákni, en hún dó 2003.
Pabbi er sonur sr. Sigurðar Stefánssonar prófasts
og víglubiskups á Möðruvöllum í Hörgárdal og
Maríu Ágústsdóttur. Þau voru bæði úr Reykjavík.
Mamma var dóttir Søren Bøgeskov, bónda í
Reykjavík, og Ágústu Sigurðardóttur Bøgeskov.
Afi var af Jótlandi en amma frá Lágu Kotey í
Meðal landi, hálfsystir Einars Sigurfinnsonar
sem bjó um tíma hér á Iðu og var amma Ágústa
um tíma uppeldissystir sona hans, Sigurbjörns
og Sigur finns. Mikið er því af prestum í báðum
fjöl skyldum mínum og margar aðrar góðar fyrir-
myndir á ég frá bernskuárum og síðar á lífsleiðinni.
Ég er þakklátur fyrir þessa vegferð og nýt þess að
eiga heima í Skálholti þessum merka sögustað og
fagra helgistað þjóðarinnar.
Kristján í hópi kirkjufólks á Skálholtshátið 2018. (mynd pms)
Kristján ásamt konu sinni, Guðrúnu Helgu Bjarnadóttur,
í Skálholtsdómkirkju.
Nývígður vígslubiskup í Skálholti 2018. (mynd pms)