Litli Bergþór - maí 2019, Blaðsíða 19

Litli Bergþór - maí 2019, Blaðsíða 19
Litli-Bergþór 19 Í 3. tölublaði Skinfaxa, blaðs Ungmennafélags Íslands, á síðasta ári, var fjallað um stuðning sveitarfélaga við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf. Þar var greint frá því að UMFÍ hefði sent fyrirspurn á flest sveitarfélög landsins varðandi styrki sem þau veita til skipulagðs íþrótta- og æskulýðsstarfs. Þrátt fyrir að svör hafi verið mjög misjöfn frá þeim sveitarfélögum sem brugðust við fyrirspurninni, birtir Skinfaxi töflu þar sem fram koma þær upphæðir sem um er að ræða, eins og þær komu frá þeim 30 sveitarfélögum sem svöruðu. Það fer ekki á milli mála, að svörin byggja á mjög mismunandi forsendum og því eiginlega ekki hægt að byggja á þeim, ef bera á saman framlög til þessara mála og það er viðurkennt í blaðinu. Engu að síður fannst okkur þessar niðurstöður þess eðlis, að við ákváðum að óska eftir upplýsingum frá Bláskógabyggð um framlög sveitarfélagsins til skipulagðs íþrótta- og æskulýðsstarfs, en í könnun UMFÍ sýnist framlagið nema kr. 2.474 á íbúa á meðan, t.d. Hrunamannahreppur greiðir sem svarar kr. 26.150 á íbúa. Sveitarstjóri svaraði þessu erindi svona: Framlög Bláskógabyggðar til skipulagðs íþrótta- og æskulýðsstarfs eru með eftirfarandi hætti: Samningar við Ungmennafélögin tvö (bein framlög og afnot af íþróttamannvirkjum). Alls kr. 8.300.718. Einnig styrkur til Umf. Bisk í formi leigu af Aratungu kr. 1.083.799 vegna leikfélags. Þá var greitt til UMFL vegna 17. júní kr. 180.000. Ritnefnd Litla-Bergþórs, aðstaða í áhaldahúsi, reiknuð afnot 60.000. Alls kr. 1.323.799. Annað íþróttastarf: Til félaga eldri borgara samtals 1.229.430 kr. í þjálfunarkostnað og afnot af húsnæði. Styrkur til golfklúbba skv. fjárhagsáætlun kr. 411.000 Styrkur til björgunarsveita skv. samningi vegna æskulýðsstarfs, fjárhæðin er ekki skilgreind sérstaklega í samningi, en má áætla 200.000. Styrkur til HSK, sem greiddur er í Hluti töflunnar sem birtist í Skinfaxa, 3. tbl. 2018. Stuðningur við íþrótta- og æskulýðsstarf Hvernig stendur Bláskógabyggð sig?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.