Litli Bergþór - maj 2019, Side 6

Litli Bergþór - maj 2019, Side 6
6 Litli-Bergþór Allir ferðast milli staða. Á Íslandi ferðast ekki bara Íslendingar á þjóðvegum landsins, heldur stóraukinn fjöldi ferðamanna. Langflestir með bílum, sem við vitum öll að menga andrúmsloftið, og þar með umhverfið allt með útblæstri á koltvísýringi. Þá losna mengandi efni við hemlun og við slit á vegum. Aðeins eitt prósent bifreiða á landinu eru rafbílar. Almenningssamgöngur eru alltof illa nýttar og gera má sér í hugarlund að sökum þess hve fáir nýta sér almenningssamgöngur, séu þær í raun að auka við mengun. Á sama tíma fara fram umræður um orkuskipti. En við verðum að hugsa til framtíðar, og gæta þess að landsbyggðin verði ekki eftir, því eins og staðan er núna, þá drífa rafbílar heldur skammt. Sumir spá því að innan fárra ára verði landið rafbílavætt. En ég óttast að rafbílavæðing geti reynst fjölmörgum íbúum á landsbyggðinni hartnær ómöguleg. Rafbílar hafa sem stendur ekki nægilega langa drægni á hleðslunni - og eins og fram kom í Kveiki, fréttaskýringaþætti á RÚV, í nóvember, þá skortir innviði til að orkuskiptin geti átt sér stað. En er þá ekki rétt að hlúa að almenningssamgöngum? Mikilvægt er að almenningssamgöngur séu hraðar, öruggar og notendavænar og ekki síst umhverfisvænar. Í haust kom móðir mín í nokkurra daga heimsókn til okkar í sveitina. Hún á engan bíl og býr í Reykjavík, svo hún tók strætó hingað austur. Þegar mamma þurfti að snúa aftur heim í höfuðborgina, varð því ekki við komið að fara með strætó, vegna þess hve fáar ferðir eru í boði héðan úr uppsveitum og tímasetning hentaði alls ekki. Og raunar er það kapítuli út af fyrir sig hversu lélegar almenningssamgöngur bjóðast okkur uppsveitafólki, en það er efni í annan pistil. Þá bauðst systir hennar til að sækja hana til okkar. En þegar frænka mín kom var hún, vægast sagt, í uppnámi yfir þeirri miklu umferð sem hún varð vitni að. Hún hafði keyrt yfir Mosfellsheiði, gegnum Þingvelli og Laugarvatn á leið sinni hingað. Henni blöskraði hversu mikil umferð var um þjóðgarðinn sem, eins og áður hefur komið fram, hefur aukist stig af stigi á undanförnum árum með vaxandi ferðamannastraumi. Henni fannst að rukka ætti vegtolla fyrir að fara um Þingvöll. t.d. 5.000 krónur, fyrir að fá að keyra um þjóðgarðinn. En frænka mín vildi raunar ganga mikið lengra með þetta - hún vildi setja upp tollahlið við hvern inngang að höfuðborgarsvæðinu og líka innan borgarinnar - til dæmis við Elliðaárnar. Með þessu fullyrti hún að draga myndi úr bílaumferð, fólk myndi heldur velja almenningssamgöngur, sem væru þá styrktar verulega með peningunum sem fengjust úr vegtollunum. Nokkuð háværar umræður sköpuðust um þetta við eldhúsborðið - þar sem heimamanni á staðnum þótti illt, að fólk í sveitum landsins þyrfti að borga aukaskatta, við þyrftum oft að fara til Reykjavíkur að sækja þjónustu sem ekki fæst annarsstaðar. Fólk sem býr í Reykjavík þarf ekki að yfirgefa borgina á sama hátt. Já, umferðin hefur aukist gríðarlega. Hvernig leysum við þann vanda að um göturnar okkar ekur nú fjöldi ferðamanna, sem sumir hverjir hafa jafnvel sjaldan eða aldrei stýrt bíl nema í ökuhermi? Jú, þá laust niður í huga mér framtíðarlausninni sem margir hafa hugsað um en enginn haft áræðni til að framkvæma. Hvers vegna er hér ekki lestarkerfi, sem nýtir þá umhverfisvænu raforku sem hér er í boði? Hvers vegna notum við ekki umframraforkuna úr virkjunum okkar til umhverfisvænni samgangna í stað þess að nota hana í stórmengandi iðnað? Hugsanlega væri hægt að nota álið sem hér er framleitt til að búa til lestarteina og lestarvagna, sem ganga myndu fyrir endurnýjanlegri vatnsaflsraforku? Er það ekki stórhuga framtíðarsýn? Ég vona að hún nái einhvern daginn fram að ganga. Unnur Malín. Ritstjórnargrein um samgöngumál

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.