Litli Bergþór - maj 2019, Side 9

Litli Bergþór - maj 2019, Side 9
Litli-Bergþór 9 héldum pakkhúspartý hjá Oddnýju á Brautarhóli og föndruðum með Arite Fricke myndlistarkenn- ara í myndlistarstofunni í Bláskógaskóla í Reyk- holti. Eftir áramót hittumst við í Aratungu eitt kvöld í janúar, þar sem þær Herdís Friðriksdóttir og Erla Þórdís Traustadóttir fræddu okkur um fyrirtækin sín, sem tengjast ferðaþjónustu og svo hittumst við á bókasafninu, þar sem við sögðum frá uppáhaldsbókunum okkar og ræddum þær. Sem dæmi um aðra viðburði má t.d. nefna námskeiðið „Inngangur að neyðarvörnum“ hjá Rauða krossinum, sem þó nokkrar konur mættu á í fyrravor og í vor ætlum við að halda skyndihjálparnámskeið fyrir félagskonur, einnig á vegum Rauða krossins. Jólaball grunn- og leikskólans, þar sem Kvenfélagið sér um jólatréð, jólasveina o.fl. er árlegur viðburður, að ógleymdum ýmsum fundum og samstarfi við önnur kvenfélög í SSK, Kvenfélagasamband Íslands o.fl. Síðastliðið haust bauð kvenfélagið í fyrsta skipti upp á „standandi veitingar“ í erfidrykkju í Aratungu, að ósk aðstandenda. Fengin voru láns borð fyrir þá athöfn, en í fram haldinu fjárfesti félagið í 20 nýjum standborðum með dúkum, fyrir kr. 543.000, sem staðsett eru í Aratungu. Eins var nýlega fjárfest í þremur stórum kaffi- uppáhellingarkönnum og 20 nýjum hitakönnum, sem einnig eru staðsettar í Aratungu. Alls þáðu tæplega 3.500 manns kaffiveitingar hjá okkur á árinu 2018. Í stærri erfidrykkjum í Aratungu fengum við aðstoð við að bera stóla og borð frá körlunum í Lionsklúbbnum Geysi og er þeim þakkað kærlega fyrir það. Og eins þökkum við þeim utanfélagskonum, sem gegnum tíðina hafa bakað fyrir okkur þegar til þeirra hefur verið leitað. Fyrir ágóða af fjáröflun Kvenfélagsins voru eftirtaldir styrkir veittir seinnipart árs 2018 og fyrripart árs 2019: Keyptar voru 5 spjaldtölvur fyrir Bláskógaskóla í Reykholti (kr. 284.072) til viðbótar við þær 10 sem við gáfum grunnskólanum í fyrra. Í Sjóðinn góða fóru kr. 200.000. Samþykktur var styrkur til Aratungu fyrir ¼ af kostnaði við nýja hurð milli sala í Aratungu (kr 225.000). Við tókum þátt í kaupum á lífsmarkamæli fyrir heilsugæsluna á Selfossi í samvinnu við önnur kvenfélög í Árnessýslu, (kr. 25.000), styrktum ritunarsjóð SSK (um kr. 29.500) auk annarra styrkja til samfélagsins, t.d. til jólaballs, 17. júnínefndar, greiddur matur í ferð eldriborgara og fleira. Standborðin 20, hitakönnurnar, hrað- suðu ketill o.fl. eru í eigu Kvenfélagsins. Þessir hlutir eru staðsettir í Aratungu og nýtast öðrum í samráði við Kvenfélagið og eru því einnig til styrktar samfélaginu. Við Kvenfélagskonur óskum lesendum Litla- Bergþórs og Tungnamönnum öllum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn og fyrir allan stuðning fyrr og síðar. Agnes Geirdal formaður. Fundir, viðburðir, afmælisferð og námskeið - allt í lagi - en pakkhúspartý!!! Bisk-verk ehf. s: 893 5391 Espiflöt ehf, Reykholti s. 486 8955 Ferðaþjón. Gullfoss, Brattholti s. 486 8979 Friðheimar, Reykholti s. 486 8815 Garðyrkjust. Kvistar Reykholti s. 694 7074 Gljásteinn ehf, Myrkholti s. 486 8757 Gullfosskaffi við Gullfoss s. 486 6500 Eftirtaldir styrkja útgáfu Litla-Bergþórs Helgi Guðmundsson rafvirki s. 864 6960 Hótel Geysir, Haukadal s. 480 6800 JH-vinnuvélar / Brekkuheiði s. 892 7190 Miðhúsabúið, Miðhúsum s. 486 8640 Skjól-Camping, Kjóastöðum s. 899 4541 Úthlíð ferðaþjónusta s: 486 8770

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.