Litli Bergþór - maí 2019, Blaðsíða 21
Litli-Bergþór 21
Barnasögur
Gæludýrið mitt
Tröllin
Ég á nokkur gæludýr á heimilinu
mínu, kött, kanínu og dúfur, einnig
á ég húsdýr eins og hestinn minn,
Hettublesu, kindina Hálfbrá og
kvíguna Pæju, sem var að eignast
kálf á laugardaginn, kálfurinn fékk
nafnið Sveskja.
Kötturinn minn er sjö ára gamall
fress og heitir Krummi. Hann er
kolsvartur eins og fuglinn Krummi,
þannig fékk hann nafnið sitt.
Krummi er algjör feitabolla, ósköp
krúttlegur letihaugur en mjög góður
veiðiköttur þegar honum hentar og
þá er engin leti í gangi. Það þarf að
gefa Krumma að borða einu sinni á dag, þó hann
vilji og reyni að láta gefa sér eins oft og mögulegt
er; vælir sársvangur á alla sem leið eiga framhjá
og oft virkar það hjá honum.
Glugginn hjá honum þarf alltaf
að vera opinn svo að hann komist
út að pissa og kúka, ef glugginn
er lokaður verða slys og þá verður
mamma ekki glöð.
Honum finnst gott að láta klóra
sér, velta og leika í sólinni. Krummi
er ágætis köttur þó mamma sé lítið
hrifin af honum og segir oft við
hann FARÐU ÞARNA KÖTTUR
þegar hann byrjar að nudda sér upp
við hana, því hann er svo mikið
svangur.
Í næstu viku fáum við okkur eitt
gæludýr til viðbótar, lítinn sætan
hvolp. Þá verður sko fjör á heimilinu. ☺
Róbert Þór Bjarndal Ívarsson,
3. bekk.
Ég heiti Móanna og á heima í stór-
um og flottum helli. Það er fal legt
um hverfi hjá hell inum.
Það er fullt af fallegum blómum í
kring. Ég elska blóm. Þau eru líka í
öll um regnbogans litum. Svo eru líka
falleg tré með blómum og grænum
lauf um. Ég er lítið, skemmtilegt,
fimm ára tröll og ég á þrjú systkini,
stóra systur og tvo litla bræður, sem
eru tvíburar. Svo á ég mömmu og
pabba. Pabbi minn heitir Matthías
og mamma mín Anna, systir mín
heitir Lóa og bræður mínir Mói og
Móri. Mér finnst gaman að leika við
systkini mín og önnur tröllabörn.
Einn góðan veðurdag var ég úti að leika. Þá
rakst ég á mannastrák sem vissi ekki hvar hann
var. Ég sagði honum að hann væri í
tröllaheimi. Hann varð hræddur og
hljóp heim. Daginn eftir kom hann
aftur og vildi leika við mig. Við
fórum í göngutúr í góða veðrinu og
sáum stelpu sem var að skoða sig
um. Við löbbuðum til hennar og ég
var viss um að hún yrði ofsalega
hrædd við mig. En hún varð ekkert
hrædd heldur varð hún forvitin,
hana langaði að leika við okkur.
Við þrjú urðum bestu vinir og
lékum oft saman í fallega fjallinu
mínu.
Anna Karen Bjarndal Ívarsdóttir,
4. bekk.
ETHNIC SNAKES
COLLECTIOn