Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 22
22 Litli-Bergþór
Ég er úlfurinn og ég er úti í skógi.
Einu sinni var úlfur sem átti heima
úti í skógi. Hann sá stelpu sem
hét Rauðhetta. Hún fékk körfu
hjá mömmu sinni. Karfan var full
af kökum og góðgæti. Rauðhetta
labb aði út í skóg með körfuna.
Hún var að fara til ömmu sinnar.
Mamma hennar sagði henni að
labba á stígnum til ömmu. Svo
kom úlfurinn og sagði: ,,Gefðu
mér körfuna eins og skot! Ég ætla
að éta allar kökurnar!“. Rauðhetta
sagði: „Nei, ég ætla alls ekki að
gefa þér kökurnar. Ég ætla að gefa
ömmu kökurnar“. Þá stakk úlfurinn upp á að fara
í Skæri-blað-steinn og sá sem myndi vinna það
fengi körfuna. Rauðhetta sagði: ,,Já, það skulum
við gera“. Rauðhetta fékk skæri en úlfurinn fékk
stein. Úlfurinn varð svo glaður að vinna að hann
reif körfuna af Rauðhettu og hljóp inn í skóginn. Þá
fór Rauðhetta að gráta og hélt áfram
að gráta. Hún grét á meðan hún
labbaði heim til ömmu. Þegar hún
var búin að labba smá spöl þá kom
úlfurinn aftur. Þá sagði Rauðhetta:
„Ertu með kökurnar enn?“ Úlfurinn
játaði því. Rauðhetta sagði þá:
„Kemur þú í sjómann?“ Úlfurinn
var til í það og svo sagði Rauðhetta:
„Sá sem vinnur sjómann hann fær
kökurnar“. Rauðhetta vann sjómann
og fékk kökurnar aftur.
Svo hélt hún glöð og kát til ömmu
sinnar en úlfurinn varð leiður.
Amman sá að úlfurinn var leiður og
fékk ekkert að borða og bauð honum inn að fá
kökur og mjólk.
Köttur út í mýri, setti upp á sig stýri, úti er
ævintýri.
Jónas Þór Hafþórsson, 3. bekk.
Öll almenn málningarvinna
Skrautmálning & veggfóðrun
Snyrtileg umgengni
Fagleg vinnubrögð
Arnar Sigurbjörnsson, málari
Sími 777 5872
Einu sinni var ég tröllkarl. Ég átti
heima undir snjónum á jökli. Þar
var gott skjól en ekki hlýtt. Ég sá
allt í einu dverg sem var frosinn. Ég
náði í öxina og hjó hann úr ísnum.
Dvergurinn var ekki hræddur, af því
að hann vissi hvað myndi gerast í
framtíðinni, en bara fram um eitt
ár. Við áttum engar tilfinningar,
við vorum ekki glaðir og svoleiðis
Ævintýrið mitt - Rauðhetta
Tröllin og dvergarnir
og það komu túristar í leit að týnda
dverg sem ég fann. Og þeir fundu
hinn dverginn líka en þeir stungu
þeim í holuna mína og þá fékk ég
þá báða.
Unnsteinn Magni Arnarsson,
3. bekk.