Litli Bergþór - maj 2019, Qupperneq 28
28 Litli-Bergþór
Arnfríður Stefánsd., Patreksfirði,
Gísli Árnason, Höfn Hornaf.
Sigurbjörn Jóhannsson, Blöndugerði Hróarst.
Grímur Ögmundsson, S-Reykjum,
Guðm. Ingimarsson, Vegatungu
Sighvatur Arnórsson, Miðhúsum,
Margrét Grünhagen, Miðhúsum,
Guðríður Jónsdóttir, Sámsstöðum.
*Narsarsuaq hefur verið stafað á ýmsan hátt, t.d.
Narssarssuaq, eins og á kortinu sem fylgir þessari
grein. Orðið þýðir stóra sléttan á grænlensku.
Mánudagur 22. júní
Þegar vaknað var um morgun inn var tekið að
létta til og sólin skein á mjallhvíta jakana á
dimmbláum Eiríksfirði, en
þó var enn þokuslæðingur
í fjöllum. Þegar á daginn
leið létti þokunni og veðrið
var skínandi fagurt. Það
fór vel um okkur á hótelinu
um nóttina, en greinilega
er það herskáli í upphafi og
byggt úr steypueiningum.
Við gengum upp í hlíðina
fyrir morgun verð í morg-
unblíðunni. Eft ir morgun-
mat var nokk urt um stang
við að útvega áfengis-
skömmtunarmiða handa
öllum þátttakendum og
afhentum við Margrét okkar
miða leiðsögumanninum
honum Lassa, sem er
einstaklega þægilegur og
skýr piltur. Að svo búnu
var stigið á skipsfjöl,
þ.e. farþegabátinn „Polar
Moon“ og siglt rakleitt yfir
til Brattahlíðar. Þar hittum
við fyrir Hans Christian
Motzfeldt ásamt fleira
fólki. (Hans Christian var
á árunum 1967-1969 á
Hólaskóla og var í verknámi
heima á Miðhúsum). Var
fyrst safnast saman við
grunn Þjóðhildarkirkju
og flutti Jónas fararstjóri
okkar þar dálitla tölu um
landnám norrænna manna
á Grænlandi og um þessa
fyrstu kirkju landsins.
Einnig svaraði Motzfeldt
gamli nokkrum spurningum
um staðinn. Þá var gengið í
kirkjuna þar rétt hjá og Gyða
Bergþórsdóttir spilaði þar eitt lag,
„Faðir andanna“ og „söfnuðurinn“
söng. Þaðan var gengið að bæjar-
og kirkjurústunum og þær skoðaðar
og loks farið í fjárrétt þar skammt
frá og litið á nokkrar kindur. Ég
hafði þar litla viðstöðu, en hraðaði
mér heim til H.C. Motzfeldts, en
Margrét var komin þangað á undan
mér.
Þar röbbuðum við saman yfir
kaffibolla nokkra stund. Við
færðum þeim myndabækur og tvo
Narsarsuaq ...
Parsarsúak,
eða eitthvað.
Kort af Eiríksfirði og nágrenni. Teiknaðar línur sýna ferðaleiðir, númer sýna gistinætur.