Litli Bergþór - May 2019, Page 45
Litli-Bergþór 45
Undirbúningurinn hófst í nóvember með því
að þorrablóts nefndin boðaði til hefðbundins
spilakvölds og síðan þróaðist þetta og gerjaðist.
Í nefnd inni voru þau Böðvar Þór Unnarsson,
formaður, Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Jakob
Narfi Hjaltason og Guðrún Ólafsdóttir.
Svo var samið og endurskoðað, tekið upp og
klippt og „kastað“ í hlutverk og gengið eftir
sumum, en aðrir meira en tilbúnir í hvað sem er,
svona eins og gengur.
Stærstur hluti þess skemmtiefnis sem fram var
borið var tekið upp fyrirfram og síðan varpað á
tjald, en samt þótti nauðsynlegt að flytja hluta
atriðanna á staðnum. Þannig var þetta einnig nú
og einhvernveginn má segja að það sé gaman að
fá lifandi manneskjur á sviðið að einhverju leyti.
Það vita þeir sem komið hafa að því að taka
upp, klippa og setja saman heila skemmtidagskrá
á myndrænu formi, að það verður ekki hrist fram
úr erminni. Þarna lögðu ýmsir á sig ómælda vinnu
sem ekki verður greitt fyrir nema með ánægjunni
einni saman, sem eru nú bara ekki slæm laun.
Þorrablót FEB
Helgina eftir aðalþorrablótið, eða 1. febrúar, hélt
Félag eldri borgara í Biskupstungum sitt þorra-
blót, einnig í Aratungu, en troglaust. Þar svignuðu
hinsvegar borð af allskyns þorragæti, sem síðan
fyllti maga.
Þetta þorrablót hefur verið að vinna sér sess og
kann vel að veita hinu hefðbundna aukna sam-
keppni. Það var vel við hæfi, að skemmtiatriðin
frá helg inni áður voru endurflutt, bæði vegna þess
að það er gaman að skemmta fólki og svo bara
einfaldlega til að nýta betur þá vinnu sem hefur
verið lögð í þau. Þetta ætti að gera að föstum lið í
undirbúningi fyrir þorrablót framtíðarinnar.
Salurinn í Aratungu undirbúinn. (mynd pms) Útfærslur ræddar: Loftur frá Iðu, Þórarinn Spóastöðum, Víglundur
Höfða, Ingvi Spóastöðum og Ragnheiður Ljósalandi. (mynd pms)
Dansatriði neglt. Gunnar, Ingvi, Víglundur, Guðmundur, Þórarinn.
Loftur (að baki Ingva). (mynd pms)