Litli Bergþór - May 2019, Page 52

Litli Bergþór - May 2019, Page 52
52 Litli-Bergþór Vonir um að byggja upp Ekki held ég að á neinn sé hallað þegar því er haldið fram að Jóna Hansen hafi unnið af mestum krafti og áhuga að því að Krossinn yrði endurbyggður. Hún gegndi stöðu forstöðukonu í Krossinum nánast helming starfstíma hans og var allsstaðar nálæg þar sem málefni hans voru rædd. Sérstök Laugarásnefnd fjallaði um framtíð Krossins og þar voru ýmsar hugmyndir reifaðar, m.a. var sótt um leyfi til stofnunar garðyrkjubýlis sem hluta af fyrirhugaðri starfsemi. Það voru lagðar fram teikningar að nýbyggingum, landið skipulagt og sett fram drög að framkvæmdaáætlun, en svo varð ekkert af framkvæmdum, líklega vegna þess að þeim fækkaði sem höfðu trú á framtíð barnaheimilis, ekki vegna staðsetningarinnar, heldur fremur vegna kostnaðar við uppbygginguna, breytingar á viðhorfum til barnauppeldis og þeirrar staðreyndar, að börnum á þeim aldri sem þarna var um að ræða fækkaði. Þegar getnaðarvarnapillan kom á markað fækkaði fæðingum hratt. Fæðingar á Íslandi höfðu náð hámarki 1960, þegar 4,3 börn fæddust að meðaltali á hverja konu, en um 1970 var þetta hlutfall komið niður í um 3 börn, sem augljóslega má rekja til pillunnar að stærstum hluta. Starfsfólkið Fyrsta forstöðukonan í Krossinum, sumarið 1952, var Ingibjörg Ingólfsdóttir frá Fjósatungu í Fnjóskadal, næstu 4 árin gegndi Guðrún Ólafsdóttir frá Reykjarfirði í N.-Ísafjarðarsýslu starfinu, en hún lést vorið 1957. Þá var ráðin til starfans kona, sem enn hefur ekki tekist að grafa upp nafnið á, en hún varð að hætta fljótlega, af persónulegum ástæðum, en þá tók við Valgarð Runólfsson, síðar, meðal annarra starfa, skólastjóri grunnskólans í Hveragerði, en hann var það sem kallað var eftirlitskennari þetta sumar. Frá 1958 til 1960 gegndi starfinu Major Svava Gísladóttir, en hún var major í Hjálpræðishernum. Það var svo sumarið 1961 sem Jóna Ingibjörg Hansen var ráðin forstöðukona. Árið eftir fór hún í námsleyfi til Bandaríkjanna, þar sem hún kynnti sér starfsemi svipaðra dvalarheimila fyrir börn. Að aðalstarfi var hún grunnskólakennari stærstan hluta starfsævinnar. Sumarið sem Jóna var erlendis gegndi Sólveig Hjörvar starfinu, en hún var gift Þorsteini Eiríkssyni frá Löngumýri. Jóna kom svo aftur til starfa sumarið 1963 og var allt í öllu í Krossinum þar til hún lét af störfum eftir sumarið 1970. Síðasta sumarið sem heimilið var starfrækt var Guðrún Ingvarsdóttir forstöðukona, en hún var frá Reykjahlíð á Skeiðum. Hún var þá búin að starfa á heimilinu í tvö sumur. Fóstrurnar voru stúlkur á aldrinum frá 16 ára til um tvítugs. Þær voru upphaflega tvær sem sáu um börnin í hverjum svefnskálanna fjögurra, en síðar var þeim fjölgað þannig að ein bættist við hvern hóp. Þá voru starfsstúlkur í eldhúsi og þvottahúsi, en þar hefur líkast til verð nægur starfi. Það var þarna vélamaður, í það minnsta þar til rafmagnið kom, en á daginn, þegar rafmagns var þörf, var keyrð ljósavél. Ekki má gleyma vökukonunni, sem bar ábyrgð á börnunum á nóttunni. Karlar voru aldrei fjölmenn starfsstétt í Krossinum. Fyrir utan þá sem sáu um vélbúnað, voru þeir sem sinntu viðhaldi af ýmsu tagi, en þar komu að, meðal annars, þeir Ingólfur á Iðu og Hjalti Jakobsson og vísast fleiri. Loks þarf að minnast á þá sem gegndu hlutverkinu „eftirlitskennari“, en fyrstu árin, í það minnsta til 1960, var á hverju sumri einn karlmaður við störf, sem hafði meðal annars það hlutverk, að sinna málum sem tengdust strákum sérstaklega, en þau gátu verið af ýmsum toga, eins og nærri má geta. Fyrsta sumarið var eftirlitskennari Þórður Kristjánsson frá Suðureyri við Súgandafjörð. Hann var Jóna Hansen. Starfsfólkið 1959. (mynd Matthías Frímannsson).

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.