Litli Bergþór - May 2019, Page 55
Litli-Bergþór 55
Hallabar?
Þann 26. mars var opið hús í tilefni af opnun nýrrar
aðstöðu eldri borgara í kjallara Bergholts. Þarna
voru áður þrír bílskúrar sem þeir munu hafa átt,
Sveinn á Drumboddsstöðum, Eiríkur í Miklaholti
og Haukur Daðason. Þetta rými er um 63 m² og
ætlunin er að vinna að frekari innréttingu þess í
samráði við þau sem það munu nýta, en þarna er
snyrting sem uppfyllir alla staðla og nokkurskonar
eldhúskrókur svo hægt sé að hella upp á og skella
í uppþvottavél.
Haraldur Kristjánsson í Einiholti gaf 10 milljónir
króna til þessa verks og var hann heiðraður af því
tilefni með blómvendi, orðum og lófaklappi.
Starfsemi á vegum Félags eldri
borgara í Biskupstungum flyst
nú í þetta rými til vors og síðan
fær félagið einnig til afnota á ný
það rými sem leikskólinn nýtir
nú, þegar ný leikskólabygging
verður tekin í notkun. Við þetta
allt eru bundnar vonir um stóreflt
starf félagsins frá og með næsta
vetri, en ætlunin mun vera að
ráða starfsmann í eitthvert tiltekið
starfshlutfall til að aðstoða félagið
eftir því sem þörf reynist á, svo
sem skipulag af ýmsu tagi og
þannig létta af stjórn félagsins
ýmsu því sem hún hefur þurft að
vasast í.
Rætt var um mögulegt nafn á
þessari nýju aðstöðu og það síðasta
sem nefnt var þarna á staðnum
var „Hallabar“. Ekki kom fram
önnur tillaga sem virtist fá meiri
stuðning. Það var jafnvel svo, að
einhverj i r
tjáðu áhuga,
líklega í
hálfkæringi, á að settur yrði upp bar í einu horninu og einn til tveir þjónar fengju
það hlutverk að bera í gesti veigar og annað góðgæti.
Fjöldi gesta sótti þennan viðburð og fór talsvert langt fram úr þeim væntingum sem
skipuleggjendur höfðu haft um aðsókn. Ýmsir tóku til máls og fögnuðu þessari nýju
aðstöðu, fóru með vísur, sögðu sögur eða lásu upp.
Svo er bara að bretta upp ermar og kýla á stóreflingu félagsstarfs eldri borgara í Tungunum.
PMS
Oddviti afhendir Haraldi Kristjánssyni blómvönd. (mynd pms).
Gestir í nýrri aðstöðu eldri borgara. (mynd pms).
Fjölmenni var mætt. (mynd pms).
Það er nú ekki
skrallið
á honum Halla.