Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2019, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 19.12.2019, Qupperneq 17
Eyþór Ingi Einarsson, meistaranemi í sálfræði við Kaup- mannahafnarháskóla og styrktar- og þrekþjálfari: Reynir að hjálpa öðrum og hrósa í desember Hvað ætlar þú að gera það sem eftir lifir desembermánaðar? „Ég ætla að slaka á og njóta hátíð- anna með fjölskyldunni á Tenerife.“ Hvað finnst þér það besta við þennan tíma? „Gæðastundir með fjölskyldunni og góður matur.“ Hver er þín uppáhaldsjólahefð? „Í dag eru það líklega jólaboðin. Þar fæ ég að hitta skyldmenni sem ég sé sjaldan. Því miður mun ég missa af þeirri hefð í ár.“ Ætlar þú að láta gott af þér leiða í desember? Ef svo er, hvernig? „Ég vona að mín hegðun muni leiða gott af sér í desember eins og alla aðra mánuði. Ég mun sérstaklega einblína á að gefa mér tíma fyrir fjölskyldu og vini, rétta fólki hjálparhönd og hrósa öðrum.“ Fyrir hvað ertu þakklát/ur? „Heilsuna mína, fólkið í kringum mig og tækifærin sem ég hef fengið.“ Samúel Óskar Júlíusson, starfsmaður Brimborgar og viðskiptafræðinemi við Háskóla Akureyrar: Fjölskyldusamveran það besta við jólin Hvað ætlar þú að gera það sem eftir lifir desembermánaðar? „Ég ætla aðallega að vinna og kíkja á jólatónleika.“ Hvað finnst þér það besta við þennan tíma? „Fjölskyldusamveran.“ Hver er þín uppáhaldsjólahefð? „Ætli það sé ekki bara jólamaturinn.“ Ætlar þú að láta gott af þér leiða í desember? Ef svo er, hvernig? „Það er ekki planið eins og er en það gæti breyst.“ Fyrir hvað ertu þakklát/ur? „Ég er þakklátur fyrir margt en aðallega fjölskylduna, heilsuna og kærustuna.“ Gleðilega hátíð Jólakveðja frá starfsfólki Bláa Lónsins bluelagoon.is Sólborg Guðbrandsdóttir vf@vf.is VIÐTAL 17MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.