Víkurfréttir - 19.12.2019, Qupperneq 20
Ásmundur Friðriksson:
Trúlega einn mesti jólakortasendari allra tíma
Jólabíómyndin sem kemur þér í
jólaskap? Home Alone kemur fjöl-
skyldunni í brosmilt jólaskap.
Sendir þú jólakort eða hefur Fa-
cebook tekið yfir? Ég er trúlega
einn mesti jólakortasendari allra
tíma. Byrjaði í Barnaskólanum í
Vestmannaeyjum þegar við börnin
sendum heimatilbúin kort á milli
bekkja. Frá þeim tíma hef ég flest öll
jól látið hanna, teiknað eða málað
mín eigin jólakort. Þegar kortin
voru komin í 500 og tíminn orðinn
knappur í allar skriftirnar og skila-
boðin hætti ég alveg fyrir síðustu jól
og sendi kveðju á fésbókinni.
Ertu vanafastur um jólin, er eitt-
hvað sem þú gerir alltaf um há-
tíðarnar? Við Sigga erum jólabörn
og vanaföst. Ég undirbý matinn á
Þorláksmessu fyrir aðfangadags-
kvöld sem Sigga ber á borð á meðan
ég fer til kirkju. Sigga sér um heitan,
reyktan og feitan frampart á jóla-
dag og þá koma oft margir í heim-
sókn og borða með okkur. Ég fer
alltaf í kirkju á aðfangadagskvöld
og oftar um jólin. Lesum saman
jólakortin og fjölskyldan spilar
oftast á jóladag.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú
hefur fengið? Rafmagnsflugvélin
sem Gilli frændi gaf mér þegar ég
var fimm ára árið 1961 og við áttum
heima í Stakkholti hjá ömmu og
afa. Vélin var í litum og merkt Luft-
hansa, keyrði um og ljós blikkuðu á
vængjum. Einstakt eintak sem engin
annar átti í Eyjum.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga
þér frá yngri árum þínum á
jólum? Jólatréskemmtunin í Betel
fyrir hver jól þar sem frændur mínir
Óskar og Einar í Betel stjórnuðu
samkomunni. Jólatréð undir súð á
loftinu í Stakkholti og englahárið
sem gerði ljósin kringlótt á trénu
og ég gat starað á tímunum saman.
Jólasveinninn í búðaglugganum
hjá Axel Ó og skreytingin á Rafveitu
Vestmannaeyja sem fór undir hraun.
Jólasveinarnir á þrettándanum upp
á Há, ganga þeirra um bæinn, flug-
eldar, púkar og tröll.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Beinlausir fuglar eru alltaf í matinn
hjá okkur Siggu. Langamma mín,
Elín Þorsteinsdóttir, og langafi, Frið-
rik Svipmundsson, áttu sín fyrstu
jól í Eyjum árið 1904. Þau voru þá
nýgift og höfðu beinlausa fugla í
matinn sem er úrbeinuð lærisneið,
upprúlluð með beikoni og þurrk-
uðum ávöxtum. Núna 115 árum
síðar erum við enn með þennan sið í
minni fjölskyldu.
Hvenær finnst þér jólin vera
komin? Þegar við fjölskyldan setj-
umst við matarborðið eftir messu,
prúðbúin með aftansöng í útvarpinu.
Hefur þú verið eða gætirðu hugsað
þér að vera erlendis um jólin? Nei,
sú hugsun hefur ekki hvarflað að
mér.
Áttu þér uppáhaldsjólaskraut?
Jólakúlur sem hafa fylgt okkur Siggu
í 41 ár.
Hvernig verð þú jóladegi? Tek góða
jólagöngu á jóladagsmorgun, síðan
borðar stórfjölskyldan saman og í
seinni tíð er síðan langur náttfata-
dagur.
Sóknaráætlun er stefnuskjal sem felur í sér stöðumat landshlutans,
framtíðarsýn og markmið í tilgreindum málaflokkum ásamt skilgreindum
leiðum að markmiðunum. Markmið hennar er að stuðla að jákvæðri
byggðaþróun í takt við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra
þróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans.
Samningur um Sóknaráætlun Suðurnesja 2020 – 2024 var undirritaður
þann 12. nóvember 2019 milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins,
mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Sambands sveitarfélaga
á Suðurnesjum. Tilgangur hennar er að einfalda samskipti ríkis og
sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra
fjármuna. Sóknaráætlun Suðurnesja heldur utan um rúmlega 100
milljónir króna á ári og því renna rúmlega 500 milljónir króna frá ríkinu til
Suðurnesja næstu fimm árin.
Undirbúningur Sóknaráætlunar Suðurnesja 2020 – 2024 hóst í maí sl.
á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum en Capacent hefur
haldið utan um vinnuferli og samráðsfundi sem haldnir hafa verið vegna
verkefnisins.
Unnið var að mótun stefnunnar með því að eiga samráð við kjörna fulltrúa
og aðra hagsmunaaðila á Suðurnesjum til þess að fá fram sjónarmið þeirra
um Sóknaráætlunina og tengja áætlunina með markvissum hætti við
ákvörðun áhersluverkefna og úthlutun verkefna úr uppbyggingarsjóði.
Afurð þessarar vinnu er Sóknaráætlun Suðurnesja 2020-2024 en þar
má finna áherslur að endurskoðaðri framtíðarsýn, meginmarkmið
og mælanleg markmið til næst ára.
Við óskum eftir ábendingum frá íbúum landshlutans sem við munum
taka tillit til og í einhverjum tilfellum breyta í samræmi við.
Sóknaráætlun Suðurnesja
2020–2024
– Er þetta okkar framtíðarsýn?
Sóknaráætlun Suðurnesja 2020-2024 er nú til umsagnar á samráðsgátt
Ísland.is en þar geta íbúar landshlutans komið með ábendingar áður
en hún öðlast gildi á nýju ári.
Samradsgatt.island.is
sss.is
20 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.