Víkurfréttir - 19.12.2019, Blaðsíða 47
47ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 19. desember 2019 // 48. tbl. // 40. árg.
Már valinn íþróttamaður ársins
og vann Jólalagasamkeppni Rásar 2
Sundmaðurinn Már Gunn-
arsson er íþróttamaður
ársins 2019 hjá Íþrótta-
sambandi fatlaðra. Hann
og systir hans, Ísold, unnu
einnig Jólalagasamkeppni
Rásar 2.
Már á einkar glæsilegt íþróttaár að
baki sem náði hámarki á heims-
meistaramóti fatlaðra í sundi sem
fram fór í London. Þar varð Már einn
Norðurlandabúa til þess að komast á
verðlaunapall þegar hann setti nýtt
og glæsilegt Íslandsmet í 100m bak-
sundi og vann til bronsverðlauna í
greininni. Þjálfarar Más eru þeir Stein-
dór Gunnarsson og Davíð Hildiberg
Aðalsteinsson.
Á árinu 2019 setti Már alls 28 Íslands-
met og synti þrívegis undir gildandi
heimsmeti á ÍM25 í Ásvallalaug. Már
stefnir ótrauður að þátttöku á Para-
lympics í Tokyo 2020 og takist það
ætlunarverk hans verður það í fyrsta
sinn sem hann keppir á leikunum.
„Árið 2019 var afskaplega viðburða-
ríkt bæði í músíkinni og sundinu.
Ég náði þeim markmiðum sem ég
ætlaði að ná og það voru allskonar
óvæntar uppákomur sem duttu inn
í kjölfarið. Hjá mér er mikið svig-
rúm fyrir bætingar í sundlauginni
og stefnan fyrir árið 2020 er klár og
markmiðin enn skýrari,“ sagði Már
Gunnarsson í samtali við Hvata, á
vefsíðu Íþróttasambands fatlaðra.Már ásamt Gunnari föður sínum og núverandi og fyrrverandi þjálfurum sínum.
Ásta Katrín hlaut Hvataverðlaunin 2019
Ásta Katrín Helgadóttir, íþróttakennari á leik-
skólanum Skógarási í Reykjanesbæ, hlaut á dög-
unum Hvataverðlaun Íþróttasambands fatlaðra
2019. Hvataverðlaunin eru veitt einstaklingum,
félagasamtökum, stofnun, fyrirtæki eða öðrum
aðilum sem á framsækinn hátt hafa unnið í þágu
íþróttastarfs fatlaðra á árinu
Ásta Katrín Helgadóttir hefur í áratugi starfað
með Íþróttasambandi fatlaðra (ÍF) að fjöl-
mörgum verkefnum en hún
hlýtur Hvatabikarinn fyrir sér-
verkefni sem tengist leikskóla-
starfi og hreyfiþjálfun barna.
Árið 2015 hóf ÍF innleiðingu
verkefnisins YAP eða Young
Athlete Project sem er alþjóð-
legt verkefni á vegum Special
Olympics-samtakanna. YAP
hefur að markmiði að stuðla
að snemmtækri íhlutun á sviði
hreyfifærni, sérstaklega fyrir börn með sérþarfir
eða frávik. Ísland hefur farið þá leið að leita sam-
starfs við leikskóla og heilsuleikskólinn Skógarás
á Ásbrú hefur verið leiðandi samstarfsaðili frá
upphafi.
Í starfi sínu þar, sem íþróttakennari, hefur Ásta
Katrín sýnt frumkvæði og leitt innleiðingarferlið
með markvissri hreyfiþjálfun og rannsóknum á
árangri. Hún hefur náð að tengja hugmynda-
fræði YAP við dagleg verkefni og nám í samstarfi
við leikskólakennara og með virkum stuðningi
leikskólastjórans, Þóru Sigrúnar Hjaltadóttur.
HEFUR AÐSTOÐAÐ OG KYNNT ÁR-
ANGURSRÍKA AÐFERÐAFRÆÐI
Ásta Katrín hefur aðstoðað framkvæmdastjóra
Special Olympics á Íslandi við kynningarstarf
á landsvísu, skipulagt verklega sýnikennslu á
kynningardögum YAP og kynnt árangursríka
aðferðafræði innleiðingar í heilsuleikskólanum
Skógarási. Þar hafa öll börnin notið góðs af en
sérstakur markhópur hefur verið börn með slaka
hreyfifærni, hegðunarvandkvæði, hreyfivirkni
eða ADHD og einnig nemendur sem eru t.d.
óöruggir eða tvítyngdir. Rannsóknir sem gerðar
hafa verið á heilsuleikskólanum Skógarási hafa
sýnt framfarir í hreyfifærni en einnig jákvæð
áhrif YAP-verkefnisins á félagsleg samskipti,
vellíðan, sjálfsöryggi og gleði, sjálfstjórn og
tjáningu. Rannsókn á viðhorfi foreldra leikskóla-
barna í Skógarási til YAP-verkefnisins sýndi fram
á að foreldrar töldu sig meðvitaðri um að auka
og fylgjast með hreyfiþroska barnsins og þeir
töldu að YAP-verkefnið hafi haft jákvæð áhrif á
hreyfiþroska, samskipti, félagsfærni og hegðun.
Rannsókn sýndi einnig að kennarar leikskólans
töldu YAP-verkefnið hafa haft mjög jákvæð
áhrif á hreyfiþroska og félagsfærni og einnig
jákvæð áhrif á samskipti og hegðun nemenda.
Markmið er að YAP-verkefnið styrki börnin, geri
þau hæfari til að stíga fyrstu skrefin í íþróttum
og stuðli þannig að jákvæðri upplifun og þátt-
töku allra barna í íþróttastarfi. Þetta verkefni
er því talið mjög mikilvægt til framtíðar fyrir
starfsemi Íþróttasambands fatlaðra.
„Íþróttasamband fatlaðra þakkar Ástu Katrínu
sitt mikilvæga framlag. Hún er sannarlega vel
að þessu komin,“ segir í tilkynningu.
Fleiri nýta sér
hvatagreiðslur
Alls hafa 1.616 börn nýtt sér hvata-
greiðslur í Reykjanesbæ á þessu
ári. Íþrótta- og tómstundafulltrúi
fór yfir nýtingu á hvatagreiðslum
í Reykjanesbæ á síðasta fundi
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
nesbæjar.
Heldur fleiri stúlkur, eða 53% á
móti 47% drengja, nýta sér greiðsl-
urnar. Töluverð aukning hefur orðið
á nýtingu erlendra barna á hvata-
greiðslunum en 9,79% nýttu sér
þær árið 2017 samanborið við 22%
árið 2019.
Hvatagreiðslur munu hækka úr
28.000 í 35.000 kr. í janúar 2020.
Már hefur átt frábært ár
í sundlauginni.
FRÉTTAVAKT
ALLAN SÓLARHRINGINN
898 2222
Sendum starfsmönnum okkar og Suðurnesjamönnum öllum
okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
Þökkum einnig vinum okkar á Hæfingarstöðinni fyrir
ánægjulega heimsókn fyrr á árinu.