Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 6
6 1. nóvember 2019FRÉTTIR Leðurverkstæðið reykjavík býður upp á handunnin og kLæðskeraskorin karLmannsbeLti úr hágæða Leðri. Þá bjóðum við upp á mikið úrvaL af axLaböndum. síðumúLa 33 / 108 reykjavík / sími: 551 6659 / www.Lvr.is Leðurverkstæðið reykjavík á sér Langa sögu en upphaf Þess má rekja aLLt aftur tiL áranna fyrir seinna stríð. árið 1937 hóf Það starfsemi sína að víðimeL í reykjavík en í dag er Það tiL húsa með versLun og verkstæði að síðumúLa 33. AXLARBÖND FRÁ 4.990 KR. BELTI FRÁ 5.990 KR. „Ég upplifi þetta sem einelti og ekkert annað“ n Öryrki sakar heilbrigðisstjóra Suðurnesja um misbeitingu valds n Upplifir einelti og missir hálfar bætur Þ essi gjörningur heilbrigðisfull- trúa kostaði mig hálfs mánaðar ör- orkubætur,“ segir Ólafur Harðar- son öryrki sem búsettur er í húsbíl við Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Ólafur kveðst hafa upplifað misbeitingu valds af hálfu heilbrigðisfulltrúa Suðurnesja eftir að jeppabifreið hans var fjarlægð af um- ræddri einkalóð, sem að sögn eigandans var að tilefnislausu og hluti af braski. Þegar hann reyndi að leysa út bílinn hjá Vöku var búið að fjarlægja hvarfakútinn og pústið undan bílnum. Ólafur telur ólíklegt að um tilviljun sé að ræða í ljósi þess að bifreiðaverkstæði stendur við hliðina á einkalóðinni, þar sem að hans sögn er stöðugt reynt að koma fleiri bílum inn á svæði verkstæðisins. „Heilbrigðiseftirlit Reykjanesbæjar Suðurnesja er að setja miða á bíla sem eru búnir að vera númerslausir fyrir utan lóð- ir. Bíllinn minn er í iðnaðarhverfi, á einka- lóð, og í kringum hann eru hátt í þrjátíu eða fjörutíu bílar. Það eru heilu lengjurn- ar hérna af bílum og það er ekki hreyft við neinu nema hjá mér,“ segir Ólafur. „Bíla- verkstæðið vantar svo mikið stæði og þeir hafa verið að nýta sér allar leiðir til að losna við bíla sem við félagi minn eigum. Þetta er yfirgengileg frekja. Það er allt fullt af bílum á svæðinu og þeir hirða flottasta bílinn, bíl- inn minn.“ Benedikt Heiðdal, eigandi lóðarinn- ar við Njarðarbraut, þar sem Ólafur er bú- settur, tekur undir orð hans og upplifir þetta sem hreinræktað einelti. „Það sem var sorglegt við þetta er að bíllinn hans Ólafs og hundrað aðrir bílar voru fluttir upp í Mosfellsbæ. Þar er þeim hrúgað inn í gamla malarnámu við hliðina á ÍSTAK og þar er meiri umgengni á næturnar af hálfu erlendra verkamanna sem eru að skera hvarfakútana úr bílunum. Þar með var það gert við bílinn hans Ólafs,“ segir Benedikt. „Ég upplifi þetta sem einelti og ekkert annað og yfirgang hjá húsfélaginu, verk- stæðinu og heilbrigðisfulltrúa, sem er kall- aður til eins og smalahundur. Það er ein- hver vinskapur þarna sem herjar á Ólaf. Svo er fullt af hræjum sem fá að vera þarna óáreitt. Ég hringdi í Vöku fyrir stuttu og þá voru bílarnir mínir aftur dottnir inn á lista yfir þá sem á að fjarlægja, en öll hræin fá að vera í friði. Það getur enginn gert þetta nema á undan sé genginn dómur með vörslusviptingu. Það getur engin ríkis- stofnun farið inn á mína lóð og tekið minn bíl nema með slíkum dómi.“ Ekki bárust nein svör frá Heilbrigðis- eftirliti Suðurnesja við vinnslu fréttarinn- ar. n Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Benedikt Heiðdal, vinur Ólafs Ólafur sjálfur treysti sér ekki í myndatöku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.