Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 4
4 1. nóvember 2019FRÉTTIR Sorry seems to be the hardest word S varthöfði sagði sig úr Þjóð- kirkjunni fyrir löngu. Kær- ir sig ekki um svona flokka og drætti. Svarthöfði var í raun skráður í Þjóðkirkjuna í ein- hverju bríaríi og skráði sig rak- leiðis út aftur um leið og hann rankaði við sér. Og mikið sem Svarthöfði er feginn. Svarthöfða finnst með öllu óskiljanlegt að einhver sé eftir í þessari bévítis Þjóðkirkju. Kirkju sem kennir sig við alls kyns fal- leg orð, siði, venjur, boð og bönn en getur ekki einu sinni dröslast til að velja almennilegt fólk inn í þessa heilögu klíku. Aftur og aftur er hulunni svipt af mannvonskunni sem fær frjáls um enni að leika innan gull- sleginna dyra kirkjunnar. Menn misnota börn og eyðileggja líf. Menn ráðast á konur sem segja frá. Menn hrökkva í vörn, neita að svara og það sem er furðuleg- ast af öllu – bara geta ekki feng- ið af sér að biðjast afsökunar fyrir hönd þessa samþykkta sértrúar- söfnuðar. „Það hefur ekki komið sú beiðni, hugsun eða umræða sem hefur átt sér stað innan kirkjunn- ar,“ sagði biskup vor, Agnes M. Sigurðardóttir, í viðtali við RÚV í vikunni. Viðtalið var um enn eitt fórnarlamb þjóðkirkjuprests og hvort það ætti ekki rétt á miska- bótum vegna ævilangs skaða. En nei, nei – það hefur bara ekkert komið til tals. Þetta fórnarlamb, sem þó hafði kjark til að segja frá, fá fund, mæta kvalara sínum, þarf bara að óska eftir þeim sjálft. En kirkjuklíkan hefur bara ekki einu sinni rætt það. Svo er bara ekkert hægt að reka þessa presta. Þeir geta ekki hætt að vera prestar því það er „ekki hægt“ að taka vígsluna bara til baka. Nei, auðvitað, hvað var Svarthöfði að hugsa? Auðvitað er ekki bara hægt að svipta menn hempunni þegar þeir hafa svipt barn æskunni. Það væri náttúru- lega algjörlega út í hött ! n Svarthöfði Það er staðreynd að… Eitt af hverjum tíu börnum í Evrópu er getið í rúmum frá IKEA. Richard Dawkins fann upp á orðinu „MEME“ árið 1976. Það þýðir að herma eftir einhverju eða láta það ganga. Ef þú óttast öll skordýr ertu með entomofóbíu. Hljóð ferðast um það bil fjórum sinnum hraðar í vatni en í lofti. Hundar eru með svitakirtla undir þófunum svo þeir svitna ekki. Hver er hún n Hún er fædd árið 1976. n Hún er með BA-gráðu í alþjóðasamskiptum frá Trinity-háskólanum í Kanada. n Hún flutti til Íslands árið 2003. n Hún hefur starfað sem sjálf- boðaliði í áraraðir. n Hún er annar stofnenda Iceland Writers Retreaty of Toronto. SVAR: ELIZA REID „SKÓLASAMFÉLAGIÐ HÉRNA LOGAR“ Leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar sagður vera í sambandi við nýdæmdan barnaníðing Þ etta er manneskja í ábyrgðarstöðu og fjallar um málefni barna. Ef það kemur upp mál hjá mér sem varðar grunsemdir um að misnotkun sé í gangi og mig vantar upplýsingar eða ráðleggingar get ég þá leitað til hennar? Hvernig get ég treyst hennar dómgreind í slíkum málum? Þetta er ekki traustvekjandi,“ segir kona sem starfar hjá leikskóla í Reykjanesbæ. Leikskólafulltrúi, en sá aðili er yfir öllu leikskólastarfi í sveitarfé- laginu, er sagður hafa undanfarið verið verið í sambandi við mann sem fékk í sumar tveggja og hálfs árs dóm fyrir alvarlegt kynferðis- brot gegn fyrrverandi stjúpdóttur sinni. DV hefur rætt við tvo leikskólastarfsmenn í Reykjanesbæ vegna málsins. Þær eru báðar konur en verða ekki auðkenndar að öðru leyti hér. „Þetta er svo lítið samfélag og mér yrði ekki vært ef ég stigi fram undir nafni,“ segir önnur þeirra. Málið gegn manninum var dómtekið 22. maí á þessu ári en háttsemin átti sér stað í desember 2017. Manninum er gefið að sök að hafa „nýtt sér yfirburði sína gagnvart stúlkunni og traust hennar og trúnað hennar til hans sem fyrrum stjúpföður, en ákærði klóraði og/eða strauk henni á baki og bringu innanklæða, á innanverðum lærum og aftanverðum lærum allt niður á kálfa utanklæða, fór með hendi undir buxur hennar og klóraði og/eða strauk rass hennar og setti fingur inn í endaþarm hennar, þannig að fingur hans og nærbuxur hennar fóru inn í endaþarminn og strauk með fingri yfir endaþarm hennar, kyssti hana blautum kossum á enni, kinn og á læri, og lá síðan þétt upp að henni svo hún fann fyrir kynfærum hans við rassinn,“ eins og segir í dómsorði Héraðsdóms Reykjaness. Maðurinn var fundinn sekur um þessa háttsemi og dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Hann var dæmdur til að greiða stjúpdóttur sinni 1.800.000 krónur í miskabætur. Maðurinn hefur starfað sem fræðslustjóri Reykjanesbæjar en er hann var dæmdur fyrir þetta brot starfaði hann á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Um tíma starfaði hann sem sálfræðingur á Vestfjörðum og var hann þá kærður til lögreglu fyrir kynferðisbrot gegn ungum dreng. Sú kæra leiddi ekki til ákæru. „Skólasamfélagið hérna logar“ Ekki er vitað á þessari stundu hvort maðurinn hefur hafið afplánun en hann mun hafa áfrýjað málinu til Landsréttar. Sambandið mun vera náið og er á allra vörum sem starfa við leikskóla og jafnvel grunnskóla í Reykjanesbæ. „Þetta er ekki bara umtalað hjá leikskólastarfsfólki heldur líka hjá grunnskólakennurum. Skólasamfélagið hérna logar út af þessu,“ segir önnur konan sem ræddi við DV um málið. Hún segir jafnframt: „Þetta er afskaplega óheppileg staða. Hvernig myndi hún bregðast við ef það kæmi inn á borð til okkar mál sambærilegt við hans mál? Maður að brjóta á barni. Er henni treystandi til að taka málstað barnsins þegar hún hefur opinberlega tekið málstað gerandans?“ Að sögn þessarar konu trúir leikskólafulltrúinn á sakleysi mannsins þrátt fyrir dóm héraðsdóms. „Minni réttlætiskennd og siðferðiskennd er misboðið,“ segir konan jafnframt. „Það má kannski segja að þetta sé löglegt en þetta er gjörsamlega siðlaust,“ segir hin konan sem ræddi við DV vegna málsins. „Það sem angrar mig mest er að þessi kona skuli ekki draga sig úr þessari vinnu ef hún ætlar að halda við þennan mann, því í þessari stöðu finnst mér hún ótrúverðug. Mér finnst þetta vera dómgreindarleysi. Mér finnst líka að fólk í kerfinu hér þurfi að vakna til vitundar um þetta. Sættið þið ykkur við þetta eða hvað ætlið þið að gera? Ég vil þessum tveimur manneskjum ekkert illt en þetta jaðrar við siðblindu.“ Fyrirspurnum ekki svarað Leikskólafulltrúi heyrir undir Fræðsluráð Reykjanesbæjar og sendi DV ráðinu fyrirspurn vegna málsins. Var beðið um almenn svör við því hvort einhverjar reglur giltu um einkalíf starfsmanna sem gætu átt við um þær aðstæður sem hér hafa skapast. Hvort til séu reglur sem mæla gegn nánum kynnum við aðila sem brotið hafa gegn barni. DV sendi einnig tölvupóst á leikskólafulltrúann. Var hún beðin um að bregðast við því áliti starfsmannanna að hún væri vanhæf til að meta aðstæður þar sem grunur léki á kynferðislegri misnotkun gegn börnum vegna kynna sinna við hinn dæmda. Hvorugum tölvupóstinum hafði verið svarað er DV fór í prentun. DV reyndi einnig margsinnis að hringja í leikskólafulltrúann en ekki ekki var svarað og hún hringdi ekki til baka. Ef svör við fyrirspurnunum berast síðar verða þeim gerð skil í frétt á dv.is. n „Er henni treystandi til að taka málstað barnsins? Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.