Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 4
4 1. nóvember 2019FRÉTTIR
Sorry seems to be the hardest word
S
varthöfði sagði sig úr Þjóð-
kirkjunni fyrir löngu. Kær-
ir sig ekki um svona flokka
og drætti. Svarthöfði var í
raun skráður í Þjóðkirkjuna í ein-
hverju bríaríi og skráði sig rak-
leiðis út aftur um leið og hann
rankaði við sér. Og mikið sem
Svarthöfði er feginn.
Svarthöfða finnst með öllu
óskiljanlegt að einhver sé eftir í
þessari bévítis Þjóðkirkju. Kirkju
sem kennir sig við alls kyns fal-
leg orð, siði, venjur, boð og bönn
en getur ekki einu sinni dröslast
til að velja almennilegt fólk inn í
þessa heilögu klíku.
Aftur og aftur er hulunni svipt
af mannvonskunni sem fær frjáls
um enni að leika innan gull-
sleginna dyra kirkjunnar. Menn
misnota börn og eyðileggja líf.
Menn ráðast á konur sem segja
frá. Menn hrökkva í vörn, neita
að svara og það sem er furðuleg-
ast af öllu – bara geta ekki feng-
ið af sér að biðjast afsökunar fyrir
hönd þessa samþykkta sértrúar-
söfnuðar.
„Það hefur ekki komið sú
beiðni, hugsun eða umræða sem
hefur átt sér stað innan kirkjunn-
ar,“ sagði biskup vor, Agnes M.
Sigurðardóttir, í viðtali við RÚV í
vikunni. Viðtalið var um enn eitt
fórnarlamb þjóðkirkjuprests og
hvort það ætti ekki rétt á miska-
bótum vegna ævilangs skaða. En
nei, nei – það hefur bara ekkert
komið til tals. Þetta fórnarlamb,
sem þó hafði kjark til að segja
frá, fá fund, mæta kvalara sínum,
þarf bara að óska eftir þeim sjálft.
En kirkjuklíkan hefur bara ekki
einu sinni rætt það.
Svo er bara ekkert hægt að
reka þessa presta. Þeir geta ekki
hætt að vera prestar því það er
„ekki hægt“ að taka vígsluna bara
til baka. Nei, auðvitað, hvað var
Svarthöfði að hugsa? Auðvitað
er ekki bara hægt að svipta menn
hempunni þegar þeir hafa svipt
barn æskunni. Það væri náttúru-
lega algjörlega út í hött ! n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Eitt af hverjum tíu börnum í Evrópu er
getið í rúmum frá IKEA.
Richard Dawkins fann upp á orðinu
„MEME“ árið 1976. Það þýðir að herma
eftir einhverju eða láta það ganga.
Ef þú óttast öll skordýr ertu með
entomofóbíu.
Hljóð ferðast um það bil fjórum
sinnum hraðar í vatni en í lofti.
Hundar eru með svitakirtla undir
þófunum svo þeir svitna ekki.
Hver er
hún
n Hún er fædd árið
1976.
n Hún er
með BA-gráðu í
alþjóðasamskiptum frá
Trinity-háskólanum í Kanada.
n Hún flutti til Íslands árið 2003.
n Hún hefur starfað sem sjálf-
boðaliði í áraraðir.
n Hún er annar stofnenda Iceland
Writers Retreaty of Toronto.
SVAR: ELIZA REID
„SKÓLASAMFÉLAGIÐ HÉRNA LOGAR“
Leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar sagður vera í sambandi við nýdæmdan barnaníðing
Þ
etta er manneskja í
ábyrgðarstöðu og fjallar
um málefni barna. Ef það
kemur upp mál hjá mér
sem varðar grunsemdir um að
misnotkun sé í gangi og mig vantar
upplýsingar eða ráðleggingar
get ég þá leitað til hennar?
Hvernig get ég treyst hennar
dómgreind í slíkum málum?
Þetta er ekki traustvekjandi,“ segir
kona sem starfar hjá leikskóla í
Reykjanesbæ.
Leikskólafulltrúi, en sá aðili er
yfir öllu leikskólastarfi í sveitarfé-
laginu, er sagður hafa undanfarið
verið verið í sambandi við mann
sem fékk í sumar tveggja og hálfs
árs dóm fyrir alvarlegt kynferðis-
brot gegn fyrrverandi stjúpdóttur
sinni.
DV hefur rætt við tvo
leikskólastarfsmenn í Reykjanesbæ
vegna málsins. Þær eru báðar
konur en verða ekki auðkenndar
að öðru leyti hér. „Þetta er svo lítið
samfélag og mér yrði ekki vært ef
ég stigi fram undir nafni,“ segir
önnur þeirra.
Málið gegn manninum var
dómtekið 22. maí á þessu ári en
háttsemin átti sér stað í desember
2017. Manninum er gefið að sök
að hafa „nýtt sér yfirburði sína
gagnvart stúlkunni og traust
hennar og trúnað hennar til hans
sem fyrrum stjúpföður, en ákærði
klóraði og/eða strauk henni
á baki og bringu innanklæða,
á innanverðum lærum og
aftanverðum lærum allt niður á
kálfa utanklæða, fór með hendi
undir buxur hennar og klóraði
og/eða strauk rass hennar og
setti fingur inn í endaþarm
hennar, þannig að fingur hans
og nærbuxur hennar fóru inn
í endaþarminn og strauk með
fingri yfir endaþarm hennar,
kyssti hana blautum kossum á
enni, kinn og á læri, og lá síðan
þétt upp að henni svo hún
fann fyrir kynfærum hans við
rassinn,“ eins og segir í dómsorði
Héraðsdóms Reykjaness.
Maðurinn var fundinn sekur
um þessa háttsemi og dæmdur
í tveggja og hálfs árs fangelsi.
Hann var dæmdur til að greiða
stjúpdóttur sinni 1.800.000
krónur í miskabætur.
Maðurinn hefur starfað sem
fræðslustjóri Reykjanesbæjar
en er hann var dæmdur fyrir
þetta brot starfaði hann á
Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Um tíma starfaði hann sem
sálfræðingur á Vestfjörðum og var
hann þá kærður til lögreglu fyrir
kynferðisbrot gegn ungum dreng.
Sú kæra leiddi ekki til ákæru.
„Skólasamfélagið hérna logar“
Ekki er vitað á þessari stundu
hvort maðurinn hefur hafið
afplánun en hann mun hafa
áfrýjað málinu til Landsréttar.
Sambandið mun vera náið og
er á allra vörum sem starfa við
leikskóla og jafnvel grunnskóla í
Reykjanesbæ.
„Þetta er ekki bara umtalað
hjá leikskólastarfsfólki heldur
líka hjá grunnskólakennurum.
Skólasamfélagið hérna logar út
af þessu,“ segir önnur konan sem
ræddi við DV um málið. Hún segir
jafnframt: „Þetta er afskaplega
óheppileg staða. Hvernig myndi
hún bregðast við ef það kæmi inn
á borð til okkar mál sambærilegt
við hans mál? Maður að brjóta á
barni. Er henni treystandi til að
taka málstað barnsins þegar hún
hefur opinberlega tekið málstað
gerandans?“ Að sögn þessarar
konu trúir leikskólafulltrúinn á
sakleysi mannsins þrátt fyrir dóm
héraðsdóms.
„Minni réttlætiskennd og
siðferðiskennd er misboðið,“
segir konan jafnframt.
„Það má kannski segja að
þetta sé löglegt en þetta er
gjörsamlega siðlaust,“ segir hin
konan sem ræddi við DV vegna
málsins. „Það sem angrar mig
mest er að þessi kona skuli ekki
draga sig úr þessari vinnu ef
hún ætlar að halda við þennan
mann, því í þessari stöðu finnst
mér hún ótrúverðug. Mér finnst
þetta vera dómgreindarleysi.
Mér finnst líka að fólk í kerfinu
hér þurfi að vakna til vitundar
um þetta. Sættið þið ykkur við
þetta eða hvað ætlið þið að
gera? Ég vil þessum tveimur
manneskjum ekkert illt en þetta
jaðrar við siðblindu.“
Fyrirspurnum ekki svarað
Leikskólafulltrúi heyrir undir
Fræðsluráð Reykjanesbæjar
og sendi DV ráðinu fyrirspurn
vegna málsins. Var beðið um
almenn svör við því hvort
einhverjar reglur giltu um
einkalíf starfsmanna sem gætu
átt við um þær aðstæður sem
hér hafa skapast. Hvort til séu
reglur sem mæla gegn nánum
kynnum við aðila sem brotið
hafa gegn barni.
DV sendi einnig tölvupóst
á leikskólafulltrúann. Var hún
beðin um að bregðast við
því áliti starfsmannanna að
hún væri vanhæf til að meta
aðstæður þar sem grunur léki á
kynferðislegri misnotkun gegn
börnum vegna kynna sinna við
hinn dæmda.
Hvorugum tölvupóstinum
hafði verið svarað er DV fór
í prentun. DV reyndi einnig
margsinnis að hringja í
leikskólafulltrúann en ekki ekki
var svarað og hún hringdi ekki til
baka. Ef svör við fyrirspurnunum
berast síðar verða þeim gerð skil
í frétt á dv.is. n
„Er henni treystandi til að
taka málstað barnsins?
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is