Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 11
FÓKUS - VIÐTAL 111. nóvember 2019 hefur ýmislegt breyst. Hann hefur verið greindur með geðhvarfasýki 2 og er í bata frá átröskun. Í dag sér hann þó ekki eftir ákvörðun sinni. „Ég sé ekkert eftir því, bara ekki neitt,“ segir hann. Valgeir segir að það hafi ekki verið mikil hugsun á bak við ákvörðunina. Hann og vinkona hans sáu auglýsingu á Face- book frá fyrirtæki sem auglýsir megrunaraðgerðir utanlands og daginn eftir pöntuðu þau sér ferð út. „Ég hugsaði þetta eiginlega ekkert í þaula á þessum tíma,“ segir hann. Þau ákváðu að bíða fram yfir hátíðirnar 2017 og fóru í byrjun árs 2018 út í aðgerðina. „Við vorum ekki alveg tilbúin að sleppa jólamatnum, bæði mjög miklar bollur,“ segir Valgeir. Erfitt ferli „Á Íslandi kostaði aðgerðin 1,5 milljónir króna en ég borgaði 880 þúsund fyrir flug til Lettlands, hótel, keyrslu til og frá, túlk, að- gerðina sjálfa og fékk að taka eina manneskju með mér,“ segir Val- geir Tveimur vikum eftir aðgerð þurfti Valgeir að vera á fljótandi fæði og tveimur vikum eftir það á maukuðu fæði. Þetta reyndist honum afar erfitt og að eigin sögn átti Valgeir mjög óheilbrigt sam- band við mat. „Það var mjög erfitt. Tveimur vikum eftir aðgerð fékk ég svo mikla eftirsjá. Ég hugsaði hvað ég hefði í ósköpunum gert. Mað- ur getur ekki tekið þetta til baka. Eftir einhvern tíma varð ég svo sáttur, mjög sáttur við þetta,“ seg- ir Valgeir. „Ég held að það hafi tekið mig um þrjá mánuði að verða sáttur við þetta. Ég var ekki alla daga grenjandi uppi í rúmi því mig langaði í Toblerone,“ segir hann og hlær. „Ég varð saddur af des- ilítra af mat, en samt var haus- inn alveg að hugsa um mat. Því vandamálið var ekki hversu mik- ið ég borðaði eða hversu feitur ég var orðinn heldur var hausinn á mér vandamálið. Og ef maður vinnur ekki í honum þá hverfur vandamálið aldrei,“ segir Valgeir. Átröskun Um hálfu ári eftir aðgerð þróaði Valgeir með sér átröskun og lotu- græðgi. „Af því að maður er að grenn- ast er maður stöðugt að stíga á vigtina og sjá árangur. Svo lendir maður alltaf í einhverju þyngdar- stoppi. Og það er svo ógeðslega fúlt, eða mér fannst það, ég tala auðvitað bara út frá mér,“ segir Valgeir. „Ég gerði allt sem ég gat þá til að halda áfram að grennast og inni í því var að æla upp öll- um mat sem ég borðaði. Fyrst var það því ég borðaði of mikið og fékk samviskubit. Svo fór ég að æla upp öllu sem ég borðaði. Það var svo mikil brenglun í gangi í hausnum á mér,“ segir Valgeir og lýsir átröskuninni sem „brjálaðri búlimíu“. „Ég var svo orkulaus, mig svimaði, fékk aðsvif, var alltaf kalt, þetta var ekki þægilegt,“ seg- ir Valgeir og bætir við að þetta hafi einnig farið mjög illa með tennurnar og húðina. Hann glímdi við lotugræðgina í ár og hefur nú verið um ár í bata. „Það var ekkert eitt augnablik sem leiddi til þess að ég náði bata. Ég vaknaði bara einn daginn og hugsaði að ef ég héldi þessu áfram þá yrði ég handónýtur. Ég ákvað að hætta þessu og það var mjög erfitt. Ég þurfti að tala við geðlækninn minn og fá hjálp,“ segir Valgeir. Greining Valgeir var greindur með geð- hvarfasýki 2 í byrjun árs 2019. „Það útskýrði mjög margt fyrir mér. Eins og hvernig ég get tekið svona stórar ákvarðanir án þess að hugsa um afleiðingarnar. Ég sé engar afleiðingar þegar ég er svona hátt uppi. Ég vann í mér,“ segir hann. „Ég var alveg klárlega í maníu þegar ég pantaði mér ferðina til Lettlands og allan tímann með- an ég var úti. Ég var líka í bull- andi maníu þegar ég deildi þessu um Ladda. En ég er ekki að nota það sem afsökun en þegar ég er á þeim stað þá sé ég ekkert slæmt við það sem ég geri,“ segir Valgeir. Hann segist ekki vera kominn í fullkomið jafnvægi á lyfjunum en fari þó ekki eins mikið upp og hann gerði áður. Valgeir seg- ist hafa lesið sér til um átraskan- ir og megrunaraðgerðir og segir að það sé nokkuð algengt að fólk þrói með sér átröskun í kjölfar megrunaraðgerða. „Eins og fólk sem er eitthvað andlega veikt fyrir og fer í svona aðgerð, þetta er brjálæðislega mikið inngrip og rosalega mikil breyting á lífi manns, ef maður passar sig ekki og fylgist ekki með því, þá fer allt í rugl. Þetta er bara það sem ég hef lesið mér til um,“ segir Valgeir. Fitufordómar Valgeir tók eftir því að framkoma fólks í garð hans breyttist þegar hann grenntist. „Ég fékk miklu meiri athygli frá strákum og þá vildi ég ekkert fitna,“ segir Valgeir. „Það eru ákveðnir fitufordómar í samfélaginu sem er mjög slæmt, en ég viðurkenni að eftir að ég grenntist þá fékk ég alveg fitufor- dóma gagnvart öðrum.“ Aðspurður hvernig það gerð- ist segist Valgeir ekki vita það. „Ég get ekki útskýrt hvernig það gerðist. Af því að ég var byrj- aður að grennast og byrjaður að líta betur út og hugsa betur um sjálfan mig og svona, þá horfði ég á fólk í yfirþyngd og hugsaði: „Finnst þér þetta bara allt í lagi?“ Þetta er svo brenglað,“ segir Val- geir og viðurkennir að hann finni enn þá fyrir fitufordómum. „Ég þarf alveg að passa mig. Ég þekki marga sem hafa farið í magaermi og upplifa það sama.“ Svindl? Aðspurður hvað honum þyki um þá gagnrýni að fólk sem fer í megrunaraðgerðir sé að „svindla“ segir hann: „Upp að vissu marki er þetta alveg „svindlleið“ en burtséð frá því þá virkar þetta. Ef þú ert á leiðinni að drepast úr offitu, af hverju ekki þá að svindla? Það er ekkert að því að leita sér hjálp- ar á sviði eins og þessu af því að þetta er vandamál. Ef manneskja er orðin 45 ára og hefur aldrei náð að missa af sér aukakílóin, af hverju ekki að fara í þetta? Allt annað hefur greinilega ekki virk- að. Sjálfsaginn er ekki þarna til að ná að grennast, af hverju að fá ekki hjálp? Alveg eins og ef þú ert með skurð á fætinum, ferðu þá ekki til læknis? Þetta er alveg eins mikið vandamál og allt annað.“ Svuntuaðgerð „Ég var 120 kíló þegar ég fór í að- gerðina og í dag flakka ég á milli þess að vera 72 til 75 kíló,“ segir Valgeir. „Stærsti fylgikvillinn við þessa aðgerð, sem ég spáði ekkert í og held að enginn spái í áður en hann fer í hana, er öll þessi auka- húð sem maður fær eftir á. Þegar maður fer úr fötunum þá lítur maður út eins og bráðnað kerti. Það er bara ekki sexí,“ segir Val- geir og hlær. Hann fór til Tyrklands í svuntuaðgerð, fitusog og lét laga brjóstkassann. „Ég ákvað að fara til Tyrklands því það var þrisvar sinnum ódýrara en hérna heima. Ég borgaði í kringum 500 þús- und fyrir flug fram og til baka og keyrslu fyrir tvo, ég var með fylgdarmann, og aðgerðirnar.“ Laddi (ekki) látinn Við ræddum um Ladda og ástæðuna fyrir því að Valgeir sagði hann látinn, en eins og fyrr segir var Valgeir í maníu á þeim tíma en vill þó ekki nota það sem afsökun. „Mér til varnar, en kannski ekki til varnar, en þá bjó ég ekki myndina til,“ segir Valgeir og vís- ar í myndina sem hann deildi af Ladda sem gaf í skyn að hann væri látinn. „Ég sá myndina hjá öðrum manni í Keflavík, sem ég ætla ekki að nefna á nafn, og deildi þeirri mynd. En um leið og ég var búinn að því þá eyddi hann sinni mynd út, og það varð allt brjálað, fokking brjálað.“ Facebook-síða Valgeirs var og er opin þannig hver sem er gat séð færsluna. „Ég svaraði eng- um ummælum við myndina og svo fór sonur Ladda að skrifa við myndina og mér fannst mjög fyndið að eyða þeim ummælum. Ég veit ekki af hverju. Svo allt í einu sprakk þetta. Ég bjóst ekki við að þetta yrði svona, engan veginn,“ segir Valgeir. „Ég fékk alveg sjúklega mikið af haturspósti. Fólk var að segja hvað ég væri ömurlegur og ógeðslegur og hvað ég ætti aldrei að gera þetta. Vinnan mín fékk sendan póst um „þennan homma sem er að vinna þarna“ og bara endalaust.“ Aðspurður hvað honum hafi þótt um fjölmiðlaathyglina vegna málsins í kjölfarið segir Valgeir: „Mér fannst það alveg gaman. Ég elska alla athygli.“ Hann segir að hann hefði grunað að þetta myndi koma í áramótaskaupinu en ekki að þetta yrði svona stórt atriði. „Miðað við karakterinn sem átti að vera ég, þá fannst mér eins og þeir hefðu skoðað gaml- ar myndir af mér. Voru alveg með gleraugun á hreinu, og hár- ið. Þetta var mjög gott djók,“ seg- ir hann. Valgeir Elís er mjög virkur á samfélagsmiðlum og heldur úti opnum Snapchat-reikningi, @ valgeirelis. Það er einnig hægt að fylgjast með honum á Instagram @valgeirelis. n Gömul mynd af Valgeiri Elís og vinkonu hans, Sunnu Dís. M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N Valgeir Elís á útskriftardaginn með föður sínum og Dísu systur. Valgeir Elís í dag. Mynd: Instagram @valgeirelis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.