Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 49
PRESSAN 491. nóvember 2019
N
orður-Írar eru upp til
hópa mjög íhaldssam-
ir þegar kemur að trú-
málum. Nýlega urðu þau
merku tímamót þar í landi að
fóstureyðingar voru heimilaðar
sem og hjónabönd samkyn-
hneigðra. Margir fögnuðu þess-
um merku tímamótum sem voru
á þriðjudag í síðustu viku en aðr-
ir eru ósáttir og eiga erfitt með að
sætta sig við þessar breytingar.
Allt hófst þetta fyrir sex árum
þegar Sarah Ewarts, sem þá
var 23 ára, fékk þær upplýs-
ingar hjá læknum að barnið
sem hún bar undir belti myndi
deyja í síðasta lagi við fæðingu.
Henni var þó neitað um að fara
í fóstureyðingu því það stríddi
gegn norðurírskum lögum.
Hún neyddist því til að fara til
Lundúna þar sem hún gat far-
ið í fóstureyðingu. Hún fór síð-
an heim, fékk sér lögfræðing til
að reka málið og höfðaði mál.
Snemma í október komst dóm-
stóll í Belfast að þeirri niður-
stöðu að fóstureyðingarbannið
bryti gegn skyldum Breta til að
standa undir ákvæðum mann-
réttindasáttmála Evrópu.
Í júlí á þessu ári samþykkti
breska þingið að fella niður þau
ákvæði í norðurírskri löggjöf sem
gerðu fóstureyðingar refsiverðar.
Um leið var samþykkt að heim-
ila hjónabönd samkynhneigðra
sem og að samkynhneigðir megi
skrá sig í sambúð. Norðurírska
þingið, sem er hálflamað vegna
deilna milli hinna ólíku stjórn-
málaflokka, reyndi að koma í
veg fyrir lögin en án árangurs.
Með lögunum öðlast norð-
urírskar konur sömu réttindi
til fóstureyðinga og kynsystur
þeirra á Englandi, Skotlandi og
Wales hafa notið síðan 1967.
Þær þurfa þó enn um hríð að
fara til annarra hluta Bretlands
til að sækja þessa þjónustu og
það kostar stórfé og hafa margar
konur ekki efni á því. En í apríl
munu tvö sjúkrahús á Norður-
Írlandi byrja að veita þessa þjón-
ustu.
Fyrir gildistöku nýju laganna
var nær útilokað fyrir konur að
fá heimild til fóstureyðingar.
Ekki einu sinni nauðgun eða
sifjaspell dugðu til þess. Um 20
konur fengu heimild til fóstur-
eyðingar árlega. Talið er að þegar
sjúkrahúsin tvö byrja að bjóða
upp á þessa þjónustu muni rúm-
lega 1.000 konur nýta sér hana
árlega. Það lýsir því kannski vel
hversu heitar tilfinningar eru
í þessum málum að ákveðið
hefur verið koma upp ákveðnu
öryggissvæði í kringum sjúkra-
húsin þar sem andstæðingum
fóstureyðinga verður ekki heim-
ilt að mótmæla. n
Tímamót
á Norður-
Írlandi
Fóstureyðingar heimilaðar sem og hjónabönd samkynhneigðrabeðið Rússa um aðstoð í barátt-
unni við hryðjuverkasamtökin
sem kenna sig við Íslamska ríkið
og al-Kaída.
Náttúruauðlindir lokka
Í byrjun október komu 200
þungvopnaðir rússneskir mála-
liðar með þrjár herþyrlur sér til
stuðnings til Mósambík til að
leggja stjórnvöldum lið í bar-
áttunni við íslamista sem hafa
herjað á landið síðustu tvö ár.
Þeir hafa ráðist á þorp og myrt
óbreytta borgara og stökkt mörg
hundruð manns á flótta. Þetta
hefur átt sér stað í Cabo Delgado-
héraðinu en þar fundust miklar
gaslindir fyrir um áratug.
Þrátt fyrir að Afríka sé smá-
vaxin þegar horft er til efna-
hagsmála á heimsvísu eru aug-
ljósir, efnahagslegir hagsmunir
sem laða Rússa að álfunni. Rúss-
neskur iðnaður hefur þörf fyrir
ýmis náttúruleg hráefni sem
Afríka er auðug af. Rússnesk
orkufyrirtæki hafa um langa
hríð starfað í Kamerún, Gana
og Nígeríu. Afrískur efnahagur
er á góðri siglingu og það skap-
ar nýja möguleika fyrir rúss-
nesk fyrirtæki. Á næsta ári hefst
bygging á rússnesku kjarnorku-
veri í Egyptalandi. Í Simbabve
aðstoða Rússar heimamenn við
að nýta stærstu platínuvinnslu
heims.
Pútín segir þó að áhugi Rússa
á Afríku sé meiri en bara á efna-
hags- og hernaðarsviðinu. Á
fyrrnefndum fundi í Sotji sagði
hann að Rússar geti boðið
Afríku ríkjum efnahagsaðstoð,
mannúðaraðstoð og lagt þeim
lið í baráttunni við sjúkdóma og
eflt menntun. Til að auka áhuga
afrískra leiðtoga á samvinnu við
Rússa hafa Rússar heitið að fella
niður hluta af skuldum ríkjanna.
Pútín hefur sagt að nú þegar hafi
Rússar fellt niður skuldir upp á
20 milljarða dollara frá tímum
Sovétríkjanna. n
n Næsta verkefni Pútín er risavaxið n Á síðustu fimm árum hafa Rússar gert öryggissamninga við 23 Afríkuríki
Stórtækur Nú hyggur Pútín
á enn frekari landvinninga.