Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 60
60 FÓKUS 1. nóvember 2019 Hver eru þín bestu kaup í Costco? Viðskiptavinir leysa frá skjóðunni n Eldsneyti og klósettpappír vinsælt n Leikföng í yfirstærð það skrítnasta „Ég keypti frábæra plöstun- arvél í Costco, hræódýra, um tvö þúsund og fimm hund- ruð krónur. Hún hitnar hratt og plastar vel, æðisleg fyrir alls konar föndur og snið- ug til að plasta myndir sem börnin gera og mann langar að varðveita.“ „Þvottaefni, bæði í föstu og fljótandi formi er frábært í Costco. Stóru Tork-eldhús- rúllurnar eru sömuleiðis mögnuð kaup og pítsurnar þarna eru líka mjög góðar.“ „Já, ég fjárfesti einmitt í þessum ísbíl líka fyrir dóttur mína í þriggja ára afmælis- gjöf í fyrra. Græjan sló heldur betur í gegn og hefur verið í daglegri notkun síðan. Þetta er án efa það leikfang sem er mest notað á heimilinu auk þess að vera afar vinsælt hjá gestum af yngri kyn- slóðinni. Herlegheitin kostuðu í kringum fimm þúsund og hljóta því að flokkast sem sannkölluð kjarakaup.“ „Mín bestu kaup hjá Costco er eflaust eldsneytið enda færðu það ekki ódýrara – það munar þrjátíu krónum á lítranum samanborið við aðra staði. Að því sögðu er ekkert alltaf ódýrast að versla í Costco en þú getur gengið að gæðunum vísum hjá þeim. Ég og aðrir sem ég þekki og versla þar segjum að fara í Costco er að fara í annan heim, allt er svo mikið og stórt og það eykur ánægjuna af að versla þar. Þú sérð ánægju í andliti fólks sem verslar í Costco sem þú varst hættur að sjá. Ávextir og grænmeti er fyrsta flokks sem fólk hafði ekki séð nema erlendis þar til Costco kom hingað til lands. Það er ein af ástæðum þess að viðskiptavinir eru svona ánægðir.“ „Ég á níu ára stelpu sem heldur að hún sé 35 ára og þráir fátt meira en að lesa bækur á ensku. Þar kemur Costco eins og bjarg- vættur og læt- ur mig líta út eins og bestu mömmu í heimi.“ 1. Leikföng „Börnin myndu þó segja dótið, enda er oft hægt að finna sniðugt dót á góðu verði. Við kaupum til að mynda mikið af litum í Costco og afmælis- og jólagjafir, það hentar ótrú- lega vel því körfurnar eru á stærð við sendiferðabíl.“ „Ég veit ekki hvort það flokkist sem bestu kaupin en þau kaup sem hafa vakið hvað mesta lukku og verið í langmestri notkun er Frozen-kastali sem ég keypti fyrir dóttur mína í af- mælisgjöf. Skemmst frá því að segja að flykkið fyllir upp í hálft barnaherbergið og myndi seint teljast Instagram-fallegt en börnin elska hann og geta endalaust leikið sér, þar sem hvers kyns barbie-, pony- og aðrar fígurur fá þak yfir höfuðið.“ „Vinsælast núna eru klárlega leikföngin og blessað jóladótið. Að mínu mati geta bestu kaup- in líka verið bestu tilboðin. Mér finnst hugsunin hjá Costco vera sú að gera gott fyrir alla og það tekst vel með þeim vöruflokkum sem þar er boðið upp á. Annars finnst mér verslunin vera að toppa sig þetta árið þegar kem- ur að leikföngum en hún er líka að verða sífellt betri þegar kem- ur að mat- og sérvöru.“ „Um síðustu jól freistuðumst við til þess að kaupa stóra bangsann sem flestir alvöru Costco-unnendur kannast eflaust við. Hann var jólagjöf fyrir dætur okk- ar en þær voru lengi búnar að óska eftir honum. Það reyndst svo þrautin þyngri að fela hann fyrir þeim næstu tvo mánuði fyrir jól enda plássfrekur svo ekki sé meira sagt. Þær hafa síðan þá skipst á að sofa með hann í rúmunum sínum þar sem hann hendir þeim reglulega fram úr.“ „Dótið allan daginn enda er ég löngu hættur að fara í venjulegar dótabúðir.“ Þ að mikla það margir fyrir sér að mæta á mannmarga staði enda getur það valdið taugaveiklun að vita ekki hvorum megin við afgreiðslu- borðið sé best að standa eða hvaða tilboðum borgi sig að fjár- festa í. Costco er óumdeilanlega einn slíkra staða enda er úrval- ið mikið og oft erfitt að þverfóta þar inni fyrir verslunarglöðum viðskiptavinum. Til að auðvelda áhrifagjörnum valkvíðasjúkling- um leitina fengum við ráð frá nokkrum fastakúnnum keðjunn- ar um þeirra bestu kaup í Costco. Íris Hauksdóttir iris@dv.is 2. Hreinslætisvörur 3. Ísvagninn 4. Bensín 5. Bækur Knúsandi apar Þessi eru vinsælir meðal álits- gjafa DV. Vá Margir tóku andköf þegar að Frozen-kastalinn mætti á svæðið. Stór og stæðilegur Frægi Costco-bangsinn. Bensínið heillar Það er sjaldséð að sjá bensínplanið tómt þegar er opið í Costco. „Bestu kaupin að mínu mati eru klár- lega klósettpappírinn, hreinlætisvör- ur, bakkelsið, allar Kirkland Signat- ure-vörurnar ásamt ýmiss konar sérvörum, fötin og að sjálfsögðu lyfin.“ „Dettol-þvottasótthreinsirinn er algjör snilld. Það hefur ekki komið vond lykt í þvottinn hjá mér síðan ég byrjaði að nota þetta, hent- ar bæði fyrir íþróttaföt, dökkan fatnað sem og kúka- og æluvélarnar sem ég er mikið að vinna með þessa dagana. Mæli með.“ „Ég keypti líka ísvagn fyrir litla frænku sem sló heldur betur í gegn.“ „Ég fylli alltaf á bílinn.“ „Harry Potter-bóka- settið flokkast án efa undir bestu kaup sem ég hef gert í Costco. Ég var búin að setja það í og taka úr Amazon-körf- unni minni í nokkur ár en gat aldrei rétt- lætt sendingarkostn- aðinn enda frekar þungt stöff. Ég var því afar hamingju- söm þegar ég sá það í Costco fyrir jólin í fyrra á tæpan sex þúsund kall.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.