Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 34
Ferðafélag Íslands Hálendi Íslands færist senn í vetrarbúning og aðstæður geta breyst með skömmum fyrirvara. Fyrir nokkru var fannhvít jörð en snjónum hefur að mestu rignt burtu. Skálar hafa komið vel undan sumri og undirbúningur fyrir vetrarlokanir nú í fullum gangi við oft erfiðar aðstæður. Eins og veðrið var gott var gott í sumar þá hefur tíðin í haust verið ristjótt eins og gengur og verið úrkomusamt á köflum. Lokanir skála Nú hefur öllum skálum FÍ verið lokað nema í Landmannalaugum. Fylgjast vel með aðstæðum Gott er að fylgjast með heimasíðu Vegagerðarinnar, þar er hægt að sjá færð og aðstæður á fjallvegum. Heimasíða Veðurstofunnar er mjög mikilvæg fyrir ferðamenn. Einnig er vert að minnast á Safetravel, þar er einnig hægt að fá góðar upplýsingar um mikilvæga hluti sem snúa að ferðalagi á hálendi, svo sem aðstæður, opnanir og lokanir vega. Heimasíða Vegagerðarinnar: vegagerdin.is Heimasíða Veðurstofunnar: vedur.is Heimasíða SafeTravel: safetravel.is Á árum áður var fátítt að menn ferðuðust um landið sér til skemmtunar. Lífsbaráttan var hörð og lítið tóm gafst til slíkra ferða. Þekking almennings á landinu var mjög af skornum skammti. Tilgangur með stofnun Ferðafélags Íslands var m.a. að opna og kynna landið fyrir almenningi og greiða götu ferðamanna. Stofnun félagsins 1927 kom á góðum tíma. Þrá landans eftir sjálfstæði, framförum, breyttum lífsháttum sem og þjóðin var að aðlaga sig að siðum og venjum nágrannaþjóða á sem flestum sviðum. Um leið voru fleiri landsmenn áhugasamari um að styrkja andlegan þrótt og líkamlegt hreysti.Þegar í upphafi var lagður grunnur að kjörsviðum félagsins, tilgangi og markmiðum. Í dag, 90 árum síðar eru þau enn þau sömu. Stærstu verkefnin eru að hvetja fólk til að fara út og kynnast náttúru landsins, opna gönguleiðir, byggja skála og aðstöðu fyrir ferðamenn. Á síðustu árum hafa fjallaverkefni, lýðheilsu – og heyfiverkefni sem og Ferðafélag barnanna og FÍ ung notið mikilla vinsælda. Árbók félagsins hefur nú komið út í óslitinni röð í 90 ár oger einstakur bókaflokkur um land og náttúru. Árbók er ein nákvæmasta íslandslýsing sem völ er á, skrifuð af heimamönnum og fræðimönnum sem gjörþekkja það svæði sem fjallað er um hverju sinni. Félagið gefur einnig út gönguleiðarit, landakort og sérrit af ýmsu tagi. Náttúruvernd hefur ávallt verið á stefnuskrá félagsins. Með því að kynna og opna landið fyrir almenningi er unnið mikilvægt starf til að auka náttúruvitund fólks. Því betur sem við þekkjum náttúru landsins þeim mun vænna þykir okkur um landið og skiljum þau verðmæti sem felast í ósnortnum víðernum, landslagsheildum og öræfakyrrð. Fararstjórahópur félagsins er fjölbreyttur. Félagsmenn úr öllum áttum m.a. úr röðum fræðimanna innan háskólasamfélagsins, heimamenn sem gjörþekkja og úr hópi áhugamanna sem aflað hafa mikillar reynslu og þekkingu. Allur þessi hópur á það sameiginlegt að elska landið og hefur yndi af ferðum og miðlar af þekkingu sinni. Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag. Sjálfboðaliðastarf hefur í áratugi gert starf félagsins mögulegt. Sjálfboðaliðarnir og ekki síst forystufólk félagsins í 90 ár hafa verið frumkvöðlar og hugsjónafólk með með stóra drauma og framtíðarsýn. Þannig hafa verið byggðir 40 fjallaskálar, lagðir tugir gönguleiða, reistar yfir 60 göngubýr og farnar yfir 4000 ferðir með yfir 250.000 þátttakendum og gefnar út bækur í 90 ár. Segja má að þetta starf félagsins hafi einkennst af samfélagslegri ábyrgð í þágu almennings og þjóðarinnar. Ferðafélag Íslands  FRUMKVÖÐLAR MEÐ HUGSJÓNIR OG FRAMTÍÐARSÝN Hálendið og lokanir skála Allir í takt á leið niður af Snæfellsjökli FÍ Ung að síga niður kókflöskuna Skagafjörðsskáli Langadal Góð aðferð við að vaða ár er að krækja saman höndum, mikilvægt er að vera búinn að losa bakpokann og hafa hann lausan á öxlunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.