Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 40
01. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐGæði VALLARBRAUT: Öflugur innflutningsaðili landbúnaðartækja Vallarbraut ehf. er tiltölulega ungt fyrirtæki og var upphaflega stofnað utan um ræktun á Galloway-holdanautum. Sú starfsemi leiddi síðan til þess að farið var í innflutning á skítadreifurum. Síðan þá hefur innflutningsstarfsemin aukist jafnt og þétt samhliða því sem dregið hefur verið úr kjötframleiðslunni. Í dag er meginstarfsemin orðin innflutningur á alls kyns vélum og tækjum. Í dag er Vallarbraut til húsa í Trönuhrauni 5 í Hafnarfirði þar sem verið er að leggja lokahönd á sýningarsal og verkstæðisaðstöðu. „Skítverkin“ þeirra fag „Við erum öflugir í „skítverkum“ og hefur Vallarbraut flutt inn og selt mikið af haugsugum og skítadreifurum frá Belmac,“ segir Jón Valur Jónsson, annar eigenda Vallarbrautar. „Vallarbraut er eina fyrirtækið hérlendis sem býður upp á drifskaftslausar haugsugur en drifsköft valda oftast alvarlegustu slysunum í landbúnaði. Við getum boðið upp á breitt úrval af stærðum og flesta helstu dráttarvélaliti svo bóndinn geti verið með haugsugu í stíl við traktorinn. Auk þess sem við bjóðum upp á galvaníseraðar haugsugur og skítadreifara. Frá Indlandi flytjum við inn SOLIS- dráttarvélar og hafa þær sannað sig sem ódýr og hagkvæmur kostur fyrir bændur og „hobbýbændur“,“ segir Jón Valur. „Nýlega kynntum við nýja og betur búna 50 hestafla vél með vönduðu húsi. Einnig er vert að minnast á Royal Enfield-mótorhjólin frá Indlandi en nýja 650 cu-hjólið frá þeim hefur náð þeim árangri að verða eitt mest selda mótorhjólið í Bretlandi. Hérlendis hafa Himalayan- endurohjólin selst best hjá okkur.“ Vallarbraut hefur stækkað nokkuð hratt og náði því að verða annað söluhæsta fyrirtækið í sölu á vörubílsvögnum. Síðastliðið sumar valdi EIMSKIP gámagrindur frá Vallarbraut og voru fyrstu 6 grindurnar afhentar fyrir stuttu. Sennilega býður Vallarbraut upp á sterkustu kerrurnar á íslenskum kerrumarkaði og hefur 3.500 kg. sturtukerran frá norðurírska fyrirtækinu NUGENT verið sölhæsta kerran hjá þeim sl. 3 ár. Enda er það kerra sem útbúin er vökvatjakk með 8 tonna lyftigetu. Nýverið gerði NUGENT samanburð á sínum kerrum og tveimur öðrum merkjum sem eru seld hérlendis. Sett var 5.000 kg. farg á allar kerrurnar og þær látnar standa, eftir 24 tíma var NUGENT- kerran sú eina sem lyfti farginu. Glæsilegar nýjungar Vallarbraut leitast sífellt við að bæta vöruúrvalið en reynir þó að fara ekki langt út fyrir sitt þekkingarsvið. „Nýverið hófum við að selja fylgihluti fyrir pallbíla og sendibíla og erum komnir með umboð fyrir TRUCKMAN-plasthús frá Bretlandi og DECKED-pallskúffur frá Bandaríkjunum,“ segir Jón Valur. TRUCKMAN býður upp á fjölbreytt úrval plasthúsa fyrir allar gerðir evrópskra og asískra pallbíla og koma húsin með öllum hugsanlegum aukabúnaði svo sem afturrúðuhitara, inniljósi og „central“-læsingu. DECKED býður upp á frábærar fullútdraganlegar skúffur fyrir allar gerðir pallbíla og margar gerðir stærri sendibíla. Helsti kostur þeirra er að notkun á palli skerðist ekkert því hægt er að setja 1.000 kg. ofan á skúffurnar. „Ég held að flestir iðnaðarmenn kannist við að þurfa færa til eða róta til drasli til að flytja efni eða vörur,“ segir Jón Valur. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni www.vallarbraut. is eða á Facebook-síðu þeirra Vallarbraut. Svo má einnig geta þess að Vallarbraut er með Youtube-rás sem finna má undir nafninu VALLARNAUT Auk þess er hægt að heyra í þeim í síma síma 841-1200 og 841- 7300 eða í gegnum tölvupóst á vallarbraut@vallarbraut.is Skítadreifari af stærri gerðinni SOLIS 50 og tvöföld NUGENT greip spara tíma við hirðing u og gjafir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.