Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 24
24 1. nóvember 2019FRÉTTIR Þ að virðist vera að karllægari fyrirtæki vilja oft velja sér kvenmanns- rödd. Hún er ekki jafn stuðandi og þú tekur henni ekki sem jafn mikilli árás,“ segir hljóð- maður og upptökustjóri á stórri íslenskri auglýsingastofu. Þegar kemur að vali á röddum fyrir aug- lýsingar byggir íslenskt markaðs- fólk ákvörðun sína oftar á tilfinn- ingu heldur en fræðum: röddin einfaldlega passar viðkomandi vöru eða þjónustu. Karlraddir þykja endurspegla traust á með- an kvenraddir milda hlutina. Þetta er meðal þess sem kem- ur fram í niðurstöðum rannsókn- ar Stefáns Friðriks Stefánssonar í tengslum við BA-ritgerð hans við félagsvísinda- og lagadeild Há- skólans á Bifröst. Í tengslum við rannsóknina ræddi Stefán við fjóra einstaklinga sem sinna hin- um ýmsu störfum innan auglýs- ingastofa og fyrirtækja á Íslandi; hljóðmann og upptökustjóra á stórri auglýsingastofu, við- skiptastjóra hjá markaðsfyrir- tæki sem sérhæfir sig í auglýsing- um og kynningarefni sem birt er á netinu, markaðsstjóra hjá fyrir- tæki sem sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu og að lokum markaðsstjóra hjá stórri alþjóð- legri pítsakeðju hér á landi. Var markmið rannsóknarinnar að komast að því hvernig málum væri háttað hérlendis og erlend- is við val á slíkum röddum og af hverju, en Stefán tekur fram að engar slíkar rannsóknir séu til um þetta málefni á Íslandi. „Kvenröddin fer oftar í taugarnar á fólki“ En finnst markaðsfólki á Íslandi það skipta neytendur máli af hvoru kyninu röddin er þegar sér- stakir vöruflokkar eru auglýstir? Í viðtölunum kemur fram að ef markhópurinn er einungis konur, þá eigi kvenrödd að lesa auglýs- ingarnar og ef markhópurinn er einungis karlar, þá eigi karl- rödd að lesa þær auglýsingar. Ef varan er hins vegar kynlaus og á að höfða til beggja markhópa, þá skiptir ekki máli hvort kynið les auglýsinguna. Þegar kom að umræðu um áferð raddanna var ljóst að karlröddin endurspeglar traust. Viðmælendur eru þó ekki sammála um hvað kvenröddin endurspeglar. Í niðurstöðum Stefáns kemur fram að einn umræðupunktur viðtalsins hafi verið hvernig til- finning viðmælanda sé gagnvart því hvort karlrödd eða kvenrödd sé oftar notuð í auglýsingalestri og reyndust svörin mismunandi. Markaðsstjóri heilsuvöru- fyrirtækisins segist til að mynda hafa það á tilfinningunni að karlar væru oftar notaðir í aug- lýsingalestri, en viðskiptastjóri markaðsfyrirtækisins segist hafa það tilfinningunni að kvenraddir væru meira notaðar í dag. Þá seg- ir hann að í mörgum tilfelli merki karlröddin „meira traust fyrir til- tekin fyrirtæki, eins og til dæmis bankaþjónustu.“ Á meðan nefnir upptökustjór- inn að karlröddin þýði „meira vald og traust“ en vill þó meina að vald sé ekki endilega góð- ur hlutur til að hafa í auglýsing- um. Á meðan telur markaðsstjóri pítsafyrirtækisins að kynið skipti í raun ekki máli í auglýsingalestri. Hægt sé að ná mismunandi blæ- brigðum og áherslum sama hvort kynið sé notað. Lykilatriði sé frammistaða leikaranna, sem skipti máli. Markaðsstjóri heilsuvöru- fyrirtækisins segir betra að nota karlrödd vegna þess að „kven- röddin er oft skrækari og fer oft- ar í taugarnar á fólki.“ Karlröddin hafi þann eiginleika að vera dýpri og róandi og veki þar af leiðandi meira traust. „Aðeins minna pungapartí“ En hvað hefur kvenröddin þá fram yfir karlröddina? Viðskiptastjóri markaðsfyrir- tækisins segir kvenröddina hafa mýkri hlið og geti líka táknað gæði. Nefnir hann sérstaklega snyrtivörur ætlaðar konum í því samhengi. Upptökustjórinn seg- ir að kvenröddin hafi þann eigin- leika að getað „mildað hlutina“ og þau fyrirtæki og stofnanir sem séu karllægar notist frekar við kven- röddina til „gera hlutina aðeins mýkri og aðeins minna punga- partí“. Þá sé notkun á kvenrödd- um meira í tísku og hún henti vel stórum fyrirtækjum og stofnun- um. Kvenröddin sé „minni árás og ekki jafnstuðandi“ miðað við að ef karl væri að lesa sömu skila- boð. Fólk taki upplýsingunum öðruvísi ef karl les skilaboðin. Markaðsstjóri pítsafyrirtæk- isins segir hins vegar að það sé klisja að kvenröddin sé blíðari en karlröddin. Spurningin sé alltaf hvernig röddinni sé beitt. Hægt sé að ná sömu tilfinningu með kven- rödd og karlrödd og þannig skipti kyn ekki máli. Þekktir eða óþekktir? Viðmælendur í rannsókninni voru einnig spurðir hvort það væri betra að nota fræga eða þekkta leikara til að lesa auglýs- ingar fyrirtækja eða stofnana. Viðskiptastjóri markaðsfyrir- tækisins segir að honum finnist ekki betra að nota þekkta einstak- linga eða leikara til að lesa aug- lýsingar, enda væri búið að „of- nota svo marga“. Á meðan segir markaðsstjóri pítsafyrirtækis- ins að þau notist við leikara sem sína rödd og hann væri alls ekki of þekktur, sem væri jákvætt. Röddin væri því andlitslaus. Upp- tökustjórinn telur hins vegar ekki að það skipti máli svo framarlega sem fólk þekki ekki röddina í aug- lýsingunni. Hann nefnir leikkon- una Þórunni Clausen og „Dóa“ (Halldór Gylfason) sem lesa inn á „aðra hverja“ auglýsingu. „Ef fólk heyrir lottóauglýsingu og svo Hagkaupsauglýsingu, þá er það ekki endilega að kveikja að þetta sami gæinn.“ Allir viðmælendur nema upp- tökustjórinn segjast vilja nota kvenraddir fyrir vörur sem væru einungis ætlaðar konum eins og til dæmis snyrtivörur fyrir konur. Sömu sögu er að segja um karl- raddir. Í þeim vöruflokkum sem ætlaðir væru karlmönnum eins og til dæmis raksápu, sé best að nota karlraddir. Íslenskt markaðsfólk með puttann á púlsinum Í niðurstöðum segir Stefán það hafa verið áhugavert að sjá hvað viðmælendurnir voru almennt sammála um marga hluti sem ýti stoðum um verklag og hugarfar markaðsfólks á Íslandi er kemur að vali á röddum. „Íslenskt markaðsfólk virðist vera með puttann á púlsinum og byggja sína þekkingu á samræð- um við annað markaðsfólk. Enda er markaðsfólk á Íslandi duglegt að hittast og bera saman bækur sínar. Ekki má gleyma að verk markaðsfólks, hvort sem það er myndefni, prentauglýsingar eða aðrar auglýsingar, eru fyrir aug- um allra og því hægt að læra af því sem vel er gert og því sem miður fer. Þannig getur umhverfi þeirra verið góður skóli. Það er því ljóst að markaðsfólk á Íslandi er fag- legt í sinni nálgun, þó að stór hluti starfs þeirra byggi á tilfinn- ingu fyrir hlutunum því einhvers staðar hljóta þessar tilfinningar að eiga uppruna sinn.“ n Hvernig velja aug- lýsendur raddir? „Kvenröddin fer oftar í taugarnar á fólki Tímaskekkja? Einn markaðsstjóri segir að í mörgum tilfelli þýði karl- röddin „meira traust fyrir tiltekin fyrirtæki, eins og til dæmis bankaþjónustu.“ Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is n Stefán ræddi við íslenskt markaðsfólk um val á auglýsingaröddum n Karlröddin endurspeglar traust en kvenröddin er „ekki jafn stuðandi“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.