Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 40
01. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐGæði
VALLARBRAUT:
Öflugur innflutningsaðili
landbúnaðartækja
Vallarbraut ehf. er tiltölulega ungt fyrirtæki og var upphaflega stofnað utan um
ræktun á Galloway-holdanautum.
Sú starfsemi leiddi síðan til
þess að farið var í innflutning á
skítadreifurum. Síðan þá hefur
innflutningsstarfsemin aukist jafnt og
þétt samhliða því sem dregið hefur
verið úr kjötframleiðslunni. Í dag er
meginstarfsemin orðin innflutningur á
alls kyns vélum og tækjum.
Í dag er Vallarbraut til húsa í
Trönuhrauni 5 í Hafnarfirði þar
sem verið er að leggja lokahönd á
sýningarsal og verkstæðisaðstöðu.
„Skítverkin“ þeirra fag
„Við erum öflugir í „skítverkum“
og hefur Vallarbraut flutt inn
og selt mikið af haugsugum
og skítadreifurum frá Belmac,“
segir Jón Valur Jónsson, annar
eigenda Vallarbrautar.
„Vallarbraut er eina fyrirtækið
hérlendis sem býður upp á
drifskaftslausar haugsugur en
drifsköft valda oftast alvarlegustu
slysunum í landbúnaði. Við
getum boðið upp á breitt úrval
af stærðum og flesta helstu
dráttarvélaliti svo bóndinn geti
verið með haugsugu í stíl við
traktorinn. Auk þess sem við
bjóðum upp á galvaníseraðar
haugsugur og skítadreifara.
Frá Indlandi flytjum við inn SOLIS-
dráttarvélar og hafa þær sannað sig
sem ódýr og hagkvæmur kostur fyrir
bændur og „hobbýbændur“,“ segir
Jón Valur. „Nýlega kynntum við nýja
og betur búna 50 hestafla vél með
vönduðu húsi.
Einnig er vert að minnast á Royal
Enfield-mótorhjólin frá Indlandi en
nýja 650 cu-hjólið frá þeim hefur
náð þeim árangri að verða eitt
mest selda mótorhjólið í Bretlandi.
Hérlendis hafa Himalayan-
endurohjólin selst best hjá okkur.“
Vallarbraut hefur stækkað
nokkuð hratt og náði því að verða
annað söluhæsta fyrirtækið í sölu
á vörubílsvögnum. Síðastliðið
sumar valdi EIMSKIP gámagrindur
frá Vallarbraut og voru fyrstu 6
grindurnar afhentar fyrir stuttu.
Sennilega býður Vallarbraut upp
á sterkustu kerrurnar á íslenskum
kerrumarkaði og hefur 3.500
kg. sturtukerran frá norðurírska
fyrirtækinu NUGENT verið
sölhæsta kerran hjá þeim sl. 3 ár.
Enda er það kerra sem útbúin er
vökvatjakk með 8 tonna lyftigetu.
Nýverið gerði NUGENT
samanburð á sínum kerrum og
tveimur öðrum merkjum sem eru
seld hérlendis. Sett var 5.000 kg.
farg á allar kerrurnar og þær látnar
standa, eftir 24 tíma var NUGENT-
kerran sú eina sem lyfti farginu.
Glæsilegar nýjungar
Vallarbraut leitast sífellt við að
bæta vöruúrvalið en reynir þó
að fara ekki langt út fyrir sitt
þekkingarsvið.
„Nýverið hófum við að selja
fylgihluti fyrir pallbíla og sendibíla
og erum komnir með umboð fyrir
TRUCKMAN-plasthús frá Bretlandi
og DECKED-pallskúffur frá
Bandaríkjunum,“ segir Jón Valur.
TRUCKMAN býður upp á
fjölbreytt úrval plasthúsa fyrir
allar gerðir evrópskra og asískra
pallbíla og koma húsin með öllum
hugsanlegum aukabúnaði svo
sem afturrúðuhitara, inniljósi og
„central“-læsingu.
DECKED býður upp á frábærar
fullútdraganlegar skúffur fyrir allar
gerðir pallbíla og margar gerðir
stærri sendibíla. Helsti kostur þeirra
er að notkun á palli skerðist ekkert
því hægt er að setja 1.000 kg. ofan
á skúffurnar. „Ég held að flestir
iðnaðarmenn kannist við að þurfa
færa til eða róta til drasli til að flytja
efni eða vörur,“ segir Jón Valur.
Nánari upplýsingar má nálgast á
heimasíðunni www.vallarbraut.
is eða á Facebook-síðu þeirra
Vallarbraut. Svo má einnig geta
þess að Vallarbraut er með
Youtube-rás sem finna má undir
nafninu VALLARNAUT
Auk þess er hægt að heyra í þeim
í síma síma 841-1200 og 841-
7300 eða í gegnum tölvupóst á
vallarbraut@vallarbraut.is
Skítadreifari af stærri gerðinni
SOLIS 50 og tvöföld NUGENT greip
spara tíma við hirðing u og gjafir.