Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 34
Vetur 15. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
CUT MOBILE:
Við komum, klippum og sigrum!
Cut Mobile er aeinstök nýjung á íslenska hársnyrtimarkaðnum og er líklega sniðugasta
uppfinningin síðan menn fóru að
selja lýsi í perluformi. Cut Mobile
býður upp á herraklippingu og
skeggsnyrtingu með heimsendingu
innan höfuðborgarsvæðisins. „Við
veitum þjónustu til einstaklinga og
fyrirtækja, mætum á staðinn og
klippum alla fína og flotta,“ segir
Sigurður Stefán Flygering, sem
stofnaði Cut Mobile með Gabríel
Gíslasyni í ágúst síðastliðinn.
Hugmyndin að Cut Mobile varð
til árið 2016 þegar Gabríel mætti
heim til félaga síns og klippti hann.
Sigurður, bróðir félagans, vaknaði
við það að bankað var upp á hjá
honum og var honum boðið að fara
næst í stólinn. Hann áttaði sig fljótt
á því að þarna hefði hann fengið
þjónustu sem hann hefði klárlega
nýtt sér sjálfur, ef hún væri í boði
fyrir almenning. Klipping var honum
alger kvöð. Bílaumferðin var eitt, en
að bíða á biðstofu með bunka af
fimm ára gömlum slúðurtímaritum
var sérstök píning að hans mati.
„Hugmyndin kitlaði svo enn árið
2019 og ákváðum við því að setja
allt á fullt og koma fyrirtækinu á
laggirnar.“
Sáraeinfalt að láta særa
„Ferlið hjá Cut Mobile er afar einfalt.
Þú ferð inn á CutMobile.com eða
hringir í síma 454-5400, finnur
lausan tíma og gengur frá pöntun.
Rakarinn mætir svo á uppgefið
heimilisfang, með öll verkfæri og
góða skapið og sér til þess að
menn séu vel snyrtir. Það er okkur
mikilvægt að fólk séu ánægt með
þjónustuna og klippinguna og við
skiljum við svæðið eins og við komum
að því, þ.e. þrif eru innifalin.“
Cut Mobile hársnyrtiþjónustan
hefur gengið vonum framar. „Það
eru margir sem vita ekki af okkur
og við erum enn að breiða út
boðskapinn. Það bætist þó sífellt í
kúnnahópinn okkar og er virkilega
gaman að sjá viðbrögð hjá fólki
þegar það nýtir sér þjónustuna.
Öllum finnst þetta þrælsniðugt.
Við höfum fengið gríðarlega
góð viðbrögð og okkur þykir fátt
skemmtilegra en að lesa þær fallegu
umsagnir sem við höfum fengið, en
þær má lesa á síðunni okkar.“
Herraklippingar fyrir
starfsandann
Cut Mobile býður einnig upp
á fyrirtækjaþjónustu með
herraklippingar, hvort heldur er fyrir
sérstök tilefni eins og árshátíðir, eða
reglulegar heimsóknir. „Við fórum
af stað með fyrirtækjaþjónustuna í
október og höfum farið í heimsóknir
til nokkurra fyrirtækja, allt frá litlum
fyrirtækjum upp í stórfyrirtæki.
Klipping er mikilvæg og bætir
almenna líðan, en er í leiðinni afar
tímafrek. Fjarvera starfsmanna sem
fara reglulega og eðlilega í klippingu
er þónokkur þar sem akstur,
umferð og bið tekur eflaust mesta
tímann, þ.e. hjá herrunum. Getur
klipping kostað fyrirtæki tvo tíma af
vinnuframlagi starfsmanns á þriggja
vikna fresti, sem er algeng tíðni vel
snyrtra herra.
Með fyrirtækjaþjónustu Cut
Mobile eru allir karlarnir í fyrirtækinu
vel snyrtir og í leiðinni minnkar
fjarvera starfsmanna. Við bjóðum
fyrirtækjum að greiða mótframlag
að eigin vali, til að gera vel við
starfsmenn og hvetja þá til að nýta
þjónustuna. Með þessu fyrirkomulagi
þá græða allir. Vel hefur verið tekið
á móti okkur í heimsóknum okkar og
eru starfsmenn þeirra fyrirtækja
sem við höfum verið að sinna mjög
ánægðir. Einnig eru stjórnendur
fyrirtækjanna ánægðir með
fyrirkomulagið og að þessi þjónusta
sé loksins í boði. Ert þú með fyrirtæki
sem hefur áhuga á þjónustu Cut
Mobile? Hafðu samband við okkur í
síma eða á contact@cutmobile.com
og við finnum skemmtilega lausn
fyrir þitt fyrirtæki.“
Eru herrarnir í þínu lífi vel snyrtir?
Gjafabréf eða árskort hjá Cut Mobile
er tilvalin gjöf fyrir herrana, hvort sem
um er að ræða jólagjöf, afmælisgjöf
eða tækifærisgjöf. „Gjafabréf og
árskort er hægt að panta á vefsíðu
Cut Mobile og sendum við út
gjafabréfin með tölvupósti. Einnig
er hægt að óska eftir útprentuðu
gjafabréfi hjá okkur, sé það óskin.
Gjafabréfin má nota til að versla
þjónustu hjá okkur eða þær vörur sem
við bjóðum upp á frá gæðamerkinu
DapperDan. Árskortin eru gjafabréf
að andvirði tólf herraklippinga sem
fæst á góðum staðgreiðsluafslætti.
Gjafabréfið er ýmist hægt að nýta hjá
okkur til að kaupa þjónustu eða vörur.
Þetta er alger snilld í jólapakkann, það
er klárt mál!“
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni cutmobile.com
Sími: 454-5400
Vefpóstur: contact@cutmobile.com
Fylgstu með á facebook: Cut Mobile
Instagram: Cut Mobile
Ljósmyndari: Viktor Árni Bjarnason.