Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 21
15. nóvember 2019 FRÉTTIR 21
jólasálma á aðfangadag og ég
væri til að halda þeirri hefð áfram.
Maður er auðvitað enn með þetta
í mótun en aðalhefðin hverfist
auðvitað í kringum matinn. Mér
finnst rosalega gaman að elda og
geri mikið af því, þótt ég sé bara
að elda fyrir sjálfan mig þá finnst
mér það æðislegt. Það er auðvit
að breyting að elda fyrir einn og
margir sem mikla það fyrir sér
en fyrir mér er það ákveðinn „me
time“, ég hugsa ekki um neitt ann
að á meðan.“
„Er þetta að gerast í alvöru?“
Friðrik og fyrrverandi sambýlis
maður hans slitu samvistir
fyrir tæpum tveimur árum eftir
ellefu ára samband. Hann segir
breytinguna mikla og það hafi
tekið tíma að læra að líta í speg
ilinn.
„Þetta hefur verið skrítið
tímabil og gengið á í bylgjum.
Fyrstu vikurnar var þetta ekkert
svo erfitt því þá var allt svo nýtt og
óraunverulegt, svo kemur tíminn
þar sem maður spyr sjálfan sig „er
þetta að gerast í alvöru?“ Að lok
um kemur að því þú þarft að líta
í spegilinn og fókusa á sjálfan þig,
og það er mest trikkí. Allt í einu
er enginn þarna og í grunninn er
það mesta breytingin – sem og
söknuðurinn – að deila ekki leng
ur lífinu með einhverjum. Ein
manaleikinn er erfiðastur, ekki
síst í því starfi sem ég er í, vinn
an mín verður oft einmanaleg
þótt ég sé umkringdur fólki og
eigi góða vini að. Ég setti mér þó
snemma þá reglu að hitta fólk
á hverjum degi og núna geri ég
það alveg ómeðvitað, það hjálp
ar mér mikið enda er auðveldast
í heimi að loka sig af – og það er
það versta. Maður verður að taka
á honum stóra sínum og halda
áfram, þeir þekkja það sem hafa
gengið í gegnum þetta ferli. Mað
ur fer að meta litlu hlutina, hvers
dagsleikann og heilsuna. Þetta er
gríðarleg breyting, ekki bara það
að vakna og sofna einn eða hella
upp á kaffið og kveikja á útvarp
inu, heldur líka að læra að vera
einn með sjálfum sér. En maður
inn er nú bara þannig gerður að
hann venst öllu. Tíminn lagar og
læknar og maður aðlagast en það
er rosalegur skóli.“
Hættur að reyna að geðjast
öllum
Friðrik tók eins og frægt er þátt í
undankeppni Söngkeppni sjón
varpsins fyrr í vor en laut í lægra
haldi fyrir framlagi Hatara sem
hélt út fyrir Íslands hönd. Lagið
hans, Hvað ef ég get ekki elskað?
sló hins vegar í gegn og segir Frið
rik fjölda fólks hafa komið að máli
við hann og sagst tengja við text
ann.
„Fólk var ekkert mikið að segja
mér það úti á götu enda er enginn
beint stoltur af því að líða svona.
Á yfirborðinu á nefnilega allt að
vera svo frábært, en ég fékk og fæ
enn fjöldann allan af einkaskila
boðum frá fólki sem segist tengja
við textann. Ég sé það í dag að
þetta var svolítið djarft af mér
að opna á þetta og fæ oft spurn
inguna hvort ég geti núna elskað.
Ég held ég geti það en maður er
oft í leit að einhverju fullkomnu
sem er ekki til. Ég viðurkenni
líka að ég var búinn að gleyma
hvað margir horfa á þessa keppni
og áttaði mig ekki á því fyrr en
daginn eftir að ég mætti fjöl
skyldu á förnum vegi þar sem
börnin urðu hreinlega stjörnu
stjörf við að sjá mig. Í mínum
huga var ég bara að gefa frá mér
lag sem ég var stoltur og ánægður
með en gerði mér ekki grein fyr
ir því sem óhjákvæmilega fylgdi
með, viðtölunum og athyglinni
sem ég var ekki að sækjast eftir.
Ég finn samt mikinn mun á sjálf
um mér núna og þegar ég tók síð
ast þátt fyrir ellefu árum. Í dag er
ég orðinn sáttur við að vera ekki
endilega allra og hættur að reyna
að geðjast öllum. Ég er ekkert að
reyna að vera hipp og kúl því ég
er bara sveitastrákur að norðan
og ekki að reyna vera neitt ann
að. Ég er mjög kaldhæðinn og
húmorinn minn er oft misskilinn,
svo það er pottþétt einhver þarna
úti sem finnst ég vera merkilegur
með mig. En stundum þarf mað
ur bara að setja upp þann front
og maður getur ekki hleypt öllum
að. Fólki finnst líka að maður eigi
alltaf að vera í stuði og það þekkja
þeir sem starfa í þessum bransa,
að það sé skrítið að maður sé ekki
skælbrosandi öllum stundum,
en staðreyndin er bara sú að við
erum venjulegt fólk með sömu
vandamál og allir hinir. Ég hika
ekki við að viðurkenna ef ég er
ekki hress, enda hef ég aldrei falið
hvernig mér líður. Ég nenni ekki
að vera með grímuna fasta á and
litinu á mér.“
Eftir að söngvakeppnin var
yfir staðin bókaði Friðrik sér ferð í
fimm vikur til SuðurAmeríku og
ferðaðist þaðan víða. Aðdáendur
hans gátu fylgst vel með ferð
um hans á Instagramsíðu hans
„fromarinn“, þar sem hann er afar
virkur og veitir innsýn í líf sitt.
„Buenos Aires heillaði mig
hvað mest. Hún býr yfir skemmti
legri menningu þar sem fólk
dansar tangó á hverju götuhorni
og bæði matur og vín er fram
úrskarandi á allan hátt. Ég hefði
aldrei séð þetta ferðalag fyrir mér
fyrir nokkrum árum, en ég hafði
helvíti gott af þessu og það besta
var að mér leiddist ekki í eina sek
úndu. Það er nefnilega áskorun
að vera svona einn með sjálfum
sér og nenna því, í alvöru.“
Heldur að hann langi í barn
Friðrik vill lítið tjá sig um skiln
aðinn en hann segir starfstitilinn
jafnframt oft fela í sér ákveðinn
fælingarmátt þegar kemur að
stefnumótamarkaðinum.
„Það var ákveðið ferli sem ég
þurfti að fara í gegnum, því þegar
við kynntumst var ég að byrja í
minni vinnu en í dag finn ég sterkt
fyrir því hvað íslenskir strákar vita
mikið um mig. Þeir hafa ákveðið
forskot en á sama tíma skil ég að
þeir séu hræddir við að stíga inn í
þennan heim. Það þarf visst hug
rekki til. En ég er ósköp venjuleg
ur strákur held ég.“
Þegar talið berst að barneign
um vefst svarið ögn fyrir Friðriki.
„Ég hef verið spurður ótrúlega
oft og spyr sjálfan mig sömuleið
is reglulega og veistu, já, ég held
mig langi í barn – en ekki endi
lega börn í fleirtölu. Ég veit ekki.
Ég finn það núna að það er stór
partur af því að vera manneskja
að eignast barn, í því felst svo
mikill þroski. Ég sé það á vinum
mínum að þetta er greinilega al
veg málið! Eflaust vex þetta ferli
manni í augum vegna kynhneigð
ar og aðstæðna og satt best að
segja veit ég ekki hvort maður sé
einhvern tímann alveg tilbúinn.
Er það nokkur? Í tilfellum eins
og mínu er þetta svo meðvituð
ákvörðun og í kjölfarið ferli sem
er flóknara en venjulega, innan
gæsalappa. Ég sé ekki fyrir mér að
gera þetta einn, en hver veit? Ég
hef kannski hugsað um þetta í tíu
ár en aldrei tekið skrefið, við vit
um jú að skilnaðartíðnin er há og
þá er auðvelt að ofhugsa allt, en
eflaust er þetta eitthvað sem gæti
dottið inn. Vissulega viljum við
öll upplifa að við séum mikilvæg
fyrir aðra manneskju og það er í
grunninn sú þörf sem foreldrar
fá uppfyllta, það er að segja þeir
sem sinna börnunum sínum. Þau
finna að þau eru einstök í aug
um barnanna sinna og öfugt. Það
„töffar“ mann eflaust líka upp
og það þykir mér spennandi til
hugsun, sem og að hafa eitthvað
sem „groundar“ mig. Ég finn það
núna þegar ég eldist og er búinn
að brölta þetta mikið um, búinn
að koma mér fyrir og er í geggjuð
um aðstæðum – nema samkyn
hneigðin flækir þetta kannski að
eins.“
Æskan bæði geggjuð og
hræðileg
Friðrik kom formlega út úr
skápnum árið 2006 en segir það
þó ekki hafa verið neitt gríðarlegt
móment, erfiðast hafi þó verið að
segja föður sínum af því.
„Ég er einkabarnið hans pabba
og ég beið lengst með að segja
honum. Það eru sjö ár milli mín
og næsta systkinis svo ég ólst upp
sem hálfgert örverpi.“
Friðrik lýsir æskunni á Dalvík
sem geggjaðri og hræðilegri í
senn.
„Það var náttúrlega æðislegt að
alast upp á svona litlum stað og fá
að gera allt sem maður vildi. Ég
var á kafi í leikfélaginu og stofn
aði meðal annars leikhóp með
vinum mínum. Ég var alltaf syngj
andi, spilandi á trommur og þá
var ekkert mál að útvega æfinga
húsnæði í nærliggjandi frystihúsi.
Það var allt svona, en á sama tíma
lenti ég líka í miklu einelti – fyrir
að vera í þessu. Ég vildi vera leið
togi, en leiðtogar eru ekkert endi
lega alltaf þeir vinsælustu. Svo er
það líka það, að fólk í kringum
mann áttar sig eflaust betur á því
að maður sé „gay“ en maður sjálf
ur, það er eflaust partur af þessu
einelti líka án þess að ég hafi fatt
að það sjálfur.“
Skilnaður foreldra
vendipunktur
Foreldrar Friðriks skildu þegar
hann var tíu ára og varð Friðrik
eftir hjá föður sínum en móður
hans flutti burt í annað samband,
tímanum lýsir hann sem algjör
um vendipunkti í sínu lífi.
„Það var ekki fyrr en á þessu ári
sem ég fattaði af hverju ég ákvað
að vera eftir hjá pabba. Ég
Suðurnes
Reykjavík
Suðurnes
Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook
Tvisvar
á dag!
milli Suðurnesja og
höfuðborgarsvæðis
cargoflutningar.is
Flutningaþjónust
Suðurnes
Reykjavík
Suðurnes
Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook
Tvisvar
á dag!
milli Suðurnesja og
höfuðborgarsvæðis
cargoflutningar.is
Flutningaþjónusta
„Hátíðin og
Dalvíkingar
munu standa
þetta af sér“