Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 27
Vetur15. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ GEISLATÆKNI: Laserskurður og ryðfrí smíði í hæsta gæðaflokki Fyrirtækið Geislatækni ehf. var stofnað í ársbyrjun 1998 af feðgunum Grétari Jónssyni og Jóni Leóssyni. Tilgangurinn með stofnun fyrirtækisins var að kaupa og annast rekstur á laserskurðarvél sem hentaði íslenskum markaði. Fjölbreyttur og öflugur tækjakostur Fram að stofnun Geislatækni hafði þjónusta á sviði laserskurðar ekki verið fáanleg hérlendis og þurfti að leita út fyrir landsteinana eftir henni. Keypt var vél af gerðinni Trumpf, 2.6 kw frá Bandaríkjunum. Voru starfsmenn Geislatækni fyrsta árið þrír að meðtöldum Jóni og Grétari. Undanfarin ár hefur félagið fjárfest umtalsvert í nýjum búnaði hvort heldur varðandi plötuvinnslu eða smíði. Geislatækni tók ákvörðun snemma á ferlinum að halda sig meira og minna við einn framleiðanda af laser- og beygjuvélum frá þýska fyrirtækinu TRUMPF Werkzeugmaschinen GmbH sem er einn af leiðandi framleiðendum á þessu sviði málmiðnaðar. Geislatækni býr í dag yfir fjölbreyttum og öflugum tækjakosti sem hefur stóreflt gæði og þjónustu til viðskiptavina. Í dag eru á þriðja tug starfsmanna hjá Geislatækni í þremur deildum , framkvæmdarstjóri fyrirtækisins er Grétar Jónsson. Heildarlausnir á sviði laserskurðar og annarrar plötuvinnslu Geislatækni er með heildarlausnir í allri plötuvinnslu ásamt sérsmíði og sérhæfðum lausnum sniðnum að þörfum hvers og eins. Við önnumst einnig smíði á mörgum sviðum svo sem á ryðfríum innréttingum (skápar, vaskaborð, borðplötur o.fl.) auglýsingaskiltum, rafmagnsskápum, tönkum og fleiru. Með því að vinna náið með samstarfsaðilum okkar tryggjum við að verkefnin séu heildstæð og hámarksárangur náist við útfærslu. Geislatækni notar nýjustu aðferðir við að skera og beygja stál þannig að úr verði íhlutur í hæsta gæðaflokki. Þjónustan byggir á laserskurði og beygingu á málmum sem opnar áður óþekkta möguleika í plötuvinnslu sem nýtist á breiðu sviði iðnaðar og framleiðslu. Við aðstoðum viðskiptavini frá byrjun til enda og tökum þátt í hönnun og útfærslu eftir þörfum. Með heildarþjónustu tryggjum við gæði verksins og ánægju viðskiptavinarins. Við tökum við hugmyndum á hvaða stigi sem er og útfærum með verkkaupum og smíðum. Geislatækni framleiðir íhluti fyrir hátækniframleiðslulínur fyrir matvælaiðnað og fleira sem krefst hámarks nákvæmni úr ryðfríu stáli. Með laserskurði fá íhlutirnir nákvæma lögun þannig að hver hlutur gegni sínu hlutverki sem best. Eftir að laserskurðarvélin hefur lokið við skurð er lítil eftirvinna, kantar eru jafnir og eingöngu þörf fyrir gráðuhreinsun. Um er að ræða hreinan skurð þegar lasertækni er beitt, þar sem notað er köfnunarefni (N2) sem skurðar- og hlífðargas, en þegar skorið er á hefðbundinn hátt með plasma- eða logskurði þá hitnar efnið mikið, það getur valdið hitaverpingi og við það missir efnið styrkleika sinn og eiginleika. Að loknum laserskurði og gráðuhreinsun fer hluti af viðkomandi framleiðslu í beygingu og hefur fyrirtækið fjórar CNC- beygjuvélar frá Trumpf í Þýskalandi með 100–230 tonna pressukrafti. Geislatækni getur einnig beygt kónískar beygjur (beygjulínur sem eru ekki samsíða köntum) með sex ása vél og getum við því gert flóknari íhluti sem sparar oft mikinn tíma í framleiðslu. Geislatækni býður alla velkomna að hafa samband eða líta við til að kynna sér betur þjónustu okkar. Á heimasíðu félagsins www.laser.is / gt@laser.is – Sími -5878400
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.