Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Qupperneq 27
Vetur15. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
GEISLATÆKNI:
Laserskurður og ryðfrí smíði
í hæsta gæðaflokki
Fyrirtækið Geislatækni ehf. var stofnað í ársbyrjun 1998 af feðgunum Grétari Jónssyni
og Jóni Leóssyni. Tilgangurinn með
stofnun fyrirtækisins var að kaupa
og annast rekstur á laserskurðarvél
sem hentaði íslenskum markaði.
Fjölbreyttur og öflugur
tækjakostur
Fram að stofnun Geislatækni hafði
þjónusta á sviði laserskurðar ekki
verið fáanleg hérlendis og þurfti að
leita út fyrir landsteinana eftir henni.
Keypt var vél af gerðinni Trumpf,
2.6 kw frá Bandaríkjunum. Voru
starfsmenn Geislatækni fyrsta árið
þrír að meðtöldum Jóni og Grétari.
Undanfarin ár hefur félagið
fjárfest umtalsvert í nýjum
búnaði hvort heldur varðandi
plötuvinnslu eða smíði. Geislatækni
tók ákvörðun snemma á ferlinum
að halda sig meira og minna við
einn framleiðanda af laser- og
beygjuvélum frá þýska fyrirtækinu
TRUMPF Werkzeugmaschinen
GmbH sem er einn af leiðandi
framleiðendum á þessu sviði
málmiðnaðar. Geislatækni býr í
dag yfir fjölbreyttum og öflugum
tækjakosti sem hefur stóreflt gæði
og þjónustu til viðskiptavina. Í dag
eru á þriðja tug starfsmanna hjá
Geislatækni í þremur deildum ,
framkvæmdarstjóri fyrirtækisins er
Grétar Jónsson.
Heildarlausnir á sviði laserskurðar
og annarrar plötuvinnslu
Geislatækni er með heildarlausnir
í allri plötuvinnslu ásamt sérsmíði
og sérhæfðum lausnum sniðnum
að þörfum hvers og eins. Við
önnumst einnig smíði á mörgum
sviðum svo sem á ryðfríum
innréttingum (skápar, vaskaborð,
borðplötur o.fl.) auglýsingaskiltum,
rafmagnsskápum, tönkum og
fleiru. Með því að vinna náið með
samstarfsaðilum okkar tryggjum
við að verkefnin séu heildstæð og
hámarksárangur náist við útfærslu.
Geislatækni notar nýjustu
aðferðir við að skera og beygja
stál þannig að úr verði íhlutur
í hæsta gæðaflokki. Þjónustan
byggir á laserskurði og beygingu
á málmum sem opnar áður
óþekkta möguleika í plötuvinnslu
sem nýtist á breiðu sviði iðnaðar
og framleiðslu. Við aðstoðum
viðskiptavini frá byrjun til enda og
tökum þátt í hönnun og útfærslu
eftir þörfum. Með heildarþjónustu
tryggjum við gæði verksins og
ánægju viðskiptavinarins. Við
tökum við hugmyndum á hvaða
stigi sem er og útfærum með
verkkaupum og smíðum.
Geislatækni framleiðir íhluti
fyrir hátækniframleiðslulínur fyrir
matvælaiðnað og fleira sem krefst
hámarks nákvæmni úr ryðfríu
stáli. Með laserskurði fá íhlutirnir
nákvæma lögun þannig að hver
hlutur gegni sínu hlutverki sem
best. Eftir að laserskurðarvélin
hefur lokið við skurð er lítil
eftirvinna, kantar eru jafnir og
eingöngu þörf fyrir gráðuhreinsun.
Um er að ræða hreinan skurð
þegar lasertækni er beitt, þar sem
notað er köfnunarefni (N2) sem
skurðar- og hlífðargas, en þegar
skorið er á hefðbundinn hátt með
plasma- eða logskurði þá hitnar
efnið mikið, það getur valdið
hitaverpingi og við það missir efnið
styrkleika sinn og eiginleika.
Að loknum laserskurði og
gráðuhreinsun fer hluti af
viðkomandi framleiðslu í beygingu
og hefur fyrirtækið fjórar CNC-
beygjuvélar frá Trumpf í Þýskalandi
með 100–230 tonna pressukrafti.
Geislatækni getur einnig beygt
kónískar beygjur (beygjulínur sem
eru ekki samsíða köntum) með
sex ása vél og getum við því gert
flóknari íhluti sem sparar oft mikinn
tíma í framleiðslu.
Geislatækni býður alla velkomna
að hafa samband eða líta við til að
kynna sér betur þjónustu okkar.
Á heimasíðu félagsins www.laser.is /
gt@laser.is – Sími -5878400