Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 45
FÓKUS 4515. nóvember 2019
þetta í kvöldfréttunum. Það var
byrjunin á þessari sprengju.“
Bransakvöldin urðu að fyrir-
mynd
Þeir Atli og Elías Helgi Kofoed-
Hansen standa að miðstöð fyrir
upprennandi listafólk þar sem
hressilegar pallborðsumræður
verða í boði. Miðstöðin nefnist
Reykjavík Creative Hub og var
fyrsti fundur haldinn í ágúst.
Atli segir hugmyndina að
þessari miðstöð ganga einfaldlega
út á það að hlusta á reynsluríkt
listafólk úr öllum áttum tala um
sitt fag og gefa yngra fólki ráð, en
jafnframt verður þarna í boði fyrir
upprennandi fólk í bransanum að
kynna sínar hugmyndir og fá við-
brögð við þeim.
Þeir Atli og Elías eru miklir
mátar og léku til að mynda saman
í hinni stórvinsælu kvikmynd,
Óróa. Kveikjan að þessari mið-
stöð varð þó til í Bandaríkjunum,
en þeir stunduðu þar saman nám
við New York Film Aca demy í Los
Ang eles.
„Við Elías grínumst oft með
það að hann hafi farið í prufu fyrir
að gerast besti vinur minn. Ég var
ráðinn á undan honum. Tíu árum
síðar er hann enn besti vinur
minn. Það má segja að hann hafi
neglt þessa prufu,“ segir Atli.
„Þegar við bjuggum úti
kynntumst við alls konar félagslífi
í tengslum við kvikmyndabrans-
ann: hugmyndasmiðjum, svo-
nefndum „networking“-kvöld-
um og handritaklúbbum þar sem
mátti heyra og sjá í hvaða pæl-
ingum fólk var og fá að spegla sín
eigin verkefni í þeirra eða jafnvel
koma saman í einhverri sköpun.
Hvort sem það var í kvikmyndum,
sjónvarpi eða einhverju allt öðru.“
Vitleysisgangur í Los Angeles
Atli segir að þegar þeir Elías
héldu til Bandaríkjanna í nám
hafi það verið markmið að gera
engin plön fyrirfram, sérstak-
lega þá hvað húsnæði varðaði og
annað slíkt. „Okkur Elísasi finnst
mjög gaman að búa til sögur og
vera með vitleysisgang. Ég hefði
aldrei getað verið þarna úti í Los
Angeles án hans, að glíma einn
við allt þetta kjaftæði sem felst í
því að flytja til annars lands.
Það var fáránlegt og geggjað að
vera með jafnmikinn vitleysing
með sér til að fara blint út í þetta
ævintýri. Okkur fannst það snið-
ug hugmynd að sofa á alls konar
sófum hjá fólki sem við þekktum
ekki. Við fundum síðu sem heitir
CouchSurfing og vorum búnir að
stilla því upp að gista hjá alls kon-
ar fólki. Við fórum á milli bæja,
kynntumst fjölda fólks og svo
fundum við Elías AirBnb-íbúð og
bjuggum saman í einu herbergi í
mánuð,“ segir Atli.
„Komandi frá rólega Íslandi er
ótrúlegt að kynnast skrifræðinu
sem fylgir Bandaríkjunum. Hérna
heima geturðu hringt í bankann
þinn og þú segir eitthvert númer,
þá vita allir hver þú ert. Í Banda-
ríkjunum þurfti ég annars vegar
að skrifa undir tíu blaðsíðna
samning til að sækja um aðgang í
ræktina. Hvað þá þegar maður er
farinn að græja leigusamninga og
annað. Allt þarna úti er svo miklu,
miklu flóknara en við erum vön
hér.“
Sofnaði í miðri töku
Fyrr á þessu ári stofnaði Atli fram-
leiðslufyrirtæki og er með ýmis
verkefni í bígerð. Þegar Atli var á
unglingsaldri að kynnast töku-
stöðum og kvikmyndagerð eins og
hún leggur sig, var hann, að eigin
sögn, „pirrandi krakkaleikarinn
sem hékk þarna og spurði fólkið
í kring hvaða takkar á græjunum
gerðu hvað.“ Áhugi hans á faginu
var gífurlegur, og útilokar hann
ekki að leiklistinni og YouTu-
be-tímabilinu hafi fylgt ákveðin
athyglissýki. Atli var þó fastur á
því að halda sig við réttu starfs-
brautina þegar hann var kominn á
framhaldsskólaaldurinn.
„Ég ætlaði aldrei að verða leik-
ari. Það var aldrei planið. Ég ætlaði
bara að verða læknir og fór meira
að segja í Verzlunarskóla Íslands
til þess að læra það. Síðan reyndist
það óvart vera svo brjálæðislega
gaman að leika að ég gat ekki séð
fyrir mér að ég myndi gera neitt
annað, það sem eftir væri af lífi
mínu.“
Þegar Atli fékk hlutverkið í Óróa
var hann handviss um að það ætti
eftir að breyta lífi hans. Hann seg-
ir Baldvin Z, kvikmyndagerðar-
mann og leikstjóra, hafa veitt sér
ómetan legan stuðning í gegnum
ferlið. Atli segir hvorki kvíða né
óöryggi hafa einkennt hann þegar
hann tók við hlutverkinu, þótt rull-
an hafi vissulega verið krefjandi.
„Ég var svo spenntur allan
tímann og fór sjaldan skynsam-
legu leiðina og fór beint heim að
sofa eftir langan tökudag. Ég fór
yfirleitt heim og spilaði tölvuleiki
til að fá útrás, oft langt fram á nótt.
Baldvini finnst gaman að segja
mér söguna af því þegar ég sofn-
aði í miðri töku,“ segir Atli hress. n
Hlaðvarpsþáttinn má nálgast
í heild sinni á DV.is
YouTube-rásin Atli123
naut mikillar velgengni á
sínum tíma.
Úr kvikmyndinni Óróa.