Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 45
FÓKUS 4515. nóvember 2019 þetta í kvöldfréttunum. Það var byrjunin á þessari sprengju.“ Bransakvöldin urðu að fyrir- mynd Þeir Atli og Elías Helgi Kofoed- Hansen standa að miðstöð fyrir upprennandi listafólk þar sem hressilegar pallborðsumræður verða í boði. Miðstöðin nefnist Reykjavík Creative Hub og var fyrsti fundur haldinn í ágúst. Atli segir hugmyndina að þessari miðstöð ganga einfaldlega út á það að hlusta á reynsluríkt listafólk úr öllum áttum tala um sitt fag og gefa yngra fólki ráð, en jafnframt verður þarna í boði fyrir upprennandi fólk í bransanum að kynna sínar hugmyndir og fá við- brögð við þeim. Þeir Atli og Elías eru miklir mátar og léku til að mynda saman í hinni stórvinsælu kvikmynd, Óróa. Kveikjan að þessari mið- stöð varð þó til í Bandaríkjunum, en þeir stunduðu þar saman nám við New York Film Aca demy í Los Ang eles. „Við Elías grínumst oft með það að hann hafi farið í prufu fyrir að gerast besti vinur minn. Ég var ráðinn á undan honum. Tíu árum síðar er hann enn besti vinur minn. Það má segja að hann hafi neglt þessa prufu,“ segir Atli. „Þegar við bjuggum úti kynntumst við alls konar félagslífi í tengslum við kvikmyndabrans- ann: hugmyndasmiðjum, svo- nefndum „networking“-kvöld- um og handritaklúbbum þar sem mátti heyra og sjá í hvaða pæl- ingum fólk var og fá að spegla sín eigin verkefni í þeirra eða jafnvel koma saman í einhverri sköpun. Hvort sem það var í kvikmyndum, sjónvarpi eða einhverju allt öðru.“ Vitleysisgangur í Los Angeles Atli segir að þegar þeir Elías héldu til Bandaríkjanna í nám hafi það verið markmið að gera engin plön fyrirfram, sérstak- lega þá hvað húsnæði varðaði og annað slíkt. „Okkur Elísasi finnst mjög gaman að búa til sögur og vera með vitleysisgang. Ég hefði aldrei getað verið þarna úti í Los Angeles án hans, að glíma einn við allt þetta kjaftæði sem felst í því að flytja til annars lands. Það var fáránlegt og geggjað að vera með jafnmikinn vitleysing með sér til að fara blint út í þetta ævintýri. Okkur fannst það snið- ug hugmynd að sofa á alls konar sófum hjá fólki sem við þekktum ekki. Við fundum síðu sem heitir CouchSurfing og vorum búnir að stilla því upp að gista hjá alls kon- ar fólki. Við fórum á milli bæja, kynntumst fjölda fólks og svo fundum við Elías AirBnb-íbúð og bjuggum saman í einu herbergi í mánuð,“ segir Atli. „Komandi frá rólega Íslandi er ótrúlegt að kynnast skrifræðinu sem fylgir Bandaríkjunum. Hérna heima geturðu hringt í bankann þinn og þú segir eitthvert númer, þá vita allir hver þú ert. Í Banda- ríkjunum þurfti ég annars vegar að skrifa undir tíu blaðsíðna samning til að sækja um aðgang í ræktina. Hvað þá þegar maður er farinn að græja leigusamninga og annað. Allt þarna úti er svo miklu, miklu flóknara en við erum vön hér.“ Sofnaði í miðri töku Fyrr á þessu ári stofnaði Atli fram- leiðslufyrirtæki og er með ýmis verkefni í bígerð. Þegar Atli var á unglingsaldri að kynnast töku- stöðum og kvikmyndagerð eins og hún leggur sig, var hann, að eigin sögn, „pirrandi krakkaleikarinn sem hékk þarna og spurði fólkið í kring hvaða takkar á græjunum gerðu hvað.“ Áhugi hans á faginu var gífurlegur, og útilokar hann ekki að leiklistinni og YouTu- be-tímabilinu hafi fylgt ákveðin athyglissýki. Atli var þó fastur á því að halda sig við réttu starfs- brautina þegar hann var kominn á framhaldsskólaaldurinn. „Ég ætlaði aldrei að verða leik- ari. Það var aldrei planið. Ég ætlaði bara að verða læknir og fór meira að segja í Verzlunarskóla Íslands til þess að læra það. Síðan reyndist það óvart vera svo brjálæðislega gaman að leika að ég gat ekki séð fyrir mér að ég myndi gera neitt annað, það sem eftir væri af lífi mínu.“ Þegar Atli fékk hlutverkið í Óróa var hann handviss um að það ætti eftir að breyta lífi hans. Hann seg- ir Baldvin Z, kvikmyndagerðar- mann og leikstjóra, hafa veitt sér ómetan legan stuðning í gegnum ferlið. Atli segir hvorki kvíða né óöryggi hafa einkennt hann þegar hann tók við hlutverkinu, þótt rull- an hafi vissulega verið krefjandi. „Ég var svo spenntur allan tímann og fór sjaldan skynsam- legu leiðina og fór beint heim að sofa eftir langan tökudag. Ég fór yfirleitt heim og spilaði tölvuleiki til að fá útrás, oft langt fram á nótt. Baldvini finnst gaman að segja mér söguna af því þegar ég sofn- aði í miðri töku,“ segir Atli hress. n Hlaðvarpsþáttinn má nálgast í heild sinni á DV.is YouTube-rásin Atli123 naut mikillar velgengni á sínum tíma. Úr kvikmyndinni Óróa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.