Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 20
20 15. nóvember 2019FRÉTTIR
T
æp tvö ár eru síðan líf
Friðriks Ómars tónlistar-
manns tók óvænta stefnu.
Hann skildi við sambýlis-
mann sinn til ellefu ára og ákvað
í kjölfarið að taka heilsu- og lífs-
stílinn fastari tökum. Í dag lítur
hann nokkuð sáttur um öxl en
viðurkennir að ferðalagið hafi
verið fjandanum erfiðara. Þetta
er þó ekki í fyrsta sinn sem Frið-
rik mætir erfiðleikum í lífinu. „Ég
reyni meðvitað að vera ekki mik-
ið í viðtölum,“ segir Friðrik Ómar
þegar blaðakona sækir hann
heim. „Þessa dagana er ég bara
á fullu að undirbúa jólin með
fólkinu mínu hjá Rigg. Ég verð
bæði með jólatónleika í Salnum
í Kópavogi og Hofi ásamt því að
syngja á Jólagestum Björgvins
Halldórssonar svo ég verð syngj-
andi allar helgar fram að jólum
eða á fimmtán tónleikum.“
Friðrik var fimmtán ára þegar
hann gaf út sína fyrstu kasettu
en hana tileinkaði hann einmitt
jólunum og nefndi Jólasalat.
Hann segir því óhætt að fullyrða
að söngurinn sé búinn að vera
samofinn jólahátíðinni í tæpan
aldarfjórðung.
„Ég tók einu sinni meðvitað
frí í desember en það var alveg
glatað, svona eins og þegar fólk
ákveður að dvelja erlendis yfir
jólin en dauðsér svo eftir því, en
þá er maður allavega búinn að
prófa það.“
Friðrik slær ekki slöku við í
jóla undirbúningnum því nýtt
jólalag úr smiðju hans mun
hljóma á næstunni.
„Við Svala Björgvins erum
að gefa saman út nýtt jólalag en
sjálfur samdi ég lag og texta,“ seg-
ir hann. Friðrik nær samt ekki
að njóta útgáfunnar mjög lengi
því við tekur stífur undirbún-
ingur. „Stanslausar æfingar fyrir
jólatónleikana og þá er aðalmálið
að keyra sig ekki út. Ég legg mikla
áherslu á að fara í ræktina og
halda mér gangandi en alls ekki
að breyta neinu. Oft læðist nefni-
lega sú hugsun að hvort það sé
ekki bráðupplagt að skafa af sér
eins og tvö kíló en þá getur maður
bara veikst.“
Sjálfur fer Friðrik alltaf norður
um jólin en stórfjölskylda hans
býr á Akureyri. Á Þorláksmessu
er ferðinni heitið til Dalvíkur það-
an sem hann er ættaður þar sem
hann sýpur á púrtvíni með góð-
um vinum.
„Síðustu jól byrjuðum við fjöl-
skyldan á því að syngja saman
Einmanaleikinn
er erfiðastur
Friðrik Ómar skildi eftir ellefu ára samband - Lærði að vera einn - Skilnaður
foreldra í æsku markaði djúp spor - Varð fyrir einelti í barnaskóla
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
M
Y
N
D
IR
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N