Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 10
10 FÓKUS - VIÐTAL 15. nóvember 2019 H eiðdís Rós Reynisdóttir, eða Heiðdís Rós Celebrity MUA, og Farzad Sepahif­ ar, sem Heiðdís kallaði lengi draumaprinsinn sinn, slitu samvistir og trúlofun sinni á dögunum eftir rúmt ár. Heiðdís er förðunarfræðingur, ættuð úr Garðabænum og hefur verið búsett í Bandaríkj­ unum í tæpan áratug. Þúsund­ ir Íslendinga hafa fylgist með lífi hennar á samfélagsmiðlum undanfarin ár en þar gefur hún fylgjendum sínum innsýn í líf sitt. Í september í fyrra skrifaði hún niður lýsingu á draumaprins sín­ um og svo örfáum dögum síðar birtist Sepahifar. Hann er rúm­ lega þrítugur athafnamaður og er honum mikið í mun að sýna ríkis­ dæmi sitt á Instagram. Mik il ólga hef ur ein kennt sam bands slit in en Sepahifar kærði Heiðdísi fyrir líkamsárás nú á dögunum. Þá var hann kom­ inn með tímabundið nálg un ar­ bann gegn henni og koma þau fyr ir dóm ara þann 20. nóv em ber næst kom andi. DV hafði samband við Sepa­ hifar og hann leysir frá skjóðunni um sína hlið málsins. Eyddi 1.500 Bandaríkjadölum á dag „Ég er í ruglinu. Ég er sár, ég er reiður, ég skil ekki neitt og suma daga get ég ekki hætt að gráta. Mér líður eins og eitthvað hafi dáið inni í mér,“ segir Sephifar. „Ég var yfir mig ástfanginn af Heiðdísi áður en ég sá hvern­ ig hún var í raun og hvernig hún sá mig sem fylgihlut og peningavél, enda eyddi hún að meðaltali 1.500 dollurum á dag og oftar en ekki voru þetta mínir pen­ ingar. Þessi kona er svikahrappur, glæpamaður og ofbeldismann­ eskja og ég trúi ekki að ég hafi ekki komið auga á það fyrr. Eins og svo margir var ég ákveðinn fangi ást­ arinnar og ákvað að leyfa henni að njóta vafans, fulloft sennilega.“ Að sögn viðskiptajöfursins er heimurinn og samfélagið enn þannig að karlmenn þora ekki að stíga fram og játa að þeir hafa orðið fyrir andlegu eða líkamlegu of­ beldi, enn síður þegar gerandinn er kvenmaður. „Í Kaliforníu er hvergi til neitt athvarf eða stuðn­ ingsmiðstöð fyrir karlmenn sem hafa orðið fyrir ofbeldi,“ segir Sephifar og hyggst stofna eitt slíkt í Beverly Hills á næstunni. „Í Bandaríkjunum er þetta sér­ staklega þannig að fáir trúa karl­ mönnunum og ég efast ekki um að fáir muni trúa mér. Fólk spyr sjaldan eða aldrei hvers vegna ég missti alla þessa þyngd vegna stress, ótta, niðurlægingar. Ef ég væri hundur væri eigandinn löngu kominn í fangelsi. Mitt markmið núna á næstunni er að stofna miðstöð fyrir karl­ kyns þolendur ofbeld­ is. Aðrir í mínum sporum væru ör­ ugglega búnir að enda líf sitt eftir svona ofbeldis­ hegðun, niðurrif og vantraust.“ „Svona er máttur píkunn- ar, því miður“ Sepahifar kveðst hafa misst tæp sextán kíló á skömmum tíma vegna vanlíðunar, lystar­ og svefn­ leysis. Að hans sögn var Heið­ dís honum ótrú og það ítrekað. Hann líkir lifnaðarháttum Heið­ dísar við vændisstarfsemi og seg­ ir áhrifavaldsímynd hennar vera grímu, að lifibrauð hennar feli það í sér að stunda kynlíf með vel efnuðum karlmönnum gegn háum fjárhæðum, skartgripum eða annars konar gjöfum. Þetta eru afar alvarlegar ásakanir, en DV hefur fengið ábendingar um svipaðan lífsstíl Heiðdísar. Ekk­ ert hefur fengist staðfest í þeim efnum. Heiðdís er að sögn Sepa­ hifar mikið úti á lífinu í Los Ang­ eles og vill hann meina að fyrstu viðvörunarbjöllurnar hafi hringt þegar hann sá hversu stíft og títt hún neytti áfengis. Þá fór hún að missa sig út í hina hlið sína, eins og viðskiptajöfurinn orðar það. Sepahifar segir þessa hlið hennar hafa farið alveg framhjá honum við fyrstu kynni en hún sýndi sig með tímanum með stig­ magnandi hegðunarbreyting­ um og uppgötvunum um fram­ hjáhald. „Ég elskaði hana af öllu mínu hjarta. Ég gerði allt fyrir hana. Svo fór ég að átta mig á öll­ um lygunum og mér varð hrein­ lega óglatt þegar ég fann þá tengingu að hún seldi sig fyrir peninga,“ segir hann. Það skal ítrekað að þessar ásakanir hafa ekki fengist staðfestar. „Það vilja allir glansinn, þenn­ an týpíska peningadraum. Þetta er auðvitað sterkt í Bandaríkjun­ um og gamlir karlmenn fá ein­ hverja valdavímu við að kasta peningum í hvítar, ljóshærðar skvísur. Svona er máttur píkunn­ ar, því miður, og þykir mér þetta ógeðslegt. Hefði ég vitað fyr­ ir hvernig Heiðdís var hefði ég hlupið í burtu þegar ég kynntist henni. Ég lærði mína lexíu, held­ ur betur.“ Limur í lífshættu Sepahifar rifjar upp eina af verri minningum sambandsins á loka­ metrunum, sem hann segir vera tengda kynlífsfíkn hennar. Sepa­ hifar segir að hún hafi sýnt af sér hegðun sem hann telur vera nauðgun. Þegar hann neitaði henni um kynlíf varð fjandinn laus. Sepahifar segir frá: „Kvöld eitt reyndi hún að stunda kynlíf með mér í stofunni. Þarna vissi ég að hún var kyn- lífsfíkill og mig langaði ekkert til þess að sofa hjá henni. Hún var öll ógeðsleg og subbuleg. Hún spáði ekkert í það og reyndi þá að sjúga mig. Ég lá þarna flatur og fékk ekki stinningu. Hún þrýsti „Hún ætlaði að skera af mér typpið“ Fyrrverandi draumaprins Heiðdísar Rósar tjáir sig um sambandsslitin - Ofbeldi, fjársvik og vændi „Ef ég væri hundur væri eigandinn löngu kominn í fangelsi“ Tómas Valgeirsson Hjálmar Friðriksson tomas@dv.is / hjalmar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.