Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 12
12 15. nóvember 2019FRÉTTIR SVONA BÚA SAMHERJAR Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Samherja, kemur fyrir í Samherjaskjölunum. Ein mynd úr skjölunum hefur vakið sérstaka athygli en þar sést hann sitja fyrir á mynd með namibískum konum. Baldvin er skráður til heimilis í Hollandi samkvæmt Þjóðskrá, en á ja. is er hann skráður með búsetu á Grandavegi 7 í Reykjavík. Hann er hins vegar ekki skráður eig­ andi íbúðar í því fjölbýlishúsi. Afhjúpun Kveiks og Stundarinnar upp úr Samherja­ skjölunum hafa skotið þjóðinni allri skelk í bringu. Fjölmargir lykilstjórnendur Samherja koma fyrir í gagnaleka Wikileaks og eru ásakanirnar grafalvar­ legar, glæpsamlegar. DV ákvað að kíkja á helstu lykilstjórnendur Samherja sem koma fram í gögn­ unum og sjá hvernig þeir búa. Á húsið skuldlaust Þorsteinn Már Baldvinsson, sem hefur stigið til hliðar sem forstjóri Samherja meðan á rannsókn málsins stendur, hreiðraði um sig í Barðtúni á Akur eyri árið 1997 og býr þar enn. Um er að ræða rúmlega 370 fermetra einbýlishús sem Mái keypti af Höldi ehf., sem rekur Bílaleigu Akureyrar. Þá var fasteignamat eignarinnar tæplega 13,8 milljónir króna og var kaupverðið að fullu greitt. Mái á því húsið skuldlaust en fasteignamat næsta árs eru tæpar níu tíu milljónir króna. Í eigu eiginkonunnar Aðalsteinn Helgason, fyrrverandi fram­ kvæmdastjóri landvinnslu Samherja og fram­ kvæmdastjóri Afríkustarfsemi Samherja, hefur ekki viljað tjá sig um þær ásakanir uppljóstrar­ ans Jóhannesar Stefánssonar að Aðalsteinn hafi gefið Jóhannesi fyrirmæli um að greiða sjávarút­ vegsráðherra Namibíu mútur. Aðalsteinn hætti að vinna fyrir þremur árum og býr nú í Iða­ lind í Kópavogi. Aðalsteinn og eiginkona hans, Ágústa Áróra Þorsteinsdóttir, gerðu með sér kaupmála árið 2013 um að húsið væri hjúskap­ areign Ágústu og því er hún ein skráð fyrir hús­ inu í dag. Í kaupmálanum er skráð heimilisfang Aðalsteins á Kanaríeyjum. Aðalsteinn er skráð­ ur með búsetu í Iðalind samkvæmt Þjóðskrá, en um að ræða rúmlega 180 fermetra einbýlishús og er fasteignamat næsta árs tæplega 83 milljón­ ir króna. Býr á Spáni Aðalsteini til halds og traust í Afríkustarfsemi Samherja var Ingvar Júlíusson, fjármálastjóri Samherja á Kýpur og í Afríku. Hann er búsettur á Spáni samkvæmt Þjóðskrá. Glæpasögur og Grafarvogur Jón Óttar Ólafsson starfaði sem ráðgjafi hjá Sam­ herja á því tímabili sem Samherjaskjölin ná til og var í innsta hring Namibíuveiðanna. Jón Óttar starfaði sem rannsóknarlögreglumaður en var rekinn árið 2012 fyrir meint brot á þagnar­ skyldu. Málið var látið niður falla árið 2013. Hann er einnig glæpasagnahöfundur og hefur skrifað bækurnar Hlustað og Ókyrrð. Hann er skráður til heimilis í Smárarima í Grafarvogi samkvæmt Þjóðskrá en ekki skráður eigandi. Um leiguhús­ næði gæti verið að ræða en sá leigusamningur finnst ekki í þinglýstum gögnum. Húsið er tæpir 240 fermetrar og er fasteignamat næsta árs tæp 91 milljón. Arna á Akureyri Yfirlögfræðingur Samherja, Arna Bryndís Baldvins McClure, kem­ ur oft fyrir í Samherjaskjölunum og sat meðal annars fundi með namibísku þremenningunum James, Tamson Hatukulipi og Sacky Shangala sem sagðir eru hafa þegið mútur frá Samherja til að greiða aðgang að fiskveiðikvóta. Bryndís er búsett við Hafnarstræti 47 í heimabæ Samherja, Akureyri. Þar býr hún í tæplega tvö hundruð fermetra hæð sem metin er á tæpar 43 milljónir á næsta ári. Margt með í kaupunum Kristján Vilhelmsson, annar aðaleigandi Samherja og út­ gerðarstjóri fyrirtækisins á Ís­ landi, býr að Vörðuhóli í dreif­ býli Akureyrar, rúmlega 250 fermetra timburhúsi sem metið er á tæpar fimmtíu milljón­ ir á næsta ári. Kristján keypti húsið árið 2007 en með í kaupunum fylgdu tveir traktorar, sláttuvél, hey­ þyrla, snjó­ blásari og þriðjungur í haugs­ ugu og rakstrar­ vél.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.