Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Side 12
12 15. nóvember 2019FRÉTTIR
SVONA BÚA SAMHERJAR
Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más
og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá
Samherja, kemur fyrir í Samherjaskjölunum.
Ein mynd úr skjölunum hefur vakið sérstaka
athygli en þar sést hann sitja fyrir á mynd með
namibískum konum. Baldvin er skráður til
heimilis í Hollandi samkvæmt Þjóðskrá, en á ja.
is er hann skráður með búsetu á Grandavegi 7 í
Reykjavík. Hann er hins vegar ekki skráður eig
andi íbúðar í því fjölbýlishúsi.
Afhjúpun Kveiks og Stundarinnar upp úr Samherja
skjölunum hafa skotið þjóðinni allri skelk í bringu.
Fjölmargir lykilstjórnendur Samherja koma fyrir í
gagnaleka Wikileaks og eru ásakanirnar grafalvar
legar, glæpsamlegar. DV ákvað að kíkja á helstu
lykilstjórnendur Samherja sem koma fram í gögn
unum og sjá hvernig þeir búa.
Á húsið skuldlaust
Þorsteinn Már Baldvinsson, sem hefur stigið til
hliðar sem forstjóri Samherja meðan á rannsókn
málsins stendur, hreiðraði um sig í Barðtúni á
Akur eyri árið 1997 og býr þar enn. Um er að ræða
rúmlega 370 fermetra einbýlishús sem Mái keypti
af Höldi ehf., sem rekur Bílaleigu Akureyrar. Þá var
fasteignamat eignarinnar tæplega 13,8 milljónir
króna og var kaupverðið að fullu greitt. Mái á því
húsið skuldlaust en fasteignamat næsta árs eru
tæpar níu tíu milljónir króna.
Í eigu eiginkonunnar
Aðalsteinn Helgason, fyrrverandi fram
kvæmdastjóri landvinnslu Samherja og fram
kvæmdastjóri Afríkustarfsemi Samherja, hefur
ekki viljað tjá sig um þær ásakanir uppljóstrar
ans Jóhannesar Stefánssonar að Aðalsteinn hafi
gefið Jóhannesi fyrirmæli um að greiða sjávarút
vegsráðherra Namibíu mútur. Aðalsteinn hætti
að vinna fyrir þremur árum og býr nú í Iða
lind í Kópavogi. Aðalsteinn og eiginkona hans,
Ágústa Áróra Þorsteinsdóttir, gerðu með sér
kaupmála árið 2013 um að húsið væri hjúskap
areign Ágústu og því er hún ein skráð fyrir hús
inu í dag. Í kaupmálanum er skráð heimilisfang
Aðalsteins á Kanaríeyjum. Aðalsteinn er skráð
ur með búsetu í Iðalind samkvæmt Þjóðskrá, en
um að ræða rúmlega 180 fermetra einbýlishús
og er fasteignamat næsta árs tæplega 83 milljón
ir króna.
Býr á Spáni
Aðalsteini til halds og traust í Afríkustarfsemi
Samherja var Ingvar Júlíusson, fjármálastjóri
Samherja á Kýpur og í Afríku. Hann er búsettur
á Spáni samkvæmt Þjóðskrá.
Glæpasögur og Grafarvogur
Jón Óttar Ólafsson starfaði sem ráðgjafi hjá Sam
herja á því tímabili sem Samherjaskjölin ná
til og var í innsta hring Namibíuveiðanna. Jón
Óttar starfaði sem rannsóknarlögreglumaður en
var rekinn árið 2012 fyrir meint brot á þagnar
skyldu. Málið var látið niður falla árið 2013. Hann
er einnig glæpasagnahöfundur og hefur skrifað
bækurnar Hlustað og Ókyrrð. Hann er skráður
til heimilis í Smárarima í Grafarvogi samkvæmt
Þjóðskrá en ekki skráður eigandi. Um leiguhús
næði gæti verið að ræða en sá leigusamningur
finnst ekki í þinglýstum gögnum. Húsið er tæpir
240 fermetrar og er fasteignamat næsta árs tæp 91
milljón.
Arna á Akureyri
Yfirlögfræðingur Samherja, Arna Bryndís Baldvins McClure, kem
ur oft fyrir í Samherjaskjölunum og sat meðal annars fundi með
namibísku þremenningunum James, Tamson Hatukulipi og Sacky
Shangala sem sagðir eru hafa þegið mútur frá Samherja til að greiða
aðgang að fiskveiðikvóta. Bryndís er búsett við Hafnarstræti 47 í
heimabæ Samherja, Akureyri. Þar býr hún í tæplega tvö hundruð
fermetra hæð sem metin er á tæpar 43 milljónir á næsta ári.
Margt með í kaupunum
Kristján Vilhelmsson, annar
aðaleigandi Samherja og út
gerðarstjóri fyrirtækisins á Ís
landi, býr að Vörðuhóli í dreif
býli Akureyrar, rúmlega 250
fermetra timburhúsi sem metið
er á tæpar fimmtíu milljón
ir á næsta ári. Kristján keypti
húsið árið 2007 en með
í kaupunum fylgdu
tveir traktorar,
sláttuvél, hey
þyrla, snjó
blásari og
þriðjungur
í haugs
ugu og
rakstrar
vél.