Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 29
Vetur15. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ REIÐHJÓLAVERZLUNIN BERLIN: Auðveldar þér að hjóla inn í jólin Hjólreiðabakterían hefur smitað margan og ekki að ástæðulausu, enda er reiðhjólið afar hagkvæmur ferðamáti og ekki spillir fyrir heilsufarslegur ávinningur þess að fara ferða sinna hjólandi, frekar en á einkabílnum. „Hjólreiðamennskan er lífsstíll og reiðhjólin eru jafnmismunandi og þau eru mörg. „Við hjá Reiðhjólaversluninni Berlin sérhæfum okkur í klassískum hjólum með „vintage“ útliti, sem eru falleg útlits og höfða til fólks sem vill ekki hjóla í sérstökum hjólafötum, heldur í venjulegum hversdagsklæðnaði. Það færist líka sífellt í aukana að fólk fái sér nagladekk á reiðhjólin fyrir veturinn svo það geti haldið áfram að hjóla í næstum hvaða færi sem er,“ segir Jón Óli Ólafsson, eigandi fyrirtækisins. Á staðnum er verkstæði og er tekið á móti öllum gerðum reiðhjóla til viðgerða, viðhalds, umfelgunar og samsetningar á hjólum. „Við höfum tekið á móti gömlum hjólum og gert þau algerlega upp fyrir viðskiptavini. Við eigum einnig lager af nagladekkjum og erum í góðu sambandi við aðila úti í heimi sem eiga gott úrval af dekkjum með eða án nagla. Við getum því pantað næstum hvað sem er fyrir flestar gerðir reiðhjóla.“ Jólahjól „Fyrir jólin koma viðskiptavinir hingað mikið í leit að jólagjöfum fyrir hjólreiðafólkið í lífi sínu. Í sumum tilfellum er fólk að kaupa nýtt reiðhjól. Þá erum við með gott úrval af fallegum klassískum hjólum sem eru bæði létt og þægileg og fullkomin fyrir hverdagslegar hjólaferðir eða einfaldlega sem ferðamáti til og frá vinnu.“ Meðal vinsælustu reiðhjóla hjá Berlín eru REID Ladies Classics og svo hjól undir merkinu Berlin. Verslunin býður einnig reiðhjól frá Pure Cycles, Achille og Pashley og Cinelli. „Viðskiptavinir ættu því að geta fundið sér eitthvað við hæfi hjá okkur.“ Fallegir fylgihlutir í jólagjöf Reiðhjólaverzlunin Berlin er með frábært úrval af fallegum og skemmtilegum fylgihlutum fyrir hjólreiðamanninn sem fullkomna hið eftirsótta „vintage“ hjólaútlit. „Þessar vörur eru þá tilvaldar í jólapakkann til reiðhjólafólksins. Við eigum t.d. falleg viðar- og leðurhandföng sem setja punktinn yfir i-ið á „vintage“ útlitinu. Einnig erum við með flotta stýrisvafninga og pedala í ýmsum gerðum, hvort sem um klassíkt útlit er að ræða eða örlítið nýstárlegra. Að sjálfsögðu erum við með gott úrval af breiðum og þægilegum hnökkum sem fara vel með sitjandann. Og til að geyma hjólið þá eigum við ýmsar útfærslur af hjólafestingum.“ Vörur sem fullkomna hjólið sem ferðamáta „Við erum með flottar hliðartöskur, hnakktöskur, bakpoka, geggjaða sokka og hjólahúfur. Svo erum við með ótrúlega flotta vínflöskuhaldara úr leðri sem festir eru á stellið. Þá erum við með til sölu stórsniðugar yfirbreiðslur fyrir þau hjól sem eru geymd inni eða úti. Ekki má gleyma bögglaberum framan eða aftan á reiðhjólið.“ Öryggi í umferðinni Reiðhjólaverzlunin Berlin er með gott úrval af fallegum, þægilegum og síðast en ekki síst öruggum hjólreiðahjálmum. Einnig er verslunin með gott úrval af ljósum og glitmerkjum fyrir hjólið sem gerir rhjólreiðafólkið auðsýnilegt í vetrarmyrkrinu. Þá er flott úrval af hjólabjöllum í ýmsum gerðum sem prýða hvaða hjól sem er. „Síðast en ekki síst eigum við sterka og góða kapal- og keðjulása sem og U-lása fyrir allar gerðir reiðhjóla.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæði og vefverslun Reiðhjólaverzlunarinnar Berlin reidhjolaverzlunin.is Ármúli 4, 108 Reykjavík. Sími: 557-7777 Vefpóstur: jonoli@reidhjolaverzlunin. is Myndir: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.