Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Side 29
Vetur15. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
REIÐHJÓLAVERZLUNIN BERLIN:
Auðveldar þér að hjóla inn í jólin
Hjólreiðabakterían hefur smitað margan og ekki að ástæðulausu, enda
er reiðhjólið afar hagkvæmur
ferðamáti og ekki spillir fyrir
heilsufarslegur ávinningur þess að
fara ferða sinna hjólandi, frekar en
á einkabílnum. „Hjólreiðamennskan
er lífsstíll og reiðhjólin eru
jafnmismunandi og þau eru mörg.
„Við hjá Reiðhjólaversluninni Berlin
sérhæfum okkur í klassískum
hjólum með „vintage“ útliti, sem
eru falleg útlits og höfða til fólks
sem vill ekki hjóla í sérstökum
hjólafötum, heldur í venjulegum
hversdagsklæðnaði. Það færist
líka sífellt í aukana að fólk fái sér
nagladekk á reiðhjólin fyrir veturinn
svo það geti haldið áfram að hjóla
í næstum hvaða færi sem er,“
segir Jón Óli Ólafsson, eigandi
fyrirtækisins.
Á staðnum er verkstæði og er
tekið á móti öllum gerðum reiðhjóla
til viðgerða, viðhalds, umfelgunar
og samsetningar á hjólum. „Við
höfum tekið á móti gömlum hjólum
og gert þau algerlega upp fyrir
viðskiptavini. Við eigum einnig lager
af nagladekkjum og erum í góðu
sambandi við aðila úti í heimi sem
eiga gott úrval af dekkjum með eða
án nagla. Við getum því pantað
næstum hvað sem er fyrir flestar
gerðir reiðhjóla.“
Jólahjól
„Fyrir jólin koma viðskiptavinir
hingað mikið í leit að jólagjöfum
fyrir hjólreiðafólkið í lífi sínu.
Í sumum tilfellum er fólk að
kaupa nýtt reiðhjól. Þá erum
við með gott úrval af fallegum
klassískum hjólum sem eru bæði
létt og þægileg og fullkomin fyrir
hverdagslegar hjólaferðir eða
einfaldlega sem ferðamáti til
og frá vinnu.“ Meðal vinsælustu
reiðhjóla hjá Berlín eru REID
Ladies Classics og svo hjól undir
merkinu Berlin. Verslunin býður
einnig reiðhjól frá Pure Cycles,
Achille og Pashley og Cinelli.
„Viðskiptavinir ættu því að geta fundið
sér eitthvað við hæfi hjá okkur.“
Fallegir fylgihlutir í jólagjöf
Reiðhjólaverzlunin Berlin er með
frábært úrval af fallegum og
skemmtilegum fylgihlutum fyrir
hjólreiðamanninn sem fullkomna hið
eftirsótta „vintage“ hjólaútlit. „Þessar
vörur eru þá tilvaldar í jólapakkann
til reiðhjólafólksins. Við eigum t.d.
falleg viðar- og leðurhandföng sem
setja punktinn yfir i-ið á „vintage“
útlitinu. Einnig erum við með flotta
stýrisvafninga og pedala í ýmsum
gerðum, hvort sem um klassíkt útlit
er að ræða eða örlítið nýstárlegra.
Að sjálfsögðu erum við með gott
úrval af breiðum og þægilegum
hnökkum sem fara vel með
sitjandann. Og til að geyma hjólið
þá eigum við ýmsar útfærslur af
hjólafestingum.“
Vörur sem fullkomna hjólið sem
ferðamáta
„Við erum með flottar hliðartöskur,
hnakktöskur, bakpoka, geggjaða
sokka og hjólahúfur. Svo erum við með
ótrúlega flotta vínflöskuhaldara úr leðri
sem festir eru á stellið. Þá erum við
með til sölu stórsniðugar yfirbreiðslur
fyrir þau hjól sem eru geymd inni eða
úti. Ekki má gleyma bögglaberum
framan eða aftan á reiðhjólið.“
Öryggi í umferðinni
Reiðhjólaverzlunin Berlin er með
gott úrval af fallegum, þægilegum
og síðast en ekki síst öruggum
hjólreiðahjálmum. Einnig er
verslunin með gott úrval af ljósum
og glitmerkjum fyrir hjólið sem
gerir rhjólreiðafólkið auðsýnilegt í
vetrarmyrkrinu. Þá er flott úrval af
hjólabjöllum í ýmsum gerðum sem
prýða hvaða hjól sem er. „Síðast en
ekki síst eigum við sterka og góða
kapal- og keðjulása sem og U-lása
fyrir allar gerðir reiðhjóla.“
Nánari upplýsingar má nálgast
á vefsvæði og vefverslun
Reiðhjólaverzlunarinnar Berlin
reidhjolaverzlunin.is
Ármúli 4, 108 Reykjavík.
Sími: 557-7777
Vefpóstur: jonoli@reidhjolaverzlunin.
is
Myndir: Eyþór Árnason