Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 12
12 4. október 2019FRÉTTIR Á gúst Elín Ingþórsdóttir, skólameistari Fjölbrauta­ skóla Vesturlands á Akra­ nesi (FVA), freistar þess nú að vera skipuð aftur í embætti skólameistara við FVA og hefur jafnframt kært þá ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráð­ herra að auglýsa starfið. Frá því að Ágústa tók við emb­ ættinu hefur hún mætt harðri gagnrýni fyrir stjórnunarhætti sína og framkomu við undir­ menn. Meðal annars hefur ríkið þurft að greiða ríflega fimm millj­ ónir króna í bætur og málskostn­ að til fyrrverandi aðstoðarskóla­ meistara sem Ágústa vék úr starfi án þess að fylgja réttum verkferl­ um. „Hafi skólameistari skömm fyrir“ Ágústa Elín var skipuð skóla­ meistari frá og með 1. janúar 2015 til fimm ára. Fljótlega eftir að hún tók við embættinu sagði hún upp sjö ræstingakonum sem störfuðu við skólann. Skólinn hafði verið rekinn með töluverðum halla árin á undan og voru þessar upp­ sagnir liður í tilraun Ágústu Elín­ ar til að rétta úr kútnum. Verka­ lýðsfélag Akraness gagnrýndi uppsagnirnar harðlega. Í yfirlýs­ ingu vegna málsins á heimasíðu félagsins frá 13. maí 2015 segir að það sé „dapurlegt og nöturlegt til þess að vita að á sama tíma og kennarar fengu 30 prósent launa­ hækkun sé krafist launalækkun­ ar hjá ræstingarfólki skólans. Þær konur sem þarna um ræðir hafa starfað þarna í allt að 30 ár við góðan orðstír.“ Kennarar skól­ ans mótmæltu einnig uppsögnun­ um og á fundi starfs­ manna FVA var sam­ þykkt ályktun þar sem starfsmenn mót­ mæltu uppsögnun­ um formlega og skor­ uðu jafnframt á Ágústu að draga þær tafarlaust til baka. Fráleitt væri að gera starfsfólk í ræstingu ábyrgt fyrir halla skólans. Í samtali við Skessuhorn sögðu ræstingakonurnar upp­ sagnirnar vera nöturlega sumar­ gjöf og Vilhjálmur Birgisson, for­ maður Verkalýðsfélags Akraness gerði uppsagnirnar að umfjöll­ unarefni á baráttufundi félagsins þann 1. maí 2015 þar sem hann sagði: „Hafi skólameistari skömm fyrir þessa framgöngu og skora ég á hann að draga þessar uppsagnir tafarlaust til baka og leita annarra leiða til að fara í vasa íslensks lág­ tekjufólks til hagræðingar.“ Kom fram við staðgengil sem aðstoðarmann Í mars á þessu ári féll dómur Landsréttar í máli Hafliða Páls Guðjónssonar, fyrrverandi að­ stoðarskólameistara FVA, gegn ríkinu. Kærði hann þar ákvörðun Ágústu Elínar að víkja honum fyrirvaralaust úr starfi aðstoðar­ skólameistara árið 2015, sem hann hafði aðeins nýlega tekið við, sem og úr kennarastarfi við skólann, en hann hafði unnið þar frá árinu 1998. Bæði héraðs­ dómur og Landsréttur komust að þeirri niðurstöðu að uppsögn Hafliða hefði verið ólögmæt, bæði hvað varðaði aðstoðar­ skólameistarastöðuna sem og kennarastöðuna. Greindi Hafliða og Ágústu á um hvað fælist í því að vera að­ stoðarskólameistari. Hafliði lagði hefðbundinn skilning í starfið, það er staðgengill skólameistara, en Ágústa Elín virtist fremur telja að Hafliði væri aðstoðarmaður hennar sem ætti að vera henni innan handar í hverju því verki sem henni dytti til hugar að fela honum. Skólanefnd FVA efast um að rétt hafi verið staðið að ráðn- ingu Ágústu Í október 2015, skömmu eftir að Hafliða Páli var vikið úr starfi, rit­ aði Reynir Eyvindsson, formaður skólanefndar FVA, pistil þar sem hann rakti aðkomu skólanefndar að ráðningu Ágústu Elínar. Í pistl­ inum gagnrýndi hann að mennta­ málaráðuneyti hefði bannað skólanefnd að boða umsækjend­ ur í viðtal heldur var þeim gert að byggja afstöðu sína alfarið á fyrir­ liggjandi gögnum. Nefndin mátti ekki einu sinni hafa samband við umsækjendur til að afla viðbótar­ gagna eða upplýsinga. Á papp­ írum voru Ágústa Elín og einn annar umsækjandi talin hæfust. Í kjölfar þess að Ágústa var ráð­ in sendi skólanefnd kvörtun til ráðuneytisins yfir ráðningarferl­ inu. „Það einkenndist allt af seinagangi og skorti á upplýsing­ um. Þessa kvörtun sendum við aftur 23. maí. Hvorugu erindinu var svarað.“ Kennarafélagið hafi einnig kvartað yfir Ágústu án þess að ráðuneytið gripi til aðgerða. Félagið kvartaði svo aftur eftir að Hafliða var vikið úr starfi og þá loks hafi borist viðbrögð frá ráðu­ neytinu. Reynir kvaðst þó í pistl­ inum aðeins vera hóflega bjart­ sýnn á að tekið yrði á málinu af festu. Svört skýrsla um faglega forystu Árið 2017 var gerð úttekt á starf­ semi FVA fyrir menntamálaráðu­ neytið. Þar segir meðal annars í niðurstöðum: „Ágreiningur er innan FVA um faglega forystu skólameistara“, „Augljós núning­ ur er á milli formanns nefndar­ innar [skólanefndarinnar] og skólameistara.“ Í úttektinni kom einnig fram að menntamálaráðuneytið hefði brugðist við kvörtunum og stríðs­ ástandinu í FVA með því að láta gera vinnusálfræðilega úttekt á ágreiningsmálum og með því að skipa svonefnda stjórnunarráð­ gjafa til að aðstoða Ágústu við að leysa samskiptavanda. Þrátt fyrir þessar aðgerðir segir í úttektinni: „Þrátt fyrir margvíslega ráðgjöf um aðgerðir og umbótaáætlun í mars 2016 tókst ekki að lægja öld­ ur“ og „Átök síðustu ára hafa sett sinn svip á skólastarfið og ímynd skólans hefur skaðast til skemmri tíma litið“. Af skýrslunni er ljóst að þó svo að samskiptaerfiðleik­ ar hafi dvínað, þá voru þeir enn til staðar þegar skýrslan var rit­ uð. Hins vegar er tekið fram í skýrslunni að um leið og Ágústa tók við embætti hafi hún ráð­ ist í hagræðingaraðgerðir sem voru ekki vinsælar meðal starfs­ manna en báru þó þann árang­ ur að skólinn var ekki lengur rek­ inn með halla strax eftir fyrsta ár hennar í starfi. Í skýrslunni kom einnig fram að FVA hefði einnig komið illa út í könnun SFR á Stofnun ársins, en FVA hafnaði þar í næstsíðasta sæti. Ágústa sendi ráðuneytinu athugasemdir vegna skýrslunnar þar sem hún hafnaði mestallri þeirri gagnrýni sem sett var fram í henni. Nokkrir starfsmenn innan skólans hafi magnað upp ástand sem hafi þegar verið til stað­ ar í skólanum, áður en hún tók við stöðunni. Andstaða við hana hafi verið skipulögð af nokkrum starfsmönnum strax eftir að Ágústa var ráðin. Einnig benti hún á að varðandi fullyrðingu um að átök hefðu sett svip á skóla­ starf og skaðað ímynd, að þarna væri um huglægt mat úttektar­ aðila að ræða og beinlínis rangt. Efaðist hún jafnframt um að hægt væri að mæla ímynd skóla. Tengsl inn í ráðuneytið Áður en Ágústa varð skólameist­ ari FVA hafði hún starfað í ríflega áratug í Borgarholtsskóla. Ólafur Sigurðsson var þá skólameist­ ari en hafði sagt starfi sínu lausu og tekið við stjórnunarstöðu hjá mennta­ og menningarmála­ ráðuneyti þegar Ágústa Elín var skipuð í starf, en það er mennta­ málaráðuneyti sem tekur end­ anlega ákvörðun um ráðningu skólameistara. Ólafur sá einnig um samskipti við lögmann áð­ urnefnds Hafliða Páls fyrir hönd mennta­ og menningarmála­ ráðuneytis í aðdraganda mál­ sóknarinnar. Tilkynning degi of seint Nú hefur Ágústa Elín kært ákvörðun menntamálaráðherra um að auglýsa stöðu skólameist­ ara FVA. Hefði henni átt að ber­ ast tilkynning fyrir þann 30. júní á þessu ári um að slíkt yrði gert. Hins vegar hafi tilkynning ekki borist fyrr en 1. júlí. Reyndar hefði Lilja hringt í Ágústu þann 30. júní, sem var sunnudagur, en formlegt bréf ekki borist fyrr en 1. júlí í tölvupósti og svo 4. júlí í ábyrgðarpósti. Ágústa telur því að skipun hennar eigi sjálfkrafa að framlengjast í fimm ár til við­ bótar, eða til 2025. Lilja Alfreðs­ dóttir hefur vegna þessa ákveðið að taka ekki þátt í ráðningarferl­ inu. nSmiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt „Hafi skólameistari skömm fyrir“ n Umdeildur skólameistari n Erfiðleikar í samskiptum og óánægja starfsmanna Erla Dóra erladora@dv.is Umdeildur skólameistari Skjáskot/RÚV Lilja Alfreðsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.