Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 24
Góðar stundir 04. október 2019KYNNINGARBLAÐ
Bókaðu tíma í Slökunarnudd eða Djúpvefjanudd
fyrir lok október 2019. Sýndu þessa afklippu
þegar þú borgar fyrir nuddið.
Einn afsláttarmiði gildir sem
20% AFSLÁTTUR
á einni meðferð
NUDDSTOFAN COSTA VERDE:
Augnablik til að slaka á
Nuddstofan Costa Verde sem er í glæsilegu húsnæði í Grafarvoginum býður upp
á fyrsta flokks nuddmeðferðir
framkvæmdar af reyndum
nuddurum.
Margar mismunandi
nuddmeðferðir eru í boði hjá Costa
Verde, allt frá slökunarnuddi til
heilandi meðferða. „Hjá okkur er
sérhver nuddmeðferð löguð að
þörfum viðskiptavinarins sem og
þjálfun og hæfileikum þess sem
hana veitir,“ segir Josy Zareen hjá
Costa Verde.
Við bjóðum upp á fjölbreyttar
nuddmeðferðir:
• Klassískt nudd
• Djúpvefjanudd
• Slakandi bakmeðferðir,
sérhannaðar fyrir fólk með
bakvandamál.
• MA-URI® Bodywork heilnudd.
NÝTT
• Japanskt nudd
• Taílenskt nudd
Costa Verde býður upp á
margar mismunandi og áhrifaríkar
nuddmeðferðir sem ætlað er að
taka á mismunandi vandamálum
sem hrjá hvern og einn. Nýjasta
meðferðin nefnist MA-URI®
Bodywork.
„MA-URI® Bodywork
nuddmeðferðin er heilandi
líkamsnudd í bland við listheilun.
Meðferðin kemur frá maóría-
frumbyggjum í Nýja-Sjálandi og
Havaí. Um er að ræða heilnudd
með olíu þar sem nuddþerapistinn
notar mestmegnis framhandleggi
og nuddar í takt við heilandi
tónlist. Nuddmeðferðaraðilinn
er í stöðugu hreyfingarflæði
sem fylgir fyrirframákveðnu
fótleggja- og líkamsstöðumynstri.
Nuddarinn nær með hreyfingu
sinni og nuddmynstri að veita
móttakandanum djúp kennsl.
Framhandleggir nuddarans sveipast
um líkamann í löngum strokum í takt
við tónlistina og framleiða stöðugt
orkuflæði sem hjálpar til við að losa
líkamsminningar. Á sama tíma virkjar
nuddið innbyggðan heilunarmátt
líkamans og fyllir hann af lífi. Nuddið
snertir jafnt á tilfinningalegum,
huglægum og andlegum veruleika
tengsla, heiðarleika, heilleika og
samhljóms,“ segir Josy.
Japanska nuddið byggir á
teygjum og þrýstipunktanuddi
sem stuðlar að bættri almennri
heilsu. Um er að ræða heildræna
nuddmeðferð sem tekur á hinum
ýmsu kerfum líkamans svo sem
sogæða-, tauga-, hormóna- og
blóðrásarkerfinu. „Japanskt nudd
hjálpar til við að koma í veg fyrir
sjúkdóma og er í mörgum tilfellum
áhrifarík meðferð gegn þeim. Auk
þess eykur nuddið færni líkamans í
að lækna sig sjálfur.“
Hefðbundið taílenskt nudd er
ævafornt og fjölbreytt heilunarkerfi
sem tvinnar saman bæði
einangraða og breiða notkun
á þrýstipunktanuddi, notkun á
jógastellingum með aðstoð sem
og örvun og meðhöndlun á sen-
orkulínum. „Líkaminn liðkast til og liðir
opnast, teygt er á vöðvum og sinum,
líffæri eru mótuð og orka er færð í
jafnvægi.“
Ef streita og þreyta þjaka þig þá
getum við hjálpað þér að finna
jafnvægi og vellíðan á ný.
Í meðferðum okkar notum við aðeins
sérvalin vörumerki sem við treystum.
Nánari upplýsingar má nálgast á
costaverde.is
Facebook: Costa Verde Nuddstofan
Opið er alla virka daga klukkan
9.00–21.00 og laugardaga klukkan
10.00–20.00.
Nuddstofan Costa Verde er að
Hverafold 1–3, „Foldatorgi“,
Grafarvogi.
Bókaðu á vefsíðunni okkar eða í
síma: 519-8222 / 789-6543
Myndir: Eyþór Árnason