Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 21
Góðar stundir
KYNNINGARBLAÐ
Mótaðu minningarnar
með Mótefni
04. október 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Þegar hausta tekur og laufin skipta lit, rigning verður að slyddu og myrkrið færist
yfir er fátt skemmtilegra og meira
viðeigandi en að fjölskyldan taki
sig saman og vinni saman að
skemmtilegum föndurverkefnum.
„Við hjá Mótefni bjóðum meðal
annars upp á nokkra skemmtilega
fjölskyldupakka með verkefnum
sem gaman er að vinna að í
sameiningu,“ segir Snæbjörn
Bergmann hjá vefversluninni
Mótefni.
Stöðvaðu tímann í gifsi
Vinsælasti fjölskyldupakkinn er
handpakki #1. Í pakkanum fylgir
allt til að gera mót og afsteypur af
höndum svo sem Alja Safe algín
mótunarefni, Hydrocal gifsduft
og fata fyrir mót, 15 cm í þvermál.
Þá eru ítarlegar og vel læsilegar,
skref fyrir skref leiðbeiningar
á ensku sem kenna manni að
taka mót af eigin hönd eða hönd
fjölskyldumeðlimar. Í pakkanum er
nóg efni fyrir eina fullorðinshönd
og tvær barnahendur, 4–8 ára.
„Það er svolítið eins og maður
sé að stöðva tímann og móta
minninguna í formi handar
barnsins. Við erum einnig að hanna
stærri pakka sem henta fyrir alla
fjölskylduna og fleiri hendur í einu.“
Fjölbreytt efni fyrir móta- og
afsteypugerð
Mótefni sérhæfir sig í móta- og
afsteypugerð, prótótýpusmíði
ásamt því að selja efni fyrir
móta- og afsteypugerð í gegnum
vefverslun fyrir fyrirtæki og
einstaklinga. „Við
flytjum inn alls konar sniðug efni
frá fyrirtækinu Smooth-On eins og
silíkon, rethane rubber og algínduft
fyrir mót. Svo flytjum við inn
urethane plast, epoxy, þenslufrauð,
grunna og líkamsmótunarefni fyrir
afsteypur. Þessi efni gera okkur
kleift að taka mót af hverju sem er
og búa til afsteypur.
Við erum með margar tegundir
af urethane rubber og silíkoni til
þess að búa til mót fyrir steypu,
mynstursteypu og steypustimpla.
Einnig erum við með epoxy til að
hjúpa ýmsa viði og rafmagnstæki.
Þá erum við með efni sem hægt
er að nota í arkítektúr til að
viðhalda gömlum húsum sem og
iðnaðarefni í prótótýpusmíði,
einangrunarefni, þéttihringa og
efni til ýmiss konar lagfæringa. Að
auki erum við með efni sem hægt
er að nota í eftirlíkingar af
líffærum og í uppbyggingu
stoðtækja.
Auk þess erum við með
úrval af efnum til að taka
mót af líkamanum sem og
efni til að búa til leikgervi
og ýkta förðun fyrir
sjónvarp og leikhús. Einnig
seljum við efni til að búa til
cosplay-búninga og leikmuni.
Listamenn kaupa af okkur
efni fyrir skúlptúra og fleira.
Svo má móta ýmist skraut í
fiskabúr. Þá erum við líka með
uppstoppunarefni. Svo eru efni
sem hægt er að nota í mót fyrir
konfekt, nammi eða ísmola. Að
lokum erum við að selja efni í sápu-
og kertagerð.“
Möguleikarnir eru endalausir
þegar kemur að mótum. „Þetta
snýst í rauninni bara um hvað þig
langar að gera. Hvað langar þig
að móta og úr hverju á afsteypan
að vera? Ertu fær í höndunum?
Þá geturðu mótað frummynd úr
leir eða sagað úr timbri og tekið
mót. Einnig er hægt að láta 3-D
prenta frummynd og nota efnin
okkar til að móta 3-D módelið og
fjöldaframleiða á stuttum tíma.
Einnig er hægt að nota urethane
resin efnin okkar í 3-D resin
prentara. Íslensk náttúra kemur
líka sterk inn þegar kemur að
skemmtilegum munstrum til þess
að móta. Láttu ímyndunaraflið
ráða áður en þú hefst handa og
búðu til mót og fallega afsteypu
sem hentar þínu verkefni.“
Gerðu þinn eigin
hrekkjavökubúning
Á vefsíðunni má finna margt
skemmtilegt. „Við erum með
fjölbreytt úrval af byrjendapökkum
sem eru t.d. frábær leið til að læra
undirstöðurnar í mótagerð fyrir
bæði 2-D og 3-D módel. Við erum
einnig með Ultimate Wound-kit
og Zombie-kit sem eru tilvalin fyrir
öskudaginn eða hrekkjavökuna.
Pakkarnir innihalda silíkonefni
til þess að búa til ótrúlega
raunveruleg sár. Silíkonið er öruggt
til notkunar á húð og aðlagast
líkamanum eins og alvöru skinn.“
Húsgagna- og skartgripasmíði
„Við erum líka með sterkari efni
sem þarf að meðhöndla með
varkárni. Þar má nefna Epoxacast
690 sem er mjög vinsælt epoxy-
efni til þessa að nota á viðarplötur.
Þetta er glært resin-efni sem
hjúpar yfirborð og harðnar með
glerlíkri áferð. Efnið má nota á
gler, leir, málm, grjót, silíkon, við og
plast. Margir hafa notað það til að
búa til hin þekktu lækjarborð (e.
river tables) en einnig hentar efnið
mjög vel í skartripagerð og í að búa
til glærar linsur.“
Nánari upplýsingar á vefsíðunni
motefni.is
Fylgstu með á Facebook: Mótefni
Vefpóstur: motefni@motefni.is
Sími: 845-0034