Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 29
FÓKUS 294. október 201910 Demi Moore
n Móðir hennar seldi aðgang að
líkama hennar n Hjónaböndin,
framhjáhaldið og fíknin
L
eikkonan Demi Moore gaf nýverið út
sjálfsævisöguna Inside Out þar sem hún skefur
ekkert af lífshlaupi sínu, hæðum og lægðum. DV
kíkti á tíu opinberanir í bókinni sem gætu komið
einhverjum á óvart.
Erfið æska
Demi rifjar upp sársaukafullan tíma í uppvexti sínum, þar
á meðal þegar að móðir hennar, Virginia Guynes, reyndi
að fremja sjálfsvíg, og það oftar en einu sinni. „Það næsta
sem ég man er að ég notaði fingurna, mína litlu barnslegu
fingur, til að grafa eftir pillum sem móðir mín hafði reynt
að gleypa á meðan faðir minn hélt munni hennar opn
um og sagði mér hvað ég ætti að gera,“ skrifar Demi,
sem var aðeins tólf ára gömul þegar þetta til
tekna atvik átti sér stað. Nokkrum árum síðar
komst Demi að því að maðurinn sem hún
hélt að væri faðir hennar, Dan Guynes,
var það ekki. Demi komst að þessu þegar
hún fann giftingarvottorð foreldra sinna
sem var dagsett ári eftir að hún fæddist.
Móðir hennar tilkynnti Dan þetta á
mjög dramatískan hátt og hann yfir
gaf mæðgurnar stuttu síðar.
Hórumamma
Demi segir frá því í bókinni að móðir hennar hafi farið
með hana á bari þegar hún var táningur. Þegar Demi
var fimmtán ára kom hún heim og þá beið maður
hennar þar.
„Ég er búin að loka á nákvæmlega hvað gerðist.
Það sem gerðist á milli þess að ég opnaði dyrnar og ég
velti fyrir mér hvort móðir mín hefði látið hann fá lykil,
á milli þess sem mér leið eins og ég væri fangi á eigin
heimili með manni sem var þrisvar sinnum eldri en
ég og tvisvar sinnum stærri og þar til hann nauðgaði
mér,“ skrifar hún. „Ég hafði engan til að vernda mig.“
Þessi maður sneri aftur á heimilið stuttu síðar
til að hjálpa mæðgunum að flytja. Þá sagði hann
Demi að hann hefði borgað móður hennar til að fá
að nauðga henni. „Hvernig á manni að líða þegar
að móðir manns selur mann fyrir fimm hundruð
dollara?“
Mistök að sofa hjá Lowe
Demi fer yfir gamla elskhuga í bókinni, nánar tiltekið Jon Cryer,
Rob Lowe og Emilio Estevez. Leikkonan svaf hjá Jon Cryer þegar
þau voru við tökur á No Small Affair, sem sýnd var árið 1984. „Jon
féll fyrir mér í raunveruleikanum líka og hann missti sveindóminn
með mér þegar við lékum í þessari mynd,“ skrifar hún. „Það veld
ur mér sársauka þegar ég hugsa um hve kaldrifjuð ég var – að ég
hafi stolið einhverju sem hefði geta verið mjög mikilvæg og falleg
stund frá honum.“ Demi svaf hjá Rob Lowe við tökur á St. Elmo’s
Fire frá árinu 1985. Hún segir að það hafi verið mistök. Hún
hefur hins vegar ekkert nema gott eitt að segja um Emilio
Estevez, en þau hittust um tíma og trúlofuðu sig.
Þrjátíu daga rugl
Demi lýsir því hvernig hún komst á kókaínbragðið þegar hún var við
tökur á kvikmyndinni Blame It on Rio frá árinu 1984. Leiðin lá hratt
niður á við og hún varð sér út um kókaín hjá tannlækninum sínum
annars vegar og viðskiptafélaga hins vegar. Hún fór í meðferð þegar
stórlaxar í kvikmyndabransanum kröfðust þess, en þá var hún aðeins
búin að nota kókaín í þrjátíu daga.
Dæmt til að mis-
takast
Demi segir í bókinni að Bruce
Willis, sem hún gekk að eiga árið 1987,
hafi ekki viljað halda hjónabandinu áfram eftir
að þau eignuðust eldri dóttur sína, Rumber,
árið 1988. „Bruce vildi ekki vera maðurinn sem
yfir gaf fjölskylduna sína. Hann vildi ekki gera
barninu sínu það,“ skrifar hún. „Þegar hann fór
til að taka upp Hudson Hawk var hjónabandið
brothætt. Ég heimsótti hann einu sinni og fékk á til
finninguna að hann væri búinn að halda framhjá mér.“
Fallið
Leikkonan féll á vímuefnabindindinu þegar hún var gift
Ashton Kutcher.
„Ashton fékk sér rauðvín þegar hann sagði: „Ég veit
ekki hvort að alkóhólismi er til – ég held að þetta snúist
allt um meðalhóf“,“ skrifar Demi. „Mig langaði að vera
þessi stelpa. Stelpan sem gæti bara fengið sér vínglas með
matnum eða tekílastaup í partíi. Ég held að Ashton hafi
viljað það líka.“
Svo fór að Demi féll og drukknaði næstum því í heitum
potti á 45 ára afmæli sínu árið 2007. Hún segir að Ashton
hafi verið „bálreiður“ eftir það atvik, sem gerði hana
ringlaða því hann „hvatti“ hana til að „fara í þessa átt“.
Missti fóstur
Hjónabandið með Ashton virðist hafa haft mest áhrif á
Demi og hún segir í bókinni að hún hafi aldrei verið jafn
hamingjusöm og með honum. Þau byrjuðu saman árið
2003 og einu og hálfi ári síðar varð Demi ólétt, þá 42 ára.
Sex mánuðum síðar missti hún fóstur en í bókinni segir hún
að hún hafi átt von á stúlku með Ashton og að parið ætlaði að skíra
hana Chaplin Ray.
„Mér fannst þetta klárlega vera mér að kenna. Ég hefði aldrei
misst barnið ef ég hefði ekki byrjað aftur að drekka. Ég reykti enn
þegar ég komst að því að ég væri ólétt og það tók mig nokkrar vik
ur að hætta. Ég var þjökuð af samviskubiti og sannfærð um að
þetta væri mín sök,“ segir Demi.
Framhjáhaldið
Demi segir að Ashton hafi stungið upp á því að fara í trekant. „Við
opnuðum samband okkar fyrir tveimur manneskjum. Þetta var gott
fólk en þetta voru samt mistök.“. Demi kenndi sjálfri sér um þegar
sögusagnir fóru á kreik um framhjáhald Ashtons, sem hann staðfesti.
„Sama hvaða sársauka við upplifðum þá gerði hann það að verkum
að við gátum vaxið og orðið þær manneskjur sem við erum í dag.“
opinberanir úr bók
Sama um eiginkonuna
Demi giftist fyrst 1980. Það var tónlistarmaðurinn Freddy Moore
sem var sá heppni, en hjónabandið entist í fimm ár. Í bókinni játar
hún að sambandið hafi byrjað sem framhjáhald.
„Ég var sjálfumglaður táningur sem ólst ekki upp við að læra að hjóna
bandið væri heilagt,“ skrifar Demi, en hún var sextán ára þegar hún
kynntist Freddy. „Ég stökk inn í líf með Freddy án þess að hafa miklar
áhyggjur af eiginkonu hans, því miður.“
Í bókinni skrifar Demi enn fremur að hún hafi haldið framhjá
tónlistar manninum kvöldið áður en þau gengu í það heilaga.
Átröskunin
Holdafar leikkonunnar hefur oft verið til umræðu en hún játar það í bók
inni að hafa verið haldin átröskun og að það hafi byrjað þegar henni var
sagt að léttast fyrir kvikmyndina About Last Night frá árinu 1986 því hún
var „ekki nógu grönn til að vera aðalleikkona.“
Demi fékk þráhyggju fyrir líkamsrækt eftir að hún eignaðist sitt annað
barn með Bruce Willis, dótturina Scout, árið 1991.
„Mér fannst eins og ég gæti ekki hætt að æfa,“ skrifar hún. „Það
var vinnan mín að passa í herbúninginn sem ég ætti að vera í eftir tvo
mánuði í A Few Good Men. Að koma mér í form fyrir þá mynd kveikti
þráhyggju fyrir líkamsrækt sem myndi gleypa mig næstu fimm árin.“
Þegar að Demi lék í Striptease árið 1996 þróaði hún með sér óheilbrigt
samband við mat og borðaði aðeins hálfan bolla af hafragraut, kjöt og
grænmeti.
„Ef þessi þráhyggja varðandi líkama minn hljómar brjáluð þá skjátlast
þér ekki: átraskanir eru brjálaðar, þetta er sjúkdómur. En það gerir þær
ekki minna raunverulegar.“