Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 22
Góðar stundir 04. október 2019KYNNINGARBLAÐ HÚÐFEGRUN: Hátæknilegar og árangursríkar húðmeðferðir Húðfegrun er öflugt hátæknifyrirtæki á heilbrigðissviði sem hefur verið starfrækt frá árinu 2000. Starfsmenn Húðfegrunar eru fimmtán talsins og bjóða upp á heildrænar húðmeðferðir fyrir andlit og líkama, með það að markmiði að bæta heilsu húðarinnar á náttúrulegan hátt. Meðferðaraðilar Húðfegrunar hafa lokið hjúkrunarfræði- eða læknisfræðimenntun auk sérþjálfunar í notkun lasertækni og annars konar hátækni til að leysa ýmsan húðvanda. Húðfegrun notar bestu fáanleg tæki hverju sinni og starfsfólkið hlýtur stöðuga þjálfun og tileinkar sér nýjungar. Hvað er það mikilvægasta þegar kemur að umhirðu húðarinnar? Starfsmenn Húðfegrunar eru sérfræðingar þegar kemur að húðumhirðu og luma á ýmsum góðum ráðum og vörum sem hjálpa til við að bæða ástand húðarinnar. „Það skiptir miklu máli að hugsa vel um sig, borða hollan mat og drekka vel af vatni. Hreyfing og svefn viðhalda einnig góðri húðheilsu ásamt því að nota góð krem. Svo eru ýmsar meðferðir sem geta hjálpað til við að bæta húðheilsu og sérfræðingar Húðfegrunar eru þjálfaðir í að meta hvaða meðferð hentar hverjum og einum,“ segir Bryndís Alma Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Húðfegrunar. Vinsælar meðferðir fyrir karla og konur Bæði konur og karlar koma í meðferð hjá Húðfegrun og vinsælustu meðferðir stofunnar eru Laserlyfting, gelísprautun og Hollywood Glow. Laserlyfting er náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar. Um er að ræða byltingarkennda tækni í meðferð á línum, hrukkum og slappri húð. Hægt er að meðhöndla húð á andliti, hálsi, svæði undir höku, bringu og handarbökum. Gelísprautun er framkvæmd með Neauvia Organic, sem er hreinasta og öruggasta efnið á markaðnum. Línur, drættir og hrukkur jafnast út með gelísprautun auk þess sem húðin öðlast ljóma og þéttleika. Þú getur valið um fyllingu í varir, hrukkur, línur, ör, kinnar, kinnbein og höku, svo eitthvað sé nefnt. Hollywood Glow er ein vinsælasta meðferðin hjá stjörnunum fyrir sérstök tilefni. Meðferðin þéttir húð á andliti og hálsi ásamt því að gefa henni samstundis aukinn ljóma. Einnig spornar meðferðin við öldrun húðarinnar ásamt því sem hún fær fallegri áferð. Nýtt hjá Húðfegrun – Augnlyfting Við bjóðum 20% afslátt af augnlyftingu í október. Þessi nýja og byltingarkennda meðferð er einungis í boði hjá Húðfegrun. Augnlyfting er sniðin til að lyfta augnlokum sem farin eru að síga. Meðferðina má einnig framkvæma til að þétta slappa húð undir augum og grynnka hrukkur og fínar línur á augnsvæði. Gjafabréf Húðfegrunar eru vinsæl bæði sem tækifærisgjafir og í jólapakkann. Nánari upplýsingar má nálgast á hudfegrun.is Vegmúli 2, 108 Reykjavík Sími: 533-1320 Vefpóstur: hudfegrun@hudfegrun.is Facebook: Húðfegrun Instagram: Húðfegrun Au glý sin g Starfsfólk Húðfegrunar skellti sér í námsferð í september. Hér er mynd af hópnum í þjálfun hjá Alma Lasers í Ísrael.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.