Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 30
30 4. október 2019 SAKAMÁL MORÐVARGURINN FRÁ WILDWOOD Ernest virtist í eilífum vandræðum n Skapbráður flagari nTók lögin í sínar hendur með banvænum afleiðingum E rnest nokkur Ingenito fæddist í Wildwood í New Jersey í Bandaríkjunum 27. maí 1924. Foreldrar hans voru Ernest eldri og Helen og var Ernest yngri elsta barn þeirra. Eitthvert rótleysi virðist hafa verið viðloðandi fjölskylduna sem flutti nokkuð oft á milli Wildwood og Fíladelfíu en greinilega var ekki allt í góðu milli foreldra Ernests yngri því þeir sátu vart á sárs höfði og þegar hann var þrettán ára skildu Ernest eldri og Helen. Betrun og hjónaband Án efa hafði sífelldur þvælingur og deilur foreldranna áhrif á Ernest því aðeins tíu ára að aldri lenti hann í vandræðum vegna þjófnaðar og fjórtán ára var hann sendur í betrunarvist vegna afbrota. Næstu árin var hann með annan fótinn í betrunarhúsum, en að lokum sáu yfirvöld aumur á honum og leyfðu honum að flytja til Wildwood, til móður sinnar. Tíminn leið og árið 1941 gekk Ernest í hjónaband. Eiginkona hans þoldi skapbresti hans um skeið, en fékk sig að lokum fullsadda af hvoru tveggja illri meðferð af hans hálfu og kvennafari og lét sig hverfa. Afskráður með skömm Þegar þarna var komið sögu var síðari heimsstyrjöldin hafin og Ernest gekk í herinn og var staðsettur í Fort Belvoir í Virginíu. Dvöl hans í hernum lauk árið 1946 þegar hann var afskráður með skít og skömm. Þá hafði herdómstóll réttað yfir Ernest í tvígang, annars vegar fyrir að hafa verið fjarverandi án heimildar og hins vegar fyrir að hafa slegið tvo yfirmenn. Fyrir seinna brotið fékk Ernest átta ára dóm og afplánaði af honum tvö ár í Green Haven- herfangelsinu í Sing Sing. Gifting og grænmeti Laus úr fangelsi gekk Ernest í hjónaband öðru sinni, þá með Theresu Mazzoli, 21 árs dóttur Michaels og Pearl Mazzoli. Nýju tengdaforeldrarnir áttu grænmetisrækt við Pine Hollow- veg í Franklin í Gloucester-sýslu í New Jersey. Theresa taldi Ernest á að flytja inn til fjölskyldunnar og um sinn virtist allt leika í lyndi. Ernest hóf störf á bænum og þau hjónin eignuðust tvo syni. Vel fór á með Ernest og tengdaföður hans, en slíkt hið sama var ekki hægt að segja um samskipti hans og tengdamóður hans, Pearl. Allt fer til fjandans Að lokum fór að hrikta í stoðum hjónabands Ernests og Theresu og verulega féll á samband Ernests og allrar fjölskyldu hennar eftir að hann hóf störf í raftækjaverslun í grenndinni. Michael komst síðan að því að tengdasonur hans væri farinn að halda framhjá Theresu og það reyndist kornið sem fyllti mælinn. Ernest var umsvifalaust úthýst og kom sér fyrir á gistiheimili í nokkurra kílómetra fjarlægð. Þar voru fyrir tveir vinir föður hans, Al og Kay Rulis, sem reyndar koma ekki frekar við sögu. Æfir skotfimi Nú, Theresa fór á fullt við undirbúning skilnaðar og Ernest hafði, að sögn, samband við lögfræðing til að tryggja að hann fengi séð syni sína tvo. Fleira gerðist, því um þetta leyti fór Ernest að æfa skotfimi og varð tíður gestur í skotfæraverslunum þar sem hann keypti ógrynnin öll af skotfærum fyrir sístækkandi byssusafn sitt. Að kvöldi 17. nóvember, 1950, ákvað Ernest að tími væri kominn til að láta sverfa til stáls og ákvað að taka lögin í sínar hendur. Morðhrinan hefst Klukkan átta það kvöld ók Ernest sem leið lá að heimili Mazzoli- fjölskyldunnar. Því fór fjarri að hann væri tómhentur því í farteski sínu hafði hann Luger- skammbyssu sem hann hafði gert sjálfvirka, hálfsjálfvirka Mauser C96 og .32 kalíbera riffil. Ernest hitti Theresu og krafðist þess að fá að sjá syni sína. Tengdafaðir hans blandaði sér í málið og án frekari málalenginga skaut Ernest hann tveimur skotum, sem urðu honum að bana. Theresa snerist á hæli og hugðist leita skjóls í aðliggjandi borðstofu, en Ernest náði að skjóta hana í tvígang, annað skotið hafnaði í kvið hennar og hitt í öxlinni. Engum eirt Pearl sá þá sitt óvænna, yfirgaf húsið og hljóp yfir götuna þar sem foreldrar hennar bjuggu. Ernest fylgdi í kjölfarið og skaut móður Pearl, Theresu Pioppi, í dyragættinni. Hann klofaði yfir lík Theresu og skaut til bana Ernest Ingenito Vandræði einkenndu allt hans líf. Í járnum Þjóðvegalögreglan í New Jersey handsamaði Ernest. „Hann varð tíður gestur í skotfæraverslunum þar sem hann keypti ógrynnin öll af skot- færum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.