Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2019, Blaðsíða 25
Góðar stundir04. október 2019 KYNNINGARBLAÐ
HYDRA FLOT SPA:
Draumkennt þyngdarleysi
gegn svefnleysi, kvíða og
einbeitingarskorti
Nútímafólk sækist í auknum mæli eftir slökun og íhugun til að draga úr streitu og
fá stundarfrið frá áreiti heimsins.
Sérstakir flottankar þar sem hægt
er að fljóta um í þyngdarleysi eru
áhugaverð nýjung sem veitir fólki
magnaða upplifun og einstaka
kyrrðarstund. Flotið verður
sívinsælla með hverjum degi,
hvort heldur er hjá ungum eða
öldnum, afreksfólki í íþróttum,
kaupsýslumönnum eða hinum
venjulega meðaljóni. Óléttar
konur hafa einnig hrósað Hydra
Flot í hástert. „Fólk er síþreytt
og orkulaust, á erfitt með að
einbeita sér og kann ekki að slaka
á. Flotið veitir hámarks afslöppun
í fullkomlega hönnuðu umhverfi,“
segir Ryan Kevinson, annar
eigenda Hydra Flot Spa.
Draumkennt þyngdarleysi
Ryan og kona hans, Fríða Rakel
Kaaber, opnuðu heilsulindina í
maí 2018 þar sem þau bjóða
upp á flotupplifunina í þremur
sérstökum flottönkum. „Flotið hefur
einstaklega góð og slakandi áhrif á
bæði líkama og huga einstaklings.
Magnesíumsöltin sem við notum
eru þau sömu og eru notuð af
meðferðaraðilum í íþróttum í
vöðvabaðmeðferðum. Magnesíum
hefur þekkt jákvæð áhrif á líkamann,
og meðal annars hefur það góð áhrif
á svefn, kvíða, orku og einbeitingu.
Að auki er 500–600 kíló af Epsom-
salti leyst upp í hverjum tanki fyrir
sig og hitastig er það sama og húðin
svo að einstaklingurinn upplifir sig í
algeru draumkenndu þyngdarleysi
líkt og í Dauðahafinu.“ Umhverfið
býður upp á algera hugræna og
líkamlega slökun. Einnig má velja
að vera án nokkurs sjónræns eða
hljóðræns áreitis, sem býður upp á
enn dýpri slökun. Tankar af þessu
tagi hafa meðal annars verið notaðir
af NASA og bandaríska hernum til
að rannsaka mannshugann. Fólk
líkir þessu oft við að öðlast góðan
nætursvefn á eingöngu einni
klukkustund.“
Hydra Flot mun á næstu
dögum auka við þjónustu sína
til þess að koma til móts við
innlenda viðskiptavini. „Við munum
fljótlega bjóða upp á vikulega og
mánaðarlega áskrift af samsettum
pökkum sem innihalda flotmeðferð,
Cryo-air-andlitsmeðferðir og
lúksus nuddstólatíma.“ Um er að
ræða hágæða þýskan nuddstól
sem viðskiptavinum er boðið að
setjast í fyrir eða eftir flottímann.
Teygjanlegur stóllinn er útbúinn
loftpúðum og innbyggðum
sætishitara, fjögurra vídda baknuddi
og hallast þannig að manni finnst
maður svífa um í þyngdarleysi.
Í Cryo-air-andlitsmeðferðinni
eru ekki nein skaðleg efni notuð
eins og nitur í vökvaformi, heldur
eingöngu tandurhreint íslenskt loft.
Meðferðin er áhrifarík fyrir húðina
og taugakerfið og stuðlar að bættu
og heilbrigðu útliti. „Í öllum okkar
meðferðum notum við eingöngu
náttúrulegar og skaðlausar
aðferðir sem við mögnum upp í hag
nútímamanninum og áhrifin eru
augljós.“
Komdu í flot í hverri viku
„Áskriftapakkarnir verða fáanlegir
innan skamms en í millitíðinni
ætlum við að bjóða upp á veglegan
afslátt.“ Þá kostar ekki nema
5.900 kr. fyrir einn í flot og 8.900
kr. fyrir tvo. Tilboðið gildir aðeins í
takmarkaðan tíma svo það er um
að gera að panta sem fyrst og nýta
sér þetta einstaka tækifæri. Nýttu
þér tilboðið með því að bóka núna á
shop.hydraflot.is.
„Flotið hefur verið vinsælt í
stefnumótasenunni en það eru sífellt
fleiri sem koma vikulega fyrir þau
einstöku og slakandi áhrif sem flotið
veitir. Þessi nýstárlega heilsurækt
er talin geta unnið gegn svefnleysi,
verkjum, kvíða, þunglyndi og jafnvel
fíkn. Þeir sem prófað hafa tankana
hjá Hydra Flot Spa eru afar ánægðir
og á Facebook-síðu heilsulindarinnar
er að finna afar jákvæðar umsagnir
hrifinna viðskiptavina. Meðal þeirra
er Sylvía Rut sem skrifar:
„Fór út fyrir þægindarammann
í dag og skellti mér í flot, var bæði
mjög spennt að prófa e-ð nýtt en
líka kvíðin og stressuð þar sem ég
fæ stundum innilokunarkennd. En
þetta var „out of this world“ upplifun!
Eigandinn fór vel yfir ferlið og gaf
góð ráð um hvernig væri best
að venjast og ná að slaka á, sem
þrælvirkaði. Mér leið strax vel ofan í
tanknum (engin innilokunarkennd),
meira að segja þegar ljósin
slokknuðu sem ég var búin að vera
smá stressuð fyrir. Þetta var algjör
unaður, bæði náði ég betri slökun
en ég hef áður upplifað og saltið í
vatninu gerði húð og hár silkimjúkt.
Ég mun að öllum líkindum verða
fastakúnni hér og get 100% mælt
með þessu. Takk fyrir mig.“
Aðrir viðskiptavinir greina
meðal annars frá því hve dvölin í
tönkunum hafi verið streitulosandi
og vöðvaslakandi. Það er áhugaverð
og heillandi hugmynd að svipta
mann um stund öllu áreiti, að loka á
skynfærin og vera fullkomlega einn
með sjálfum sér um leið og líkaminn
fær dásamlega hvíld. Þetta er
eitthvað sem fólki finnst spennandi
að prófa og þeir sem hafa gert það
eru mjög hrifnir af upplifuninni og
áhrifunum á líkama og sál.
Sjá nánar á vefsíðunni hydraflot.is
og Facebook-síðunni: hydraflot.
Fyrir nánari upplýsingar má senda
póst á cryo@hydraflot.is
Hydra Flot Spa er staðsett að að
Rauðarárstíg 1, á Hlemmtorgi.