Fréttablaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 38
10. JANÚAR 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● skólar & námskeið
Nýtt spennandi meistaranám í haf- og
strandsvæðastjórnun hefst við Há-
skólasetur Vestfjarða á hausti kom-
anda.
„Í framtíðarsýn Háskólasetursins er gert
ráð fyrir að skólinn einbeiti sér að málefn-
um hafsins og hafsvæða í víðasta skiln-
ingi. Nálægð við hafið og mikil þekking á
málefnum hafs og strandar finnst í ríkum
mæli á Ísafirði; hvort sem litið er til hins al-
menna samfélags, fyrirtækja í sjávarút-
vegi eða ýmissa rannsóknarstofnana sem
starfa á svæðinu. Matís, Hafrannsóknastofn-
un, Veðurstofa Íslands, Náttúrustofa Vest-
fjarða og fleiri aðilar styrkja allar umhverfi
námsins,“ segir Ingi Björn Guðnason, verk-
efnastjóri við Háskólasetur Vestfjarða á Ísa-
firði. Námið er alþjóðlegt og kennt á ensku,
og mun því höfða jafnt til íslenskra og er-
lendra stúdenta.
„Nám af þessu tagi hefur vantað á Ís-
landi. Nú er í fyrsta sinn boðið upp á auð-
lindastjórnunarnám sem er sérhæft í mál-
efnum hafs og strandar. Það er kunnara en
frá þurfi að segja að bæði haf og strönd eru
mikilvæg Íslendingum, sem flestir búa á
strandsvæðum. Auðlindir sjávar eru okkur
afar mikilvægar og ekki síður nýting þeirra,
sem alltaf er að breytast og verða fjölbreytt-
ari,“ segir Ingi Björn um hið nýja meistara-
nám sem fram fer á Ísafirði í samstarfi við
Háskólann á Akureyri.
„Námið er þverfaglegt og byggir einkum
á þremur fræðigreinum; vistfræði, hagfræði
og stjórnmálafræði. Eins og annað meistara-
nám er haf- og strandsvæðastjórnun krefj-
andi rannsóknarnám, en virkilega spennandi
og skemmtilegt. Námið er 120 ETCS-eining-
ar, sem jafngildir 60 einingum í gamla ís-
lenska kerfinu, en námsefni verður kennt
í fimm þriggja vikna lotum á önn, þar sem
einn sex eininga kúrs er kenndur í hverri
lotu. Það býður upp á marga möguleika, eins
og sveigjanleika í endurmenntun fyrir þá
sem ekki ætla að ljúka meistaragráðu, og
auðveldar okkur að fá kennara sem víðast
að; hér heima og að utan,“ segir Ingi Björn,
og hægt er að ljúka námi á einu og hálfu ári
því boðið er upp á sumarönn fyrir nemend-
ur í fullu námi.
„Þeir sem útskrifast munu nýtast op-
inberum aðilum, sveitarfélögum, ríki og
fyrirtækjum sem umgangast auðlindir hafs-
ins. Meistarapróf nýtist alls staðar á vinnu-
markaði og námið tekur á málefnum sem
eru afar knýjandi bæði nú og í framtíðinni,“
segir Ingi Björn og bætir við að starfsmenn
Háskólaseturs séu til þjónustu reiðubúnir
að leggja námsmönnum lið við húsnæðisleit,
almenna innkomu í samfélagið og leik- og
grunnskólamál.
- þlg
Meistarar við ysta haf
Hér stendur Ingi Björn Guðnason, verkefnastjóri Háskólaseturs Vestfjarða, með Vestfjarðakjálkann í
baksýn, en í haust verður hægt að stunda nýtt og spennandi meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun
í hinum heillandi Ísafjarðarbæ sem umlukinn er stórbrotinni náttúrufegurð, friðsæld og fallegu mannlífi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Háskólanám af ýmsum toga er
mjög vinsælt á Íslandi. Frétta-
blaðið fýsti að vita hvaða nám
hefði flesta nemendur í hverj-
um skóla. Hér er niðurstaða
óformlegrar könnunar meðal
nokkurra háskóla.
Háskólinn á Akureyri:
Viðskipta- og raunvísinda-
deild
Kennaradeild
Heilbrigðisdeild
Félagsvísinda- og lagadeild
Háskóli Íslands:
Félagsvísindadeild
Viðskipta- og hagfræðideild
Lagadeild
Verkfræðideild
Læknadeild
Háskólinn í Reykjavík:
Viðskiptadeild
Tækni- og verkfræðideild
Lagadeild
Tölvunarfræðideild
Háskólinn á Bifröst:
Viðskiptadeild
Lagadeild
Félagsvísindadeild
Frumgreinadeild
Vinsælasta
námið
Innritun í fjarnám Iðnskólans stendur yfir á netinu:
www.ir.is (Námsframboð – Fjarnám)
Innritun lýkur 20. janúarog kennsla hefst
miðvikudaginn 23. janúar.
Fjarnám Iðnskólans í Reykjavík – vorönn 2008
Netkerfi: CNA 103, 403
Netstjórnun: 103, 203, 213
Forritun: FOR 103, 203, 303
Gagnasafnsfræði: GSF 103, 203
Tölvufræði
í fjarnámi
12 vikur - 40 mínútna tímar - 1 sinni í viku
Einkatímar: kr. 47.000-
Geisladiskur með upptöku nemanda í lok námskeiðs.
Hóptímar fyrir 6-9 ára: kr. 35.000-
Gítarskólinn er aðili að frístundakorti Í.T.R. www.itr.is
Öll stílbrigði !
Fyrir byrjendur á öllum aldri og lengra komna
Gítarkennsla er okkar fag !
Gítarskóli Íslands • Síðumúla 29 • Sími 581-1281 • gitarskoli@gitarskoli.is • www.gitarskoli.is
Gítarnámskeið
Hefst 21. janúar