Fréttablaðið - 10.10.2015, Side 35
Sigti = Einhver sem viðkomandi
hyggst reyna við
Þetta slangur kemur, eins og svo margt annað
slangur, úr Mosfellsbæ. Sigti er notað yfir þann
einstakling sem viðkomandi ætlar að reyna
við. Vísunin er að sá eða sú sem skuli reyna við
verði sigtaður út úr fjöldanum. Steindi jr. gerði
til dæmis lagið Sigta salta, ásamt Ladda, þar
sem þetta slangur kemur fyrir.
Dæmi um notkun: „Þessi er mjög heit.
Hún er algjört sigti.“
52
. #
Br
an
de
nb
ur
g
Árlega deyja 52 einstaklingar úr ristilkrabbameini.
Það má koma í veg fyrir það.
Kauptu Bleiku slaufuna og hjálpaðu okkur að hefja
skipulagða leit að ristilkrabbameini.
Slangurorðabók Moiarinn, weisla, bae og fam Hvað þýðir allt slangrið?
Sígilt slangur
Station helgi = Helgi þar sem
djammað er föstudag og laugardag
„Station helgi“ er áratuga gamalt slangur, sem viðheldur sér því það
hefur mjög þrönga og nákvæma skilgreiningu.
Dæmi um notkun: „Ég er að fara í afmæli á föstudaginn og
innflutningspartí á laugardag. Alvöru station helgi.“
Frænka/Frændi = Notað yfir fólk sem um ræðir, án þess að það sé skylt manni
Hægt er að tala um frænkur og frændur án þess að þau séu það í raun og veru. „Hvað er uppi frændi?“ er til dæmis frægt lag með Gísla Pálma.
Þegar karlmenn tala um frænkur geta þeir verið að tala um vinkonur, eða kvenfólk sem þeir hyggjast reyna við.
Dæmi um notkun: „Hvað er uppi frændi?“
Slangur
héðan og þaðan
Smella = Sígaretta
Sjonni = Bumba sem hangir yfir beltið
Stullur = Stuttbuxur
Beila = Stinga af
Lumma = Munntóbak, en getur líka þýtt
pitsa.
Stillimynd (dagskráin búin) = Einhver er
sofnaður, af hvaða ástæðu sem það er.
Að sneika sér = Komast fram hjá
einhverju eða koma einhverju undan.
Að vera á halanum = Að vera ölvaður
Að vera á halanum er klassískt slangur og merkir að vera undir áhrifum
eða að vera ölvaður. Ef eldra fólk er ölvað er hægt að tala um risaeðlur.
Dæmi um notkun: „Þarna er einhver risaeðla á halanum.“
Skinka = Ákveðin týpa af stúlkum
Skinka er beinþýðing á orðinu „skank“ og nær yfir ákveðnar
týpur af stúlkum, sem er í raun skilgreiningaratriði. Þetta er
notað á frekar niðrandi hátt og hefur verið í notkun í yfir áratug.
Til eru ýmiss konar tegundir af skinkum, og eru þá forskeyti sett
framan við.
Dæmi um notkun: „Þessi er algjör skinka.“
Ertu að skynja mig = Skilur þú mig?
Í raun er erfitt að niðurnjörva það nákvæmlega hvað „skynja mig“
þýðir. Það getur þýtt svo margt. Hægt er að varpa þessari spurn-
ingu fram þegar maður er óviss hvort viðmælandi manns skilji
hvað maður er að meina, en einnig er hægt að henda henni fram á
retorískan hátt, út í kosmósið.
Dæmi um notkun: „Fattarðu hvað ég er að meina, frændi? Ertu
að skynja mig?“
Lö Lö = Lögreglan
Til eru ýmis slanguryrði yfir
lögreglumenn. „Po, Po“, „Fimm
ó,“ og „mörgæsir“ eru dæmi um
það.
Fá sér = Að drekka áfengi
Slangrið „að fá sér“ þekkja flestir, enda er eitt
vinsælasta íslenska rapplag sögunnar með
þessi ódauðlegu orð í viðlagi. Til eru ýmsar
myndir af þessu slangri, þar sem fólk leikur
sér með stafsetninguna, til dæmis „Fau cher“.
Skammstöfunin MAFS kom svo upp úr orð-
unum „menn að fá sér“. Stundum er því talað
um að „mafsa“ þegar fólk er að fá sér.
Dæmi um notkun: „Já, ég hugsa að við
endum í bænum. Menn eru allavega byrjaðir
að fá sér.“
Harka = Hustle
Harka er notað í sama skilningi og orðið
„hustle“ í ensku. Að harka hefur verið mjög
lengi í málvitund Íslendinga og stenst orðið
tímans tönn.
Dæmi um notkun: „Harka alla daga.“
Þrotaður/Þrotabú = Að vera búinn á því
Orðið þrotabú er notað yfir þá sem eru alveg búnir á því, hvort sem það er
þreyta eða eitthvað annað. Þeir sem hafa gert mörg mistök eða eru ekki
að gera góða hluti í lífinu geta eru ýmist þrotaðir eða þrotabú.
Dæmi um notkun: „Hann drakk alltof mikið og var bara algjört þrota-
bú. Ég sendi hann bara heim í leigubíl.“
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 5