Fréttablaðið - 10.10.2015, Qupperneq 88
Góður fordrykkur
Áður en vinahópurinn heldur af stað í jólahlaðborð gæti verið gaman að
hittast og fá sér einn heimalagaðan drykk. Þessi drykkur sem uppskrift
er gefin að hér er óáfengur þannig að hann hentar bæði börnum og
fullorðnum en auðvelt er að bæta áfengi við hann ef áhugi er á að styrkja
hann aðeins. Uppskriftin er fyrir um tíu bolla.
1 bolli vatn
½ bolli sykur
1 tveggja sentimetra langur
bútur af engifer, afhýddur og
niðurskorinn
3 perur, skornar í bita
2 lítrar epla-cider
1 sítróna, skorin til hálfs og í
sneiðar
1 msk. Allspice (allrahanda)
krydd
1 bolli fersk trönuber
2 msk. vanilluextrakt
Setjið vatn, sykur, engifer og
eina peru í stóran pott. Eldið
á meðalháum hita að suðu,
hrærið í. Síið vökvann frá og skiljið
blönduna eftir í pottinum.
Bætið við hinum perunum, epla
cider, sítrónu og kryddi og hitið á
meðalháum hita, hrærið reglulega
í í fimmtán mínútur. Bætið við
trönuberjum og vanillu og minnkið
hitann á meðallágan (vökvinn á
að krauma en ekki sjóða). Látið
krauma í tíu mínútur. Berið svo
fram í hitaþolnum glösum.
Flestir þeirra sem farið hafa á jólahlaðborð vita að það eru töluvert miklar líkur á
því að borða yfir sig. Ótakmark-
að aðgengi að mat verður oft til
þess að fólk hleður miklu meira á
diskinn sinn en það getur torgað.
Það verður jafnvel til þess að við
fáum okkur eitthvað og sporð-
rennum því án þess að langa í
raun í það. Ásmundur Edvar-
dsson, veitingastjóri á Grand
Hóteli, hefur unnið á ófáum jóla-
hlaðborðum í gegnum tíðina og
kann leiðir til þess að forðast að
falla í þessa gryfju sem og aðrar
gildrur sem geta leynst á milli
jólaréttanna.
„Það er vissulega eitthvað um
það að fólk leifi miklu þegar það
kemur svangt, og sér allar kræs-
ingarnar og freistast þá til að
borða meira en það getur. Einn-
ig er leiðinlegt að sjá fólk koma
að f lottu hlaðborði og skóf la
svo öllu saman á diskinn. Þá er
betra að fara frekar fleiri ferðir
og taka hóflega á diskinn í hverri
ferð. Það má nefnilega fara eins
margar ferðir og fólk vill. Gott er
að byrja á forréttunum eða kalda
matnum áður en farið er í aðal-
réttina. Mikilvægt er að fara ekki
svo geyst af stað að ekki verði
pláss fyrir eftirréttina og annað
sem fólk langar í. Mikilvægast
af öllu er svo að njóta matarins,“
segir Ásmundur og brosir.
dannaðri skemmtanir
Í jólaglöggum fyrri tíma sem
voru að nokkru leyti undan-
fari jólahlaðborða dagsins í
dag var ekki óalgengt að sumir
töpuðu sér í gleðinni eftir að
hafa fengið sér of mikið í aðra
tána. Þessi stimpill hefur að
einhverju leyti líka loðað við
jólahlaðborðin en Ásmundur
telur að þetta stefni allt í rétta
átt. „Mér finnst þetta vera orðið
nokkuð rólegra en gerðist hér
áður fyrr. Oft er þetta starfs-
fólk fyrirtækja sem fer saman
á jólahlaðborð og þá verður úr
nokkurs konar árshátíð með
skemmtun og dansiballi á eftir
þannig að það verður meira úr
kvöldinu.“
Talandi um drykki segir
Ásmundur að það sé spenn-
andi hve mikið sé orðið til af
skemmtilegum jólabjór í dag.
„Íslenskur jólabjór er æðislegur
og það er mikið beðið um hann
bæði af Íslendingum og útlend-
ingum enda steinliggur hann
með jólamatnum. Svo er það
íslenska jólablandan klassíska,
malt og appelsín, sem er alltaf
vinsæl. Vissulega tekur bæði
bjórinn og gosið pláss í magan-
um en margir drekka það bara í
kringum jólin og finnst það til-
heyra jólunum,“ lýsir hann.
kemst í jólagírinn
Eins og komið hefur fram hefur
Ásmundur þjónað á jólahlað-
borðum í mörg ár. Hann segir
það í raun koma sér í jólagírinn.
„Það myndast ákveðin stemn-
ing á þessum tíma og fólk sækir
í að vinna við jólahlaðborðin.
Það er mikið af skólakrökkum
og f leirum sem biðja um að
fá að vinna í jólahlaðborðun-
um ár eftir ár af því það er svo
gaman.“
Mikilvægast að njóta matarins
Margir falla í þá gryfju að borða yfir sig á jólahlaðborðum. Ásmundur Edvardsson segir alltaf betra að fara fleiri ferðir og setja
minna á diskinn í hverri ferð í stað þess að skófla öllu saman.
Ekki hrúga á diskinn og blanda öllu
saman. Gott er að byrja á kalda matnum
og fara svo í aðalréttina.
Ásmundur Edvardsson, veitingastjóri á Grand Hóteli.
RANGÁRFLÖTUM 4, HELLU – S. 531 8010 – STRACTAHOTELS.IS
Njótið aðdraganda
jólanna í fallegu og
rólegu umhverfi
Jólahlaðborð, gisting og morgunverður
í fögru umhverfi Suðurlands
Jólahlaðborð, 8.800 kr. á mann.
Jólahlaðborð og gisting í tveggja manna
herbergi með morgunverði, 17.400 kr. á mann.
Gerum tilboð fyrir hópa. Ef hópar vilja koma aðra daga,
hafið samband í síma 531 8000 eða 531 8010.
Foréttir: graflax, reyktur lax, eini
berja lax, marineruð síld, kryddsíld,
jólasíld, kjúklingavængir, sjávarétta
salat, villibráðapaté, nautatunga.
Aðalréttir: pörusteik, lambalæri,
skinka, kalkúna bringa, parmaskinka,
hangi kjöt, hrátt hangikjöt.
Meðlæti: epla og karrýsíld, heima
gerðar sænskar kjötbollur, rauðvíns
sósa, gráð ostasósa, sinepssósa,
cumber land, hvítlauks kryddjurtasósa,
uppstúf, grænar baunir, eplasalat,
kartöflur í bátum, sykurbrúnaðar
kartöflur, kartöflusalat, laufa brauð,
rúgbrauð og heimabakað brauð.
Jólahlaðborð
dagana 21. og 28. nóv. og 5. og 12. des.
Kynning − auglýsing 10. októbEr 2015 LAUGArDAGUr8 Jólahlaðborð